Vikan


Vikan - 13.04.1961, Side 16

Vikan - 13.04.1961, Side 16
í skólanum Nú ihöfum við farið í einn skólann enn i Sjómannaskólann og er þaö Matsveina- og veitingaþjónaskólinn. Hann starfar eins og nafnið bendir til, sem skóli fyrir tvær greinar af sama meiði. Þar sem skiptingin er þannig, verður að taka málið fyrir í tvenn- um greinum og þá verður matsveina- námið tekið fyrst. Það skiptist í að þessari grein sérstaklega er kennsla í næringarefnafræði, bakstri, verkleg og bókleg kennsla í mat- reiðslu svo og vöruþekking, geymsla og nýting matvæla. Auk þess er kennd franska og það er tekið fram að hún eigi að snerta iðnina sem mest. Tryggvi Þorfinnsson skólastjóri tók vel á móti okkur, bauð okkur í mat, en þetta var á þriðjudegi og þá fer fram verkleg kennsla og meist- Nemendur í eldhúsi Matsveinaskólans. þriggja ára deild til matsveinspróf í matreiðslu og tveggja fjögurra mánaða námskeiða til prófs fyrir matreiðslumenn á fiskiskipum. I þriggja ára deildinni þurfa menn að vera við skólanám fjóra mánuði árs- ins og eru menn ýmist fyrri eða seinni helming vetrar við nám. Annars veg- ar frá 1. sept. til 31. des. og 1. jan. Tryggvi skólasdjóri sker fyrir. til 30. aprll. Þeir sem stunda nám til prófs fyrir matsveina á fiski- og flutningaskipum eru eftir þessu að- eins átta mánuði í skóla, enda þurfa þeir ekki aö læra eins mikið og hafa líka minni réttindi. Til sveinsprófs í matreiðsludeild eru kenndar náms- greinar litið eitt frábrugðnar því sem kennt er i iðnskóla. Það sem snýr urum ásamt öðrum gestum boðið til kvöldverðar. Nú spurðum við Tryggva ýmissa spurninga, sem ekki verða beint ráðnar af reglugerðinni fyrir skólann. — Finnst yður, að fjölbreyttnin í verklegri matreiðslukennslu sé t. d. sambærileg við erlenda skóla? —- Við notum sömu kennslubók í matreiðslu og skóli Samtaka veit- inga- og gistihúsa í Danmörku. Auk þess er hér meiri bókleg og verkleg kennsla. — En er það ekki til trafala í kennslu, svo maður nefni ekki ár- angurinn, að hér er ekki sama úrval í hráefnum og erlendis? Það stendur okkur auðvitað fyrir þrifum, og er sérstaklega slæmt á veturna, með tilliti til grænmetis. En þar sem við eigum kost á svo mikiu hráefni, bæði í duftum og niðursoðið, þá kemur það ekki að eins mikilli sök. — Það má þá segja, að þekking og menntun þeirra sem úr skólanum koma, sé sambærileg við það sem er erlendis? — Já, það er það. E'n erlendis hafa matsveinar meiri möguleika á fram- haldsmenntun en það kostar hér að menn verða að fara út. — Hvað hafa margir stundað nám í vetur og hversu margir útskrifast í vor? — Það hafa verið um fimmtíu manns í báðum deildum. Þar af út- skrifast átta. 3 þjónar og 5 mat- sveinar. — Eru ekki einhver sérstök plön eða framtíðarviðhorf, sem þið stefn- ið nú að? — Við höfum alltaf verið að berj- ast fyrir því, frá því að skólanefnd var skipuð 1949, að skólinn yrði rek- inn í sambandi við veitingastað, sem gæti tekið að sér veizlur og haft nemendur á samning allan náms- tímann. Svona gerum vió. . . Nú var setzt að snæðingi og kemur það í næsta blaði, þegar skrifað verð- ur um Þjónaefnin, hvað þar hafi runnið í maga. Horbergiö mitt 1 seinasta þætti var fjallað um liti og því verður haldið áfram nú. Þá er að snúa sér að litarflötum her- bergisins. Það má skipta málun í þrjá hópa. Þar sem notast er við einn aðallit, fleiri aðalliti og þar sem aðallega er stuðst við eðlilegan lit þeirra hluta, sem í herberginu eru. Þegar