Vikan - 19.01.1961, Page 26
Aldís mín.
Tengdamamma stjórnar heimilinu. Fyrir fjór-
um árum giftist ég ekkjumanni sem átti tvö
börn. Þá lofaði hann mér því að hann skyldi
fljótlega útvega húsnæði út af fyrir okkur, en
við búum samt enn þá hjá tengdamömmu. Frá
byrjun var hún á móti því að við giftumst og
hefur aldrei viðurkennt mig sem húsmóður á
heimilinu. Tengdamóðir mín stjórnar heimilinu,
börnunum, syni sínum og óskar vissulega að fá
að stjórna mér með. Hvað i ósköpunum á ég
að gera.
Guðrún P.
Svar:
Þetta er vandamál sem þú og maður þinn
verðið að gera út um. Þar sem þið búið á
heimili tengdamóður þinnar hefur hún fullan
rétt til að hafa sína hentisemi þar. En mað-
urinn þinn lofaði þér eigin heimili og þú
verður að halda áfram að reyna að sannfæra
hann um að svona sambúð sé óþoiandi. Ef
þú ekki kvartar gerir hann ekki neitt í mál-
inu. Vitaskuld er hann hæstánægður með
tvær konur sem gera allt fyrir hann og börn-
in, svo hvers vegna skyldi hann óska eftir
breytingu.
Þú gætir reynt að fara á stúfana að Ifta
eftir íbúð sjálf og ef þér tekst ekki að vekja
áhuga hans fyrir að flytja, þá verður þú að
leggja þig alla fram við að koma til móts við
tengdamóður þína, þvf þegar allt kemur til
ails þá er þetta hennar hús og hreint ekki
svo lítil fórn af hennar hálfu að hafa ykkur
öll á sínu heimili.
Kveðja. Aldís.
HÚN ER TRÚLOFUÐ ÖÐRUM.
Kæra Aldis.
Ég er ástfanginn af ungri stúlku, sem ég hefi
þekkt og verið svolitið með siðastliðið ár. Þótt
hún sé trúlofuð öðrum manni hefur mér tekist
að fá hana til að koma út með mér stöku sinn-
um. Unnusti hennar er heilsulitill og auk þess
vinnur hann það langt í burtu að þau sjást ekki
nema einu sinni i viku.
Hún sagðist elska mig og að hún myndi rifta
trúlofunni ef unnusti hennar vildi samþykkja
það. En hann neitaði þvi. Nú segist hún elska
hann, ætlar að giftast honum þvi hún vill ekki
særa hann.
Það er mér innilega á móti skapi að hún
færi þessa fórn og geri þar með þrjár mann-
eskjur óhamingjusamar. Er nokkur leið út úr
þessu.
Þinn Guðmundur.
Kæri Guðmnndnr.
Ekki hef ég trú á að stúlkan sé að færa
neina fórn með þvf að giftast unnusta sínum,
heldur áift ég að hún elski hann; þótt hún
um stundarsakir hafi misst fótfestiuna vegna
fjarveru hans og ásókna þinnar.
Þú hafðir vissulega tækifæri til að telja
stúlkunni hughvarf, en þegar til kastanna
kom valdi hún manninn sem hún elskar.
Þess vegna skalt þú færa þá fórn að láta
hana afakiptalausa.
Beztu kveðjor.
Aldfa.
26 VIKAN