Vikan - 06.04.1961, Page 30
GÆÐASTÁL
NÁKVÆM SMÍÐI
BELTI
RCO arahlutir
ALLIS-CHALMERS
CATERPILLAR
INTERNATIONAL
EINKAUMBOÐ:
almcnna verzlunarfélagið h.f.
Box 137 — Laugavegi 168 — Simi 10199 — Reykjavik.
nJU
E r?
toUMuBlnN
Draumspakur maður ræður drauma
fyrir lesendur Vikunnar.
Draumaráðandi Vikunnar.
Mig dreymdi að styrjöld geisaði og var ég
að flýja með börnin mín fjögur ásamt einu i
viðbót, sem mér fannst ég eiga líka, var það
minnst og bar ég það á bakinu. Heyrði ég óp
VIÐ HREINGERUM
LOFT OG VEGGI
FLJÓTT OG VEL.
ÞRIF h.f.
SÍMI 35357.
LÁTIÐ OKKUR
LÉTTA STÖRFIN.
og sprengjudrunur að baki mér. Urðum við að
brjótast yfir allskonar torfærur í myrkri og
kulda og alltaf gengum við á brattann. Sá ég
þá allt í einu að ég var búinn að týna einu
barninu stend ég þar i ráðaleysi og við öll upp-
gefin. Kemur þá til okkar maður góður vinur
fannst mér, tekur hann við börnunum og var
ég um það byl að leggja af stað til baka að
leita að þvi, sem ég týndi er ég vaknaði.
Gunnvör.
Svar til Gunnvarar.
í draumnum kemur fram óttinn við lífið
og flóttinn frá hinum erfiðu tímabylgjum
lífsins. Samt sem áður verðum við öll að
borga einhverja skatta á altari erfiðra ör-
laga. í draumnum er fullt af táknum um erf-
iðleika, en jafnframt byrtir til að lokum. T.d.
maðurinn, sem tekur við börnunum mundi
tákna mikla hjálp frá velviljuðum manni,
og ef til vill endurheimt þess, sem tapað
var.
Kæra Vika.
Mig langar til að að biðja þig að ráða fyrir
mig draum, sem mig dreymdi i fyrrinótt.
Mér fannst ég vera stödd á Akureyri, en
þar er ég mjög oft og þá fannst að mig langaði
mjög til þess að skreppa hingað heim i ein-
hverjum erindum. Svo spurði ég fólkið, sem ég
dvaldi hjá, hvort það væri ekki allt i lagi, þó
ég skryppi hei yfir eina helgi. Það var allt i
lagi og meira að segja ætlaði húsbóndinn að
borga ferðirnar. Þá datt mér i hug að ég mætti
kannske ekki fara norður aftur, svo ég var v'
að hugsa um að hringja suður og spyrja for-
eldra mina hvort ég mætti örugglega ekki fara
aaftur. Svo var draumurinn ekki lengri en ég
vona að þú getir ráðið hann fyrir mig þótt hann
sé ekki merkilegur.
Með fyrirfram þakklæti.
L. G. H.
Svar til L. G. H.
Mér virðist liggja í loftinu þegar ég les
draum þennan að fólkið, sem þú dvelur hji
vilji gjarnan losna við þig, þar eð húsbónd-
inn vill meðal annars greiða fargjaldið þitt
suður. Ef taka ætti draum þennan, sem tákn
um eitthvað í framtíðinni mundi hann benda
til smá breytinga hjá þér á næstunni.
cÁA^&dsJl-s
ÚX SiÍMl
V
ll/UL DCR
30 vuCAM