um einn aðallit er að ræða er hægt að fara tvær leiðir. Annars veg- ar getur maður notast við litinn þann- ig, að einn flötur er málaður með dökkum lit t. d. dökkgrænum, annar með milligrænum og sá þriðji ljós- grænum, þá fæst róleg heild. Svo er hægt að mála einn flöt með græn- bláum lit, annar er mosagrænn o. s. frv. Þannig er hægt að skapa ýmist frekar rólega heild og svo líka dá- lítið fjör. Þegar fleiri aðallitir eru notaðir, þá ber vel að gæta, að ekki skuli nota mjög sterkar útgáfur, þar sem slikt getur valdið algjörri lita- óró. Heppiiegast er að hafa sterka liti á litlum flötum og veika liti á stórum Þess má geta að hvítir og gráir veggfletir gefa manni ailtaf mesta möguleika með tillit, til lita i húsgögnum og gardínum, blómum og myndum. Rauðbrúnt er alltaf vara- samt þar sem það útheimtir liti í sama tón. Siðast en ekki sízt, er hægt að lát.a eðlilegan lit beirra efna. sem í hús- gögnum og öðrum hlutum eru, ráða. Þá notast maður við alls konar skemmtileg efni, svo sem leður. skinn. hör. ullartepni, bast og annað eftir þvi. 1 herbergi með slíkri inn- réttingu verð'ir alltaf um mjög skemmtilegan blæ að ræða, nema því klaufalegar sé haldið á spilunum. Svo er ekki lítið atriði, að hafa þær gardínur, sem sleppa mátulega mik- illi birtu inn. Tækni Þegar litið er á myndina hér, þá verður manni ljóst, hversu gifurlegir möguleikar eru i sjálfvirkri fram- leiðslu. Gataræmurnar á borðinu stjórna framleiðslu þeirra hluta, sem hafa verið settir á þær. Til þess að geta komið slíkri framleiöslu við þarf að sjálfsögðu að vera fullkomið stjórnkerfi fyrir allar tegundir af vélum á staðnum svo og tæki til þess að flytja hvern hlut frá einni vél í aðra. Ef gert er ráð fyrir vinnustöðum um allan heim sem eru með slíkum og sömu vélum, þá opn- ast heimur hinna ótrúlegustu mögu- leika. Með því einu að útbúa margar gataræmur af sömu gerð, er hægt að framleiða sömu hluti á mörgum stöðum í einu án fyrirhafnarmikillar vinnu í samræmun. Slík framleiðsla myndi lækka flutningskostnað og Sjálfvirk framleiösla. varahlutir i hvaða vél sem- væri, er hægt að búa til þar sem það hentar bezt. Einnig væri það frekar ein- falt mál að leggja framleiðsluna á hilluna um tíma og geymsla á ræm- unum er tiltölulega þægileg. —O— Það hefur verið reiknað út að venjulegur geimfari muni þurfa með um 600 ltr. af súrefni á dag. Það er bara ekki svo einfalt mál að koma því við. E’kki er hægt að taka með sér súrefnið í hylkjunm, þar sem það hefði í för með sér svo mikla og þunga geyma, að það i sjálfu sér gerir slika framkvæmd óhugsiandi. Lausnin virðist vera sú að vinna súr- efnið á leiðinni. Og Þar verður að taka jurtirnar til hjálpar, þar sem þær vinna súrefni úr andrúmsloftinu. Súrefnisvinnsla úr ftörungum Þessi vinnsla fer fram með hjálp sól- arljóssins og er hún í því fólgin að jurtirnar framleiða kolvetni úr koltvisýringi og vatni. 1 þessu tilfelli verður hentugast að notast við þör- unga vegna hins háa blaðgrænuinni- halds þeirra. Tilraunir hafa leitt í ljós, að 2.3 kg af þörungum í 230 ltr. af vatni framleiðir um 600 ltr. af súrefni á dag úr koltvísýringi. En þar sem súrefnisframleiðslan verður að fara fram meðan jurtin vex og þörungar aukast á einum sólarhring úr 1 kg í 2.6 kg þá hefur lika verið gert ráð fyrir því, að geimfararnir lili að mestu leyti á þörungum. Á myndinni sést mús sem lifir slikri tilveru. * s 16 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.