Vikan


Vikan - 13.04.1961, Side 20

Vikan - 13.04.1961, Side 20
7. hluti frnncoise d Eaubonne Hann kveikti sér í sígarettu. „Þú vildir kannski skýra þetta nánar.“ „Þetta hvað?“ „Þetta allt saman. . . .“ Hann benti á rótið og óreiðuna i herberginu, útvarpspilarann á gólfinu, bæidan legubekkinn, sporin á gólfinu, óhrein vin- glösin og sigarettustubbana. „Lifnaðarhætti Þína og allt bað. . . þessa kyn- legu félaga, sem þú velur þér.“ „Þú mundir ekki skilja það,“ sagði Mic og var þegar komin í vörn. „Og hvaða þýðingu hefði það, þó ég reyndi? Það er ekki hægt að skýra það.“ „Jú, þú getur það,“ svaraði Roger hæverkslega. Hún yppti augnabrúnum. Hann virti hana fyrir sér og sagði rólega: „Þetta er af leti og engu öðru. Þið eruð letingjar og ekkert annað.“ „Jæja, Roger minn, þú heldur að það sé ein- göngu það, sem veldur. . .“ sagði hún og brosti við, eins og Þetta kæmi henni í rauninni ekkert við. „Kannski ekki eingöngu, en það á mestan þátt í því . . . er ekki svo?“ „Er þetta ekki einkennilegt?" mælti hún kænskulega. „Þegar ég virði þig fyrir mér, kemur mér sú spurnig fyrst í hug, hvort Þú hafir aldrei verið ungur.“ „Ég hef víst aldrei haft tíma til þess“, svaraði hann. „Þegar ég var á Þinum aldri, barðist ég í frumskógum Indó-Kina. Lauk ekki einu sinni námi.“ „Og þegar þú komst þaðan," mælti hún ertnis- lega, „áttirðu ekki neina atvinnu visa, en hins- vegar gnægð af dirfsku og þreki og svo fram- vegis. . . .“ Hún gekk að útvarpsspilaranum, lagðist á hnén og svipaðist um eftir hljómplötu. Bróðir hennar virti hana fyrir sér með nokkurri forvitni. „Gerirðu þér grein fyrir þvi, að þú ert hálf- gerð drós, Þrátt fyrir allt?“ Mic reiddist honum ekki. „Þú ert nú ekki neinn engill sjálfur," sagði hún. „Þú, sem alltaf hefur elskað bíla . . .“ „Ég þekki ekki til neins nema bíla,“ leiðrétti Roger hana. „Jeppa. . .“ Mic svaraði ekki. Hún reis á fætur, gekk út að glugganum og horfði út, rétt eins og Roger væri ekki viðstaddur. „Hlustaðu á mig, Mic," mælti hann. „Það var ekki erindið að halda neina umvöndunarprédikun yfir þér. En mig langar til að minnast á það við þig, að það eru til unglingar. sem Ijúka námi og taka próf -— er það ekki?“ Hún yppti öxlum. „Þú þrælar til þess að líða skort, og þú liður skort, ef þú þrælar ekki. Til hvers er þá þrældómurinn?", sagði hún og tók sér í munn eina af kenningum Alains. „Hvað um þessa unglinga, sem ég var að minn- ast á?“ „Þeim hefur ekki skilist þetta enn.“ „Hvað meinarðu, Mic? Þú stundaðir nám, og svo hættirðu því formálalaust. Hvers vegna? Þú heíðir getað orðið kennari. Það er prýðisgóð staða og þó mikið frjálsræði." „Að hvaða gagni hefði Það komið? Að slíta sjálfri mér út við að kenna krökkum fræði. sem ég sjálf var löngu hætt að trúa? Nei, bróðir minn góður — ég hef ekki trú á neinu lengur. Ekki á nokkrum sköpuðum hlut. Við höfum látið blekkj- ast of lengi. Það er gamla kynslóðin, sem sjálf hefur kennt okkur . . . að láta bátinn berast fyrir straumnum." „Og Þú ert ekki eldri en þetta," andvarpaði hann. Mic dró tjaldið fyrir gluggann. „Vertu nú tillitssamur, Roger," mælti hún biðj- andi. „Ég á von á gesti.“ „Þú vilt að ég fari . . . Allt i lagi, ef ég er til óþæginda." Hann sagði þetta gremjulaust og brosti við. Bob kom í sömu svifum og Roger setti á sig húf- una. Mic beit á vörina. „Bróðir minn,“ sagði hún af lítilli hæversku. Bob rétti honum hendina. „Gleður mig að kynnast yður,“ sagði hann. Roger leit til systur sinnar dálítið ertnislega. „Nú trúi ég ekki mínum eigin augum", sagði hann. „Hann er ekki í grímubúningi! Kannski þú sért að hugsa um að halda náminu áfram?" Bob leit vandræðalega á Mic. „Láttu sem þú heyrir ekki hvað hann segir," mælti hún í hálfgerðu fáti. Hún var nú orðin bróður sínum sárgröm, hálf- vegis hratt honum út úr dyrunum og mælti síðan við Bob um leið og hún varp Þungt öndinni: „Það er furðulegt hvað fjölskylda manns getur verið þreytandi." Þau brostu hvort til annars, en reyndu þó bæði sem þau gátu að leyna fögnuði sínum yfir endur- fundunum.Mic varð fyrri til að átta sig. Hún gekk að speglinum, lagfærði hár sitt einu sinni enn og setti upp kaldranalegan þreytusvip. „Við erum óheppin í þetta skiptið," sagði hún. „Þau voru hérna, hin, en Roger kom og fældi þau burtu — Guy, Lou, Alain og Clo.