Vikan


Vikan - 06.04.1961, Síða 5

Vikan - 06.04.1961, Síða 5
FÖTFRÁASTIMAÐUR HEIMS manna. Gerólíkur hinum stöðuglynda og áreiSanlega Futterer, sem var hinn fullkomni foringi, og einnig allt öSru visi en hinn við- kvæmi Germar, sem á þessu ári var veitt viðurkenning i Berlín fyrir mestu afrek í frjálsíþróttum, er einstaklingshyggjumaðurinn Hary, sem segir það, sem honum sýndist, og lætur ekki skipa sér fyrir. FaSir hana horfði á hann æfa. Þegar hann, stuttu eftir heimsmet sitt i Ziiricli, frétti, að hinn 19 ára gamli kanadiski stúdent Harry Jerome liefði lika lilaupið 100 metrana á 10,0 sek., talaði hann strax við Horst Seifart og bað hann að segja sér allt, sem liann vissi um hann. Það, sem liann heyrði, gerði hann mjög órólegan. Sagt var, að Jerome væri eigin- gjarn, ómannblendinn, metnaðargjarn og að honum væri illa við blaðamenn. Hann var ekkert að draga úr því: „Blaðamenn koma alltaf á óhentugum tíma. Hvort sem er á undan eða eftir keppni, hef ég engan tima til samræðna.“ Augsýnilega er Jerome lika af hópi reiðra, ungra spretthlaupara, sem eru harðari af sér en félagar þeirra og sækjast ekki eftir vin- sældum, en hafa aðeins áhuga á að að vera tíunda hluta úr sekúndu fljótari en aðrir. Þenna metnað, — að sigra, — hafði þessi fátæki námumanns- sonur þegar í barnaskóla i smábænum Quierschied i Saar. Faðir hans, sem var þekktur áhugamaður um hnefaleika, kom við kvöld eftir kvöld á íþróttavellinum til að horfa á drenginn, sem æfði sig af eldlegum áhuga.. Eftir barnaskólanám fór Armin Hary i járn- smiðalæri og vann siðan við mólmhlutasmíði í farartæki. í ungl- ingadeild, SV Saar 05, var litið á liann sem fjölþætt iþróttamanns- efni: 6,50 m i langstölíki, 3,20 m í stangarstökki, 55 m i spjótkasti og 11,3 sek. í 100 m hlaupi. Það var ekki fyrr en seinna, að þjálfarinn Ralph Hoke uppgötvaði hæfileika hans sem spretthlaup- ara, þegar Hary hljóp 100 m ó 10,8 sek. Eftir striðið varð hann sigurvegari i tugþraut, þá 19 ára gamall. Þegar hann var 20 ára, bætti hann tíma sinn i 100 m hlaupi og liljóp á 10,5 sek. Hann skipti um felag og fór i I. FC. Saarbrucken og var sendur i marga meistarakeppni og komst með undraverðum hraða upp á efsta tindinn. Hættulegur sigur. Þegar Bertl Sumser, þjálfari Bayer 04, sá þennan metnaðargjarna Saarbúa sigra í unglingameistarakeppni í Oberhausen, sagði hann: „Hann hljóp ekki, hann flaug“ — og útvegaði honurn stöðu sem vélsmið. Dag eftir dag æfði hann með þessari ungu spretthlaupa- stjörnu, sem virtist hafa alla möguleika til að komast i heims- meistaraflokk, aðallega vegna þriggja eiginleika. 1 fyrsta lagi hafði hann fullkomið samræmi í öllum hreyfingum, i öðru lagi tókst honum að ná mesta hraða þegar á fyrstu 20 metrunum, og í þriðja lagi var hann óvenjuviðbragðsfljótur, þegar lagt var af stað. í febrúar 1958 setti Hary fyrsta heimsmet sitt og hljóp 60 yarda (sem eru 54 m) á 6,1 sek. Nú brann hann i skinninu eftir að sigra harðasta keppinaut sinn, Manfried Germar, sem hafði verið ósigr- aður 75 sinnum, í 100 m lilaupi. Hálfu ári seinna heppnaðist honum það. Það var i Stokkhólmi 1958, og þar varð Armin Hary Evrópu- meistari. Þetta var glæsilegur, en um leið hættulegur sigur fyrir liinn tutt- ugu og eins árs gamla spretthlaupara. Eftir þennan einkasigur missti hann allan áhuga á boðlilaupi þýzku sveitarinnar. Um nótt- ina kom hann mjög seint heim á gistihúsið og var tregur til að taka þátt i hlaupinu. Hann liló bara, þegar félagar hans hótuðu honum hýðingu, ef liann stofnaði sigrinum i hættu með þessu. Of umtalaður. „Ég hefði helzt viljað losna við hann i Stokkhólmi,“ sagði Bertl Sumser bálreiður. „Ég var næstum búinn að fá hjartakast. Hjarta- sjúkdómur minn heitir Armin Hary.“ Þegar Hary mánuði siðar neitaði að hlaupa i fyrsta riðli í lands- leiknum gegn Róðstjórnarrikjunum og sagði, að hnéliðirnir í sér væru ekki nógu sterktir á beygjurnar, — „styrkur minn er fólginn 1 lilaupi á beinum brautum,“ — hugsuðu menn i alvöru um að úti- loka hann frá landsliðinu. En Hary baðst afsökunar, og deilan leystist 1 það skipti. En i næstu keppni i Köln hljóp þýzka liðið án Harys, og það færði Bandaríkjamönnum heimsmetið. Þjálfarinn Bertl Sumser tók málstað skjólstæðings sins. „Hary er fram úr skarandi iðinn. Það verður frekar að halda aftur af honum en örva hann. Það er nú einu sinni þannig, að spretthlauparar hafa öra skapgerð. Það að vera ávallt viðbúinn til mikilla átaka gerir Hary órólegan og erfiðan í umgengni. Allir safnast að honum, blöðin, útvarpið, sjónvarpið og rithandasafnarar. Hann á ekki sök á því, að honum vinnst ekki timi til að festa rætur i þessu nýja umhverfi.“ Heilbrigðin er ekki allt. Það er ekki aðeins Hary, sem er misjafnlega fyrirkallaður, heldur eru allir spretthlauparar alltaf dauðhræddir með heilsu sína. Sjón- varpsfréttaritarinn Horst Seifart segir: „Á stuttum vegalengdum verða þeir að framleiða 14 hestafla orku. Þeir ná allt að 36—40 km hraða. Þetta er óskapleg áreynsla, sem veldur oft vöðvatognunum Framhald á bls. 27. I Eftir stórsigra flykkjast fréttaljósmyndarar að hlaupa- garpinum, en hann þykir heldur viðskotaillur. Hary — til vinstri — talar við Manfred Germar, sem var bezti spretthlaupari Þýzkalands, áður en Hary kom til skjalanna, og Martin Lauer — lengst til hægri, sem er einn af beztu grindahlaupurum heims. v

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.