Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.12.2009, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 14.12.2009, Qupperneq 2
2 14. desember 2009 MÁNUDAGUR STJÓRNMÁL Jón Bjarnason, sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur beitt sér gegn sameiningu sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðuneytisins og iðnaðarráðuneyt- isins. Samkvæmt heimildarmönn- um Fréttablaðsins, úr þingliðum beggja stjórnarflokka, hefur hann reynt að torvelda vinnu við verk- efnið, meðal annars með því að neita að hitta embættismenn sem starfa að sameiningunni. Kveðið er á um sameiningu ráðuneytanna í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í atvinnuvega- ráðuneyti. Samhliða henni á að færa rannsókir, mótun nýtinga- stefnu og ráðgjöf vegna auðlinda til umhverfisráðuneytisins, sem við það verður umhverfis- og auð- lindaráðuneyti. Í þingmálaskrá ríkisstjórnar- innar er gert ráð fyrir að frum- varp um nauðsynlegar lagabreyt- ingar vegna sameiningarinnar og tilfærslu verkefna verði lagt fram nú á haustþingi. Það hefur ekki enn verið gert en samkvæmt heimildum blaðsins er enn stefnt að því. Ekki hefur verið ákveðið hve- nær af sameiningunni verður en bæði hefur verið rætt um mitt næsta ár og ársbyrjun 2011. Viðmælendur Fréttablaðsins segja Jón leggjast bæði gegn sam- einingu ráðuneytanna og flutningi verkefna er lúta að auðlindamál- um úr sjávarútvegs- og landbún- aðarráðuneytinu í umhverfis- ráðuneytið. Veigamest er færsla Hafrannsóknarstofnunarinnar á milli ráðuneyta. Í stefnuskrá Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs fyrir síðustu kosning- ar var fjallað um að auka beri veg auðlindamála í umhverfisráðu- neytinu. Viðmælendur Fréttablaðsins úr stjórnsýslunni furða sig á hátta- lagi Jóns í ljósi þess að breyt- ingarnar eru á stefnuskrá ríkis- stjórnarinnar og njóta þar með samþykktar hans eigin þing- flokks. Þingmenn úr VG sem rætt var við sögðu málið njóta stuðnings meirihluta þingmanna flokksins og almennur vilji væri fyrir því að af breytingunum yrði. Jóni hefði verið gerð grein fyrir því. Ekki náðist í Jón Bjarnason. bjorn@frettabladid.is Jón berst gegn sam- einingu ráðuneyta Jón Bjarnason er andvígur sameiningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyt- isins og iðnaðarráðuneytisins. Ríkisstjórnin hvikar ekki frá áformum þar um. Í ÞINGINU Þrátt fyrir óánægju Jóns Bjarnasonar með fyrirhugaða sameiningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og iðnaðarráðuneytisins er hvergi hvikað frá verkefninu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Toggi, kemur þetta við hjartað í þér? „Ja, þetta kemur allavega við veskið á mér.“ Tónlistarmaðurinn Toggi er ekki par sáttur við það hvað hann fær snautlega greiðslu frá STEF-i þetta árið, þrátt fyrir að hafa samið eitt allra vinsælasta lag síðasta árs: Þú komst við hjartað í mér. UTANRÍKISMÁL Utanríkisráðuneyt- ið hefur selt sendiherrabústað- inn í New York fyrir 550 milljón- ir íslenskra króna. Þetta kemur fram í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2010, en önnur umræða um það á að hefjast í dag. Fjárlaganefnd leggur til að 27 milljónum króna verði varið í leigu á sendiherrabústað í New York á næsta ári. Utanríkisráðu- neytið gerir ráð fyrir að húsnæðið verði leigt frá næstu áramótum. Utanríkisráðuneytið gerir engu síður ráð fyrir að fest verði kaup á sendiherrabústað í New York síðar en segir ekki til um hvenær af því gæti orðið. - jhh Sendiherrahús í New York: Selt fyrir 550 milljónir króna ÍTALÍA Silvio Berlusconi, forsætis- ráðherra Ítalíu, var laminn í and- litið með barefli á fundi sem hann hélt fyrir stuðningsmenn sína í Mílanó í gær. Ítalskur maður, hinn 42 ára gamli Massimo Tart- aglia, var handtekinn, grunaður um verknaðinn. Tvær tennur brotnuðu í Berl- usconi, sem auk þess skarst á vör og brákaðist á nefi. Í gærkvöldi var talið að hann myndi eyða nótt- inni á sjúkrahúsi. Aðstoðarmenn Berlusconis hjálpuðu honum á fætur og inn í bíl, en hann féll í jörðina við högg- ið. Stuttu síðar reyndi hann að klifra upp á þakið á bílnum til að sýna fram á að hann væri ómeidd- ur, segir á fréttavef BBC. - kg Forsætisráðherra Ítalíu: Berlusconi lam- inn í jörðina LAMINN Berlusconi var blóðugur í and- liti eftir atvikið. NORDICPHOTOS/AFP LÖGREGLUMÁL Rannsókn SFO, efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar, á Kaupþingi í Bretlandi er sú umfangsmesta sem ráðist hefur verið í vegna íslenskra fyrirtækja. Rannsókn- in beinist meðal annars að milli- færslum frá Singer & Friedland- er, dótturfélagi Kaupþings, sem og lánveitingum til þekktra við- skiptavina. Stjórnarmenn