Vikan


Vikan - 13.04.1961, Blaðsíða 7

Vikan - 13.04.1961, Blaðsíða 7
Þegar koraið var niður á hornið á Snorrabraut og Laugavegi, sagði bilstjórinn, eins og hann hefði gert mikla uppgötvun: „Viljið þið bara ekki gista hjá mér i nótt? Klukkan er svo margt, þið fáið hvergi inni.“ „Það er nú alveg óþarfi, við liljót- um að bjargast." „Ég hef nóg húsnæði. Eigum við ekki bara að segja það?“ Bræðurnir svöruðu engu, en voru þó ánægðir. Maðurinn ók inn í Laugarás, að einu glæsilegasta húsinu. Þegar bíllinn rann yfir rautt strik í heimreiðinni, opnuðust dyr bíl- geymslunnar, sem var ein á jarð- hæðinni. Inni kviknaði ljós. Piltarnir dáðust að þessu. Slikan íburð gat enginn látið eftir sér nema sá, sem hefur næga peninga handa á milli. Þeir höfðu reyndar heyrt, að fjáröflunarleiðir sumra væru mis- jafnar. Húsbóndinn fylgdi bræðrunum upp í húsið. Þar var allt eins ný- tízkulegt og frekast er hægt að hugsa sér, — öll húsgögn úr harðviði, teppi út í horn á öllum gólfum. Og jiegar húsbóndinn hafði farið með þá í eldhúsið og gefið þeim að eta það, sem þeir kölluðu stórliátiða- mat, þá visaði hann þeim til her- bergis og sagði: „Hér skuluð þið gista, og munið, að á meðan þið eruð mínir gestir, þá eruð þið mér mínir synir. Verið i öllu eins og heima hjá ykkur. Góða nótt.“ Segir nú fátt af öllu til næsta kvölds. Eftir kvöldverð bauð húsbóndi þeim til stofu, tók fram vínglös, skenkti þeim konfak og sagði: „Bragðið á þessu, þið hafið gott af því.“ Þeir gerðu það, og liann hellti aftur 1 glösin. „Hvernig lizt ykkur annars á ykk- ur hérna?“ „Vel, þetta er fegra en við vissum, að væri til.“ „Hvernig kynnuð þið við að eiga svona?“ „Það væri gaman, en sennilega verður þess langt að biða.“ „Ég er með hugmynd,“ sagði hús- bóndinn, um leið og hann bætti í glös þeirra enn. „Hvað þá?“ spurði eldri bróðir- inn, en áhugi beggja vaknaði þegar. „Verið rólegir, — ekkert fum. Það er ekki vist, að okkur semji.“ „Láttu okkur heyra.“ „Eitt verðið þið að byrja með að sverja. Kunnið þið að þegja?“ „Já, við þegjum.“ „Þið þekkið mig ekki og hafið aldrei heyrt min getið. Má ég treysta þvi?“ «Já, við kunnum að þegja.“ Húsbóndinn tók fram veski sitt og fór að telja úr þvi seðla. „Hlustið nú vel á. í nótt klukkan eitt verður bíll hér fyrir utan. Þið farið á honum suður i Hafnarfjörð, i vörugeymslu Jakobs Þorsteinsson- ar útgerðarmanns. Þar hittið þið vaktmanninn og fáið honnm þúsund krónur. Þá mnn hann hlaða bilinn. Þið flytjið farminn til Keflavikur, akið þar niður að brvggju og hiðið þess, að um horð f skipinu Mariu kvikni grænt Ijós. Það verður klukk- an hálffimm. Þá farið þið niður á bryggju, og billinn verður losaður. Ég verð þarna og tek ykkur i þæinn aftur. Ykkar hlutur verður fimm þúsund. Hafið þið skilið mig?“ „Já, já. Klukkan eitt af stað, vðru- geymsla Jakobs, Maria klukkan hálf- fimm á grænu ljósi, og fimm þúsund handa okkur. Og þú, þvi miður, góði, hef aldrei séð þig fyrr.“ Framhald á bls. 29.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.