Vikan


Vikan - 13.04.1961, Blaðsíða 13

Vikan - 13.04.1961, Blaðsíða 13
Séð úr eldhúsi yfir í borðstofu og stofu. Til vinstri standa þvottavélarnar. HÚSIÐ, sem þið sjáið hér, ér að mörgu leyti líkt þeim húsum, sem reist hafa verið í hinum nýju hverfum Reykjavikur í talsverð- um mæli. Þau eru á skipulaginu nefnd tvíbýlishús, en í fram- kvæmdinni hafa göfugar fyrirætl- anir oftast breytzt á þann hátt, að húsin eru fjórar íbúðir, hver ofan á annarri, þegar lokið er. Oftast, ef ekki alltaf, hefur þetta orðið til þess að spilla útlitinu. Á hús- inu, sem hér um ræðir, hefur þetta ekki orðið til verulegs tjóns, þar sem rishæðinni hefur verið sleppt. Heildarsvipur hússins er því frem- ur fallegur, og hlutföllin milli glugga, veggflata og bita eru góð. Svalir eru innbyggðar, eins og raunar virðist sjálfsagður hlutur hér á landi, enda þótt helzt til fáir arkítektar hafi komið auga á þau sannindi. Svefnherbergissvalir eru að vísu ekki innbyggðar, en þær gegna öðru hlutverki, og það kem- ur ekki að sök. Eigandi hússins, Kristleifur Jóns- son aðalféhirðir, hefur innréttað íbúðina einkar smekklega og vafa- laust notið aðstoðar arkitektanna, Framhald á bls. 35. FIMM HERBERGJA IBUÐ VIÐ TÓMASARHAGA OG W0«i Frá eldhúsi og þvert gegnum húsið er breiður gangur sem eins mætti nefna stofu og gegnir raunar hlut- verki borðstofu. Eldhúsið, séð úr borðkróknum. Vaskurinn er [> undir glugganum, en eldavélin er undir bolla- skápnum með glerhliðunum, og sér á bak hennar. ■/IO /4o | <3o | /tS’ SoS £L£)HUS 2. /JÆ£>

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.