Singer & Fri- edlander hafa þegar leitað til breska lögfræðingsins Ians Burt- on sem sérhæfir sig í fjársvika- málum, að sögn breskra dag- blaða. Þriggja manna teymi á vegum SFO var hér á landi í okt- óber og skiptist á upplýsingum og gögnum við starfsmenn embættis sérstaks saksóknara auk þess að njóta liðsinnis Evu Joly. - ghh Rannsókn SFO á Kaupþingi: Stærsta á hér- lendu fyrirtæki LÖGREGLUMÁL Sérsveitarmenn ríkislögreglustjóra voru kallaðir til Reykjanesbæjar í gærmorgun eftir að tilkynnt var um að menn vopnaðir haglabyssu hefðu haft í hótunum við aðra í íbúðarhúsi í bænum. Tildrögin voru þau að tveir menn bönkuðu upp á í húsinu á tíunda tímanum vopnaðir hafnaboltakylfu. Þeir töldu sig eiga sitthvað vantalað við tvo menn sem þar voru, eftir slagsmál sem brotist höfðu út nóttina áður, og höfðu í hótunum við þá vegna þess. Tvímenningarnir í húsinu brugðust ókvæða við hót- ununum og dró annar þeirra upp haglabyssu og mið- aði á aðkomumennina, sem sáu sér þann kost vænstan að flýja af vettvangi og hringja í kjölfarið á lögreglu. Lögreglan á Suðurnesjum kom á staðinn og naut liðsinnis fjögurra vopnaðra sérsveitarmanna sem umkringdu húsið og lokuðu götum í grenndinni. Eftir hálfrar klukkustundar umsátur um húsið náðist síma- samband við annan mannanna í húsinu. Sá var þá hinn rólegasti og samþykktu mennirnir báðir að gefa sig þegar fram. Þeir voru í kjölfarið handteknir. Haglabyssan fannst við leit í húsinu og reyndist hún óhlaðin. Engin skotfæri fundust á staðnum. Mennirnir fjórir eru allir um þrítugt og hafa komið við sögu lögreglu áður. - sh Hótuðu mönnum sem reyndust vopnaðir og hringdu þá hræddir á lögreglu: Setið um vopnaða menn í Keflavík SÉRSVEITARMENN Sérsveitarmennirnir umkringdu húsið og skapaðist umsátursástand í hálfa klukkustund. Myndin er úr safni. STJÓRNSÝSLA Davíð Þór Björgvins- son, dómari við Mannréttindadóm- stól Evrópu í Strassborg, telur ekki tilefni til að efast um að Icesave- frumvarpið standist stjórnarskrá. Er hann raunar þeirrar skoðunar að ástæðulaust sé að tekin verði saman ítarleg lögfræðileg álitsgerð um málið. Davíð er í hópi þeirra lögspekinga sem fjárlaganefnd Alþingis hefur, að ósk stjórnarandstæðinga, beðið um að skrifa lögfræðiálit um hvort Icesave standist ákvæði stjórnar- skrár. Snýst álitaefnið um hvort í frumvarpinu felist framsal dóms- valds og þar með brot á stjórnar- skránni. Í bréfi t i l þingsins segir Davíð að reynist skilningur hans á frumvarpinu réttur geti hann ekki séð að um framsal dóms- valds geti verið að ræða, sem fari gegn stjórn- arskrá. „Sýnist raunar þetta atriði það einfalt [að] ekki sé tilefni til að taka saman ítar- lega lögfræðilega álitsgerð um það sérstaklega,“ segir í bréfinu. Að því sögðu kveðst Davíð ekki geta tekið að sér að vinna umbeð- ið lögfræðiálit vegna starfa sinna í Strassborg. Guðrún Erlendsdóttir og Pétur Kr. Hafstein, fyrrverandi hæsta- réttardómarar og Skúli Magnússon, ritari EFTA-dómstólsins í Lúxem- borg, hafa einnig beðist undan verk- efninu. Lagaprófessorarnir Björg Thor- arensen og Eiríkur Tómasson vinna hins vegar að álitsgerð um málið, að ósk meirihluta fjárlaganefndar. Stjórnarandstæðingar telja þau van- hæf þar sem þau hafa áður komið fyrir nefndina og látið í ljós álit sitt munnlega. Munu þau þeirra skoð- unar að Icesave-frumvarpið brjóti ekki í bága við stjórnarskrá. - bþs Davíð Þór Björgvinsson efast ekki um að Icesave-frumvarpið standist stjórnarskrá: Ítarleg lögfræðileg álitsgerð óþörf DAVÍÐ ÞÓR BJÖRGVINSSON BANDARÍKIN Stórfyrirtækið Gilette tilkynnti á laugardag að það hygð- ist draga úr mikilvægi kylfings- ins Tiger Woods í markaðsher- ferðum sínum. Þetta gerir fyrirtækið, að sögn, til að gefa kylfingn- um svigrúm til að ráða fram úr vandamálum í einkalífi sínu. Eins og kunn- ugt er hefur hann tilkynnt að hann muni ekki spila á golfmótum um óákveðinn tíma eftir að upp komst um framhjáhald hans. Steve Williams, kylfusveinn Tig- ers, hefur í fyrsta skipti tjáð sig við fjölmiðla um málið. Hann seg- ist ekkert hafa vitað af fjölþreifni Tigers. Ef svo væri kæmi hann hreint fram og segði frá því. - shá Vandræði Tiger Woods: Gillette dregur sig frá Tiger TIGER WOODS UMHVERFISMÁL Áætlað er að mörg hundruð þúsund manns hafi mætt á meira en 3.200 loftslags- kertavökur í 139 löndum í gær. Meira en ellefu milljónir manna um allan heim hafa skrifað undir yfirlýsingu um að þeir séu tilbún- ir fyrir raunverulegar aðgerðir gegn loftslagsbreytingum. Á Íslandi voru haldnar kerta- samkomur í Stykkishólmi, Borg- arnesi og Reykjavík. - shá Loftslagsmál: Fjölmenni á kertavökum SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.