“ „Afleitt," svaraði Bob og lagði eins mikla sann- færingu í röddina og honum var unnt. „Mér hefði þótt gaman að hitta Alain aftur." „Þú getur það. Hann situr áreiðanlega í veit- ingahúsinu næstu klukkutimana. „Allt í lagi. Ég er á skellinöðrunni, svo að þú getur komið með mér.“ „Ekkert liggur á.“ Það varð nokkur þögn. Hún settist á legu- bekkinn en hann tók að skoða hljómplöturnar, sem lágu á víð og dreif. „Nokkur skemmtileg?" „Þú getur spilað þær af þeim, sem þig langar til,“ svaraði hún og kveikti sér í sígarettu. ,.Já — þessi nýja með Kay Wilding!" Bob rótaði i plötuhrúgunni og virtist í essinu sínu; gat þvi ekki séð ástina og aðdáunina í augnaráði hennar og svip, þegar hún virti hann fyrir sér, ekki heldur brosið, sem minnti á ver- aldarvana konu. Þegar honum varð loks litið upp, sá hann aðeins þreytulegan kæruleysissvip- inn, sem hann var þegar farinn að venjast. „Langar þig til að leika Wildingplötuna?" „Ekki svo ákaflega," svaraði hann og var með á nótunum. I-Iann las nöfnin á nokkrum plötum. „Ágætt safn,“ varð honum að orði. Bnn varð nokkur þögn. Svo spurði hún, rétt eins og hún spyrði hvort honum geðjaðist að ávaxtamauki: „Ertu með eða á móti sjálfsmorði?" Bob gætti þess að láta ekki neitt á undrun sinni bera. „Ég geri ráð fyrir að það sé ekkert við það að athuga, þótt mig langi ekkert til að reyna það. Hvers vegna spyrðu?" „Ekki af neinu sérstöku. Alain var að ræða þetta fyrir skemmstu. Þangað Lil maður blndur endi á þetta allt saman, sagði hann ... og ég lét sem ég væri honum sammála til Þess að gera honum ekki gramt i geði. Annars er ég lika alltof værukær til þess að það freisti mín.“ Hún reis á fætur, gekk til hans hægum skrefum og hann virti fyrir sér menið, sem féll að grönn- um hálsi hennar, ofanvert við peysukragann. „Hvaða plötu hefurðu svo valið?" Bob leit undan. „Platters," svaraði hann. „Þeir eru svo hversdagslegir ..." sagði Mic um leið og hún kom enn nær honum og slökkti í sigarettunni. „Eins og þessi hárgreiðsla þín, sem ég hef áður bent þér á.“ Hún rétti út hend- ina og ýfði hár hans. „Svona, nú svipar þér til Péturs; nýja kunningjans, sem Clo hefur orðið sér úti um.“ Bob hló og lagði frá sér hljómplötuna. Hirti ekki um að spyrja hver hann væri, þessi nýi kunningi Clo, vinstúlku hennar. Hann vafði Mic örmum og hálfvegis hratt henni upp á legubekkinn. Hún titraði, lét sem hún vildi verjast honum. „Láttu mig vera. Mér fellur ekki við úthverfabúa!" „Við skulum sjá hvort þú skiptir ekki um skoðun á þeirn!" svaraði Bob og lét skammt á milli orða og athafna. Það var eins og fjötrar féllu af þeim báðum, Þegar þau þurftu ekki að látast lengur. Hún stundi lágt: „Bob, Bob, ég ... ég ..." Og svo varð annarlega hljótt. SJÖUNDI KAFLI. Konan, sem húsið átti, sat að kaffidrykkju með vinkonu sinni, þegar þau, Bob og Mic, leiddust syngjandi og hlæjandi niður stigann. Gömlu kon- urnar litu út og fylgdust með því, er þau settust á bak skellinöðrunni; Mic sveiflaði fótleggjun- um og hrópaði: „Eins hratt og hún kemst!" Gömlu konurnar litu hvor á aðra og andvörp- uðu. „Þessi æska!“ „Satt segirðu — en ef hún greiðir mér ekki húsaleiguna i þessum mánuði, verð ég að visa henni á brott. Ég er orðin leið á þessum látum. Auk þess hefur hún alltaf verið eftir á með leig- una.“ Skellinaðran þaut af stað með hvæsi og hávaða. Bob lét sem hann sæi ekki umferðarljósin, og það mátti engu muna að hann rækist ekki á strætis- vagn, þegar þau nálguðust hljómplötuverzlunina við Champs Elysées; þau stigu af baki skellinöðr- unni, rjóð á vanga og með blik 1 augum. Götuljósmyndari, sem stóð á gangstéttinni, beindi að þeim vélarauganu, smellti af og afhenti Þeim síðan litinn miða. „Mynd, til minningar um daginn. Þið getið viltjað hennar, ef ykkur sýnist svo, það er engin skuldbinding." „Ég skuldbind mig ekki til neins!" varð Mic að orði um leið og hún stakk miðanum í hand- tösku sína. j „Ekki skil ég í því, að neinn hirði um slíkar myndir," sagði Bob. „Ojæja!" svaraði hún með kaldranalegu yfir- læti. „Fólk er alltaf að burðast með þessar til- finningar!" Bob tók ástúðlega undir arm henni. „Ég ætla að vita hvort hljómplatan mln er komin." „Og ég ætla að halda aftur heim & leið.“ 20 vuo>.N

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.