Vikan - 06.04.1961, Side 28
r
INNIOC UTI
MÁLNING
WISCAW
RiUtjórn og auglýsingar: Sklpholti
33. Simar: 35320, 35321, 35322. Póst-
hólf 149. Afgrelösla og dreiflng:
BlaSadreifing, Mlklubraut 15, siml
36720. Dreifingarstjóri: Óskar Karls-
son. VerB i lausasöiu kr. 15. Askrlft-
arverö er 200 kr. ársþriöjungslega,
greiðist fyrirfram. Prentun: Hilmir
h.f. Myndamót: Rafgraf h.f.
Útgefandi: VIKAN H.F.
Ritatjóri:
Gíali SigurBsson (ábm.)
AugJýsingastjóri:
Jóhannes Jörundsson.
Framkvœmdaatjóri:
Hflmar A. KríBtjánsson.
/ næsto blaði verður m. o.:
4 í aldarspegli: Aron Guðbrandsson, Kauphallarfor-
stjóri.
4 Syndir feðranna. Smásaga eftir Óla Ágústar.
4 Kvenfrelsi og kynþokki. Grein eftir Dr. Matthías
Jónasson.
4 Fegurðarsamkeppnin: Fjórði þáttakandinn í keppn-
inni, Þórunn Gestsdóttir úr Reykjavík.
4 Læknirinn: Óþægilegur og ekki hættulaus sjúkdómur:
Bronchitis.
4 Hús og húsbúnaður: Fimm herbergja íbúð við
Tómasarhaga.
4 Venus. Grein um ástarstjörnuna eftir Björgvin Hólm.
4 Allt fyrir Ellu. Smásaga.
4 Fyrir kvenfólkið: Náttfatnaður.
4 Smásaga eftir Breinholzt.
4 Verðlaunagetraunin: Hálfsmánaðar sumarleyfisferð
í boði.
Ef kastað væri eldspýtu á gólfið,
gæti maður búizt við, að púður-
tunna spryngi. „Takið ykkur stöðul
— Viðbúnir! ...“ Frá áhorfenda-
pöllunum berast óp þúsundanna.
Germar, sem er orðinn mjög tauga-
óstyrkur, leggur of fljótt af stað.
Ef hann gerir það í annað sinn,
er hann úr leik.
Hary tipíar til hans og klappar á
öxl hans, næstum ástúðlega. Þá
dynur skotið aftur. Germar, sem er
á yztu braut, er aðeins á undan,
en á beygjunni er Hary kominn
við hlið hans og þýtur fnam hjá
honum Áhorfendur hrópa nafn
hans aftur og aftur.
í þrjá daga hefur þjálfarinn
Hafele brýnt fyrir honum baráttu-
aðferðina. „Þú verður að vera
fljótur, fljótur eins og elding i byrj-
un. Hafðu í huga, að Germar er
hlaupari á heimsmælikvarða. Eftir
fyrsu 130 m verður að vera góður
spölur á milli ykkar, annars fer
illa. Þegar Garmar sér, að hann er
á eftir i fyrsta þriðjungi, verður
hann taugaóstyrkur. Ég þekki
hann.“
„Það er ekki rétt,“ segir Armin
Hary, „að vakandi maður hugsi
sífellt eitthvað. Það eru til þær
stundir, — hve langar veit ég ekki,
— sem ;maður hugsar alls ekki.
Ég heyrði ekki, þegar áhorfendurn-
ir hrópuðu nafn mitt. Það var ekki
fyrr en brautin var orðin bein, að
ég áræddi að líta til hliðar. Ég
sá ekki lengur skuggann af Germar,
Þá vissi ég, að hann var bak við
mig.“ — Daginn eftir sigraði hann
í 100 m hlaupi.
Með 20,9 sek. á móti 21,2 sek.
hjá Germar varð Armin Hary, sem
eiginlega átti ekki að taka þátt í
keppninni, Þýzkalandsmeistari
1900 í 200 m hlaupi. Það er þó
ekki bezta grein hans. Þvílíkur
þverhaus! „Þetta er nú meiri vega-
lengdin,“ sagði liann þó, þegar
fagnandi fólksfjöldinn umkringdi
hann. „Það er ekki mönnum bjóð-
andi að hlaupa þetta.“ Við Ólym-
píuúrvalið í Erfurt sigraði hann
aftur og þá með 20,6 og var á
undan Wendilin og Germar.
Meira að segja andstiæðingar
Harys verða að viðurkenna, að
þrjózka hans hefur stundum fært
honum sigurinn. Iiinn 6. sept. 1958
hljóp Hary á „óskatímanum“ 10,0
i hundrað m í Friedrichshafen.
En sá tími fékkst ekki viðurkennd-
ur, þvi að brautin var einum cm
lengri en viðurkennt er. Hlaupari
með minna sjálfsálit og þrjózku
hefði gefizt upp við það.
