Fréttablaðið - 14.12.2009, Page 4

Fréttablaðið - 14.12.2009, Page 4
4 14. desember 2009 MÁNUDAGUR Óhætt er að segja að loftslagsráð- stefna Sameinuðu þjóðanna hafi heltekið Kaupmannahöfn. Hvert sem litið er má sjá merki henn- ar; auglýsingar, áköll eða fræðslu- bása. Þá er borgin full af fólki sem er gagngert komið vegna ráðstefn- unnar og má ýmist þekkja af skjala- möppum og ráðstefnuskilríkjum fulltrúanna, eða svörtum klæðum og klútum mótmælenda. Á laugardaginn gengu síðan 100 þúsund manns fylktu liði frá Frið- riksborg að Bella Center, hvar ráð- stefnan er haldin, til að krefjast aðgerða nú þegar. Fólk veifaði mót- mælaspjöldum og mátti sjá mörg slagorð, til að mynda: „Ef loftslag- ið væri banki væri búið að bjarga því.“ Þegar gangan var komin af stað tók hópur aðgerðasinna sig saman í aðgerðum. Steinum var kastað og háreysti viðhöfð. Lögreglan var búin undir þetta og hafði gríðar- lega fjölmennt lið á svæðinu. Hún umkringdi hópinn á bílum og réð- ist síðan að honum og handtók hvern sem fyrir þeim varð. Þegar upp var staðið höfðu 968 manns verið handteknir. Þeim var öllum sleppt nema tveimur, sem enn eru í haldi. Sjá mátti fólk sitjandi á miðri Amagerbrogade, bak í bak, hendur festar aftur fyrir bak með benslum, sumir sátu þannig tím- unum saman í kuldanum. Í gær var síðan farin önnur ganga, mun fámennari, þegar aðgerðasinnar fylktu liði. Eftir að lögreglan fann stein og valslöngvu á einum mót- mælenda stöðvaði hún gönguna og handtók 239 manns og hefur því handtekið rúmlega tólf hundruð manns um helgina. Lögreglan hefur gengið mjög hart fram í aðgerðum sínum og handtek- ur hvern sem fyrir verður þegar skipunin hefur verið gefin. Amn- esty International hefur gagnrýnt framferði hennar og segir tölur handtekinna tala sínu máli. Sam- tökin telja að fara verði fram rann- sókn á atburðum liðinna daga. ÚTGÁFA Aldrei hafa verið prentaðar fleiri bækur hér- lendis en nú fyrir jólin að því er kemur fram í könn- un Bókasambands Íslands. Um áttatíu prósent af öllum þeim bókartitlum sem birtust í Bókatíðindum Félags íslenskra bókaútgefenda eru prentuð hérlend- is. Bókasamband Íslands hefur gert könnun á prents- tað íslenskra bóka sem getið er í Bókatíðindum frá árinu 1998. Á þessu ári eru miklu fleiri titlar prent- aðir innanlands en í fyrra og er aukningin um 26 prósent. Heildarfjöldi bókatitla hefur dregist lítilega saman á milli ára. Þeir eru 673 í Bókatíðindunum í ár en voru 710 árið 2008 en voru flestir árið 2007 eða 780. Fæstir titlar voru prentaðir hér á landi árið 2000 eða aðeins um þriðjungur útgáfunnar. Á þessu ári eru 529 titlar prentaðir hér, í Asíu voru þeir 63 en í Evrópu 81. Árið 2008 voru 377 titlar prentaðir hér og 229 í Evrópu. - shá FULLT HÚS JÓLAGJAFA 39.900 kr. Mikill meirihluti íslenskra bóka er prentaður á Íslandi fyrir þessi jól: 673 íslenskar bækur í flóðinu ´98-´00 ´01-03 ´04-06 ´07-´09 90 80 70 60 50 40 30 20 10 0 Ísland Útlönd Hlutfall prentunar íslenskra bóka 1998-2009 % VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 10° 0° 1° 3° 3° 2° 0° 2° 3° 23° 5° 23° 9° 29° 1° 1° 13° 2° Á MORGUN Mjög hæg vestlæg eða breytileg átt. MIÐVIKUDAGUR Víðast hægviðri. 8 9 7 6 6 6 4 4 6 4 3 8 6 7 5 2 2 2 2 1 1 4 5 6 3 2 2 4 5 3 1 0 FLOTT VEÐUR Í VIKUNNI Það verður afskap- lega gott veður út vinnuvikuna, yfi rleitt hæglætis veður og þurrviðri. Í dag verður fremur milt um allt land en síðan fer kóln- andi eftir því sem líður á vikuna og á fi mmtudag verður hitinn víða í kring- um frostmark. Elísabet Margeirsdóttir Veður- fréttamaður Loftlagsráðstefnan í Kaupmannahöfn KOLBEINN ÓTTARSSON PROPPÉ skrifar frá Kaupmannahöfn kolbeinn@frettabladid.is 100 þúsund gengu til bjargar loftslagi Gríðarlegur viðbúnaður er vegna loftslagsráðstefnunnar í Kaupmannahöfn. Lögreglan hefur handtekið tólf hundruð