Vikan - 06.04.1961, Side 19
Nína og Frankie.
1 veizlu einni mikilli, sem haldin var i
Hollywood, þegar Krúsi var á ferðalagi um
árið, sátu þau saman undir borðum Frank
Sinatra og Nina kona Krúsa.
DRAUGAGANGUR.
Oft hefur verið reynt að taka
myndir af afturgöngum og fram-
liðnum, en ekki hefur það alltaf
reynzt jafnauðvelt. Hér höfum við
mynd sem hefur þótzt takast einna
bezt og er hún af vofu einni i þýzk-
um kastala. Ekki vitum við nein
deili á ætt né uppruna vofunnar.
HJÓNABAND.
Það hefur ekki heyrzt mikið frá henni Claire Bloom,
þeirri er fræg varð á einni nóttu fyrir leik sinn í Sviðs-
ljósum hans Chaplins. En nú berast þær fréttir að hún
hafi gifzt. Hinn hamingjusami heitir Rod Steiger og er líka
viðriðinn kvikmyndir eins og þeir vita sem sáu Oklahoma.
Ghandi
FRÆNDUR HITTAST.
Enn harðnar samkeppni flugfélag-
anna, og allt er gert til þess að auka
hraðann og þægindin. Þegar fyrsta DC-8
flugvél SAS á leið.nni frá Kaupmanna-
höfn til Tókió kom við á Bodöflugvelli
— sem frægur varð um það leyti vegna
U-2-vélarinnar, sem skotin var niður, —
hittust frændur úr austri og vestri. Á
myndinni sést Lappafjölskylda heilsa
upp á japanskan blaðamann, sem var
með í þessu ferðalagi. Mega SAS-menn
vona, að þessi viðkynning hafi bætandi
áhrif á afkomu félagsins, því að heyrzt
hefur, að þó nokkur halli hafi verið á
rekstrinum síðastliðið ár.
Hér höfum við nokkra kunningja okkar úr mannkyns-
sögunni. Þeir hafa markað nokkur spor mannkynsins,
þaS er að segja, hann Kennedy er nú rétt byrjandi í
faginu, en menn gera sér nokkrar vonir um betri tima
meS tilkomu hans á valdasviSinu.
Hitler
MENNINGARSAM-
BAND.
Nú eru Norðmenn farnir að
flytja út kvikmyndir og hafa
borið niSur í Sovétrikjunum.
Eins og sjá má, blakta norskir
fánar fyrir utan kvikmyndahús
ið, og er það nýstárleg auglýsing.
Nú vitum við ekki, hvað þær
gera mikla lukku fyrir austan, en
til gamans má nefna það, að
myndin Allt fyrir hreinlætið
kvað hafa verið sýnd við álíka
fögnuð og hér hjá okkur. Enn
fremur hafa myndirnar hans
Tliors Heyerdahls Aku-Aku og
Iíon-Tiki verið sýndar, og það
er nú að bjóða myndir af betra
taginu. Annars höfum við heyrt
því fleygt, að Rússar hafi gert
samning við Hollywood uin
helztu stórmyndir þaðan, og er
það liklegast liður i friðsamlegri
sambúð.
VIKAN 19