Vikan


Vikan - 13.04.1961, Síða 30

Vikan - 13.04.1961, Síða 30
CJ ef junnr TízUulitir Aðalútsölustaður Kirkjustræti 8—10. Sími 1 28 38. Viðurkennd gæðavara heima sem heiman. Gaeði, fjölbreytt litaval og ótrúlcga hagstætt vcrð, hafa gert Gefjunaráklæði að út- flutningsvöru. Gefjunaráklæðin eru vinsæl- ustu og mest notuðu áklæðin á íslandi. Pramleidd í fjöl- mörgum gerðum og ávallt í nýjustu tízkulituni. en á morgun komizt þið í kynni við Skotland Yard Reykjavíkur. Allan daginn sátu bræðurnir og í- grunduðu ástandið, sem þeim fannst lieldur hafa óvænkazt. Þeir komust að þeirri niðurstöðu, að hiisbóndi Jieirra mundi hafa sagt til þeirra, svo að hann slyppi við að borga þedm, en gætt þess að láta þá ljúka verkefninu fyrst. Þeir hétu að ná i kauða og það fyrr en siðar, bara ef tækifæri byðist, sem siðar varð. Klukkan nfu um kvöldið urðu þeir varir við hróp og köll frammi i varðstofu: „. . . .og við verðum að fara allir, bað er allt vitlaust þarna upp frá. Fljótir nú.“ — Hurðaskellur . . . bíl ekið af stað í offorsi . . þögn . . . Bræðurnir hófust handa, og eftir litla stund komu þeir hurðinni af stöfum og fóru út, tóku næsta bil, sem þeir sáu úti á götu, og óku af stað i bæinn. En eigandi bilsins, sem hafði séð til þeirra, hljóp spöl á eftir þeim og kallaði og stevtti hnefa. Þeir óku stanzlaust i Laugarásinn og að húsi húsbónda sins, létu bil- inn renna yfir rauða strikið, sem opnaði bilskúrinn, þvi að þeir vissu, að það mundi eini möguleikinn til að komast inn án erfiðleika. Þeir gengu inn og upp i forstofuna. En hegar þeir voru komnir þangað, heyrðu þeir hlátur og gleðskapar- hljóð frá stofunni. Þeir opnuðu dyrnar þar inn, um leið og húsbóndi þeirra sagði: „Og skál fyrir drengjnnum min- um. Þeir verða ekki i vandræðum með húsnæði um sinn, ha, ha.“ Hann tók ekki eftir bræðrunum, fyrr en hann hafði lokið setning- unni, en þegar hnnn sá þá, kom hann strax fram og sagði með þjósti: ,.Hvað viljið þið?“ „Örstutt samtal, þakka þér fyrir.“ „Talið bara, verið fljótir." „Ekki hérna, komdu niður." Hann fór með þeim niður og lok- aði öllum hurðum á eftir sér. „Þú skuldar okkur peninga,“ sagði cldri bróðirinn, þegar niður var fcomið. „Þið fáið enga peninga hér. Komið ykkur burtu, áður en lögreglan finn- ur ykkur.“ „Þú verður að borga okkur.“ „Ég á enga peninga, og komið ykkur nú út.“ „Við förum ekki peningalausir." „Ég held, að heppilegra sé fyrir ykkur að fara strax, svo að ég þitrfi ekki að hjálpa ykkur,“ sagði maður- inn ógnandi röddu. „Okkur vantar peninga.“ „Þú hefur vist ekki skilið orð mín,“ sagði húsbóndinn, og um leið rauk hann að eldri bróðurnum og sló hann f anditið, tók hann síðan fangbrögðum og þjarmaði að hon- um á gólfinu. Til þessa hafði yngri bróðirinn bara verið áhorfandi, en þegar hann sá, hvernig ástatt var fyrir bróðiir sinum, þreif hann stóran skiptilykil, sem var þarna á borði, og sló af alefli í höfuð manninum, með þeim afleiðingum, að sá valt á bakið og gaf frá sér sérkennilegt hrygluhljóð, en lá siðan með opin augu, hreyfingarlaus. Eldri bróðirinn fór í jakkavasa hans og tók þar veski. Síðan hlupu þeir út í bil og óku af stað. „Djöfuls kvikindi getur einn mað- ur verið. Þetta var mátulegt á hann. Hann skammast sín kannski, þegar hann rankar við,“ sagði eldri bróð- irinn og nuddaði hökuna. „Ef hann rankar við,“ svaraði hinn — með kviðahreim. „Ekki kviða neinu. Nú ökum við á Selfoss og athugum okkar gang.“ „En lögreglan?“ „Hún finnur okkur ekki. Vitlaus nöfn og heimilisföng, hvað ætli hún finni. En heyrðu, ég stanza hérna við Árbæ, við skulum sjá í veskið. Gáðu.“ Yngri bróðirinn gáði, en fann litið. „. . . Það er tómt, maður, tveir tíkallar og miðafjandi.“ „Hvað segir þú, maður. Eragir peningar? Láttu mig sjá.“ Hann stöðvaði bilinn og grams- aði ákafur i veskinu. Að síðustu hélt hann á litlum, hvítum miða og las: María—Keflavik—4% i nótt. Endurtaktu framkvæmdir. Hann sneri miðanum við og sá, að þetta var nafnspjald. Furðu lostinn las hann nafnið og sagði: „Pabbi. — Ég trúi þessu ekkil Ég trúi þessu ekki.“ ÓIi Ágústsson.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.