manns í mótmælum helgarinnar. Stærsta mótmælaganga í sögu borgarinnar var farin á laugardag. Saufatu Sopoanga, forsætisráð- herra Tuvalu, bað þingfulltrúa í Kaupmannahöfn griða fyrir land sitt. Samkomulag yrði að nást um að stöðva hlýnun jarðar. Að öðrum kosti væri úti um heim- kynni hans. Tuvalu-eyjar eru kóralrif sem liggja mjög lágt og minnsta hækkun á yfirborði sjávar hefur áhrif á þau tíu þúsund manna sem byggja eyjarnar. Sopoanga hefur undanfarin ár hvatt heimsbyggð- ina til dáða í loftslagsmálum. Hann hefur meðal annars kallað hlýnun jarðar hægfara og slæg hryðjuverk sem verði að stöðva. Forsætisráðherra Tuvalu: Bjargið þið heimili mínu Fulltrúar á loftslagsráðstefnunni meðtóku sumir hverjir boðskap mótmælenda á laugardag, en þá lauk 100 þúsund manna göngu fyrir utan ráðstefnuhöllina. Þeir sem ekki voru uppteknir af að hlýða á ræður eða reyna að ná samningum, fylgdust með mót- mælendum í sjónvarpinu. Fjöldinn var gríðarlegur fyrir utan höllina, en sárafáir ráð- stefnugestir lögðu leið sína út fyrir hússins dyr til að hlýða á boðskap fólksins. Með nokkurri kaldhæðni má segja að helstu áhrifin hafi verið að leiðin í rúturnar frá ráðstefnuhöllinni lengdist þar sem mótmælendur lokuðu svæðinu í kringum húsið. Þingfulltrúar í Kaupmannahöfn: Fáir hlustuðu á boðskapinn ATVINNUMÁL Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, var kjörinn formaður Framtakssjóðs Íslands á fyrsta stjórnarfundi hans sem hald- inn var um helgina. Fram- takssjóðurinn er fjárfesting- arfélag sem sextán lífeyr- issjóðir hafa myndað. Ragnar Önundarson, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna, var kjörinn varaformaður. Stofnendur hafa skuldbundið sig til að leggja nýja fjárfesting- arsjóðnum til um þrjátíu milljarða króna hlutafé. Sjóðnum er ætlað að taka þátt í og móta fjárhags- lega og rekstrarlega endurreisn íslensks atvinnulífs í kjölfar falls fjármálakerfisins. - shá Framtakssjóður Íslands: Ágúst Einarsson kosinn formaður ÁGÚST EINARSSON LANDBÚNAÐUR Markaðsátak á næsta ári undir heitinu Hesta- vika á Íslandi að vetri er meðal tillagna sem kynntar eru í nýrri skýrslu nefndar um markaðs- setningu íslenska hestsins erlendis. Skýrslan var kynnt fyrir helgi, en nefndin hefur starfað á vegum sjávarútvegs- og landsbúnaðarráðuneytisins. Aðrar tillögur sem koma fram í skýrslunni eru meðal annars aukið framboð á fjölþættum hestasýningum fyrir ferðamenn og átak til að fá viðurkenningu á hestaíþróttum á íslenskum hest- um sem ólympískri íþrótt. - kg Kynning á íslenska hestinum: Leggja til hesta- viku á Íslandi ÍRAN Ali Khamenei, erkiklerk- ur og æðsti leiðtogi Írans, sak- aði í gær stjórnarandstöðuna í Íran um að hafa brjóta lög með því að sverta minningu Ruhollah Khomeini erkiklerks, stofnanda íslamska lýðveldisins í Íran. Khameini vísaði í atvik síðan fyrir viku, þegar sjónvarps- myndir náðust af því þegar mynd af Khomeini var rifin í sundur. Atvikið var í kjölfarið sýnt í rík- issjónvarpi landsins. Stjórnarandstaðan heldur því fram að atvikið hafi verið svið- sett og neitar allri aðild að því, Stjórnarandstaðan hefur neitað að viðurkenna úrslit forsetakosn- inganna í júní, þegar Mahmoud Ahmadinejad var endurkjörinn forseti landsins. - kg Æðsti leiðtogi Írans: Sakar andstöð- una um lögbrot ÁTÖK Í MÓTMÆLAGÖNGU Talið er að hátt í hundrað þúsund manns hafi tekið þátt í mótmælagöngunni í Kaupmannahöfn um helgina. Til átaka kom eftir að aðgerðarsinnar köstuðu steinum og handtók lögreglan um þúsund manns. NORDICPHOTOS/AFP GENGIÐ 11.12.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 235,5121 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 123,86 124,46 201,83 202,81 182,77 183,79 24,556 24,700 21,621 21,749 17,509 17,611 1,3919 1,4001 196,98 198,16 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.