En ekki Hary., Hinn 21. júní 1960
hljóp hann á Letziggrund-vellinum
í Zurich 10,0 í annað sinn og
fékk því til leiðar komið, að hann
fékk að endurtaka hlaupið, því
að það var aftur ekki viðurkennt
og í þetta sinn vegna mistaka í
byrjun, sem að vísu var ekki talað
um fyrr en eftir á. 50 min. seinna
tókst honum það i þriðja skipti.
Með ofsahraða hratt hann heims-
metinu 10,1, sem fimm Bandarikja-
menn höfðu lialdið síðan 1956.
„Maður án tauga,“ kölluðu blöðin
hann hrifin.
Hann losnaði við óttann.
Sé Hary spurður að því, hver
sé mikilvægasti atburður ævi hans,
nefnir hann tímann í Ameríku.
Hann kunni ekki ensku, átti enga
peninga, vann við að pakka app-
elsinum, komst ekki inn i háskól-
ann í San José vegna ónógrar
undirbúningsmenntunar, var á-
heyrnarnemandi i Bakersfield, —
„hræðilega heitt þar,“ sagði hann,
.—■ og komst að síðustu að sem
íþróttanemandi við Santa Barbara-
skólann við Los Angeles.
Æfingahlaup með skólabræðrum
sínum færði honum mesta ávinn-
ing, sem livítum hlaupara getur
hlotnazt: Iiann losnaði við óttann
við svertingjana. „Þeir hlaupa
hratt, en þeir hugsa ekki. Það get-
ur maður séð á því, hvernig þeir
haga sér í Kongó.“
Styrkur Bandarikjamanna er
fólginn í sjálfsáliti þeirra. í því
tilliti stendur Hary þeim fyllilega
> sporði. „Þegar maður hefur í
jafnmiklu að snúast og ég,“ segir
hann, og nú ljómar andlit hans
af drengjalegu brosi, „getur eigin-
lega ekkert óvænt komið fyrir.“
Á Ólympíuleikunum í Róm stóð
Hary á hátindi velgengninnar og
sigraði glæsilega í 100 metra hlaup-
inu. Þar gerðist raunar það, sem
hefur ekki áður gerzt á Ólympíu-
leikum, að þrír hvítir menn urðu
á undan þremur af svarta kynstofn-
inum. Ólýmpíugullið fékk Hary
fyrst og fremst fyrir frábært við-
bragð. Á siðustu metrunum virtist
Bandaríkjamaðurinn Dave Sime
draga ögn á hann. Þetta sannar þá
staðhæfingu, að á Ólýmpiuleikum
sigri sá, sem sneggst liefur við-
bragðið.
Kanadamaðurinn Jerome var ó-
heppinn og tognaði, áður en til
úrslitanna kæmi, en margir bjugg-
ust við því, að hann yrði hættu-
legasti keppinautur Harys, enda
eini maðurinn, sem hlaupið hafði
á 10,0 sek. fyrir utan Hary.
Eftir leikana bauðst Hary margs
konar frami, og nú var engum vafa
undirorpið lengur, að hann var fót-
fráasti maður lieims. Hann fékk
kvikmyndatilhoð, og stórt fyrir-
tæki í Vestur-Þýzkalandi, sem
framleiðir rafmagnsvörur, bauð
honum lifstíðarstarf, sem átti að
vera í því fólgið að skrifa nafn
sitt undir samninga fyrirtækisins.
Fyrir það átti hann að fá afbragðs-
laun. Það mundu margir mæla, að
slíkt og þvílíkt væri nóg til að
gera einn mann vitlausan, sem
hefur ekki þótt auðveldur viðskipt-
is fyrir. Var að vonum, að hann
ætti erfitt að ákveða með framtíð-
ina, en margt hefur verið sagt
hinum fótfráa Hary til hnjóðs,
meðal annars það, að hann hafi
skilið við unnustu sína, þegar hon-
um bauðst kvikmyndasamningur-
inn.
Ekki er líklegt, að mikið heyrist
frá Hary næsta sumar. Hann fót-
brotnaði snemma i vetur, þegar
hann lenti í bílslysi, og getur orðið
nokkurn tíma að jafna sig eftir
það. Svo henti það hann að falsa
skýrslu um þátttökukostnað í í-
þróttamóti, og fyrir vikið hafa
keppnisréttindin verið dæmd af
honum i eitt ár. Þetta auðgunar-
brot framdi Hary fyrir Ólýmpíu-
leikana, og nú hafa heyrzt þær
raddir i Þýzkalandi, að taka hæri
Ólýmpiugullið af honum. Hary hef-
ur ekki mótmælt dómnum, en
Ólýmpiugullið segist hann munu
verja liði, ef á þurfi að halda -fc
2B VIKAN