Fréttablaðið - 14.12.2009, Page 8

Fréttablaðið - 14.12.2009, Page 8
8 14. desember 2009 MÁNUDAGUR SVEITARFÉLÖG Um helmingur sveit- arfélaga á Íslandi, 36 af 77, fær þrjátíu prósent eða meira af tekj- um sínum frá Jöfnunarsjóði sveit- arfélaga. Ljóst er að slík sveitar- félög ættu erfitt uppdráttar án styrksins. Tvö sveitarfélög fá meira en helming tekna sinna úr sjóðnum; Skagabyggð er með 59,4 prósent og Bæjarhreppur með 59,7 prósent. Kristján L. Möller samgöngu- ráðherra segir að ljóst sé að mörg sveitarfélög séu of lítil til að standa undir sér. Hér á landi séu sannar- lega of mörg og of smá sveitarfé- lög. Vinna var langt komin við frum- varp um að hækka lágmarks íbúa- fjölda sveitarfélaga úr 50 í 1.000 þegar hrunið skall á. Síðan hefur lítill tími gefist til að sinna verk- efninu. Ráðherra hefur þó fund- að með sveitarstjórnarmönnum víða um land. Hann segir að ósk hafi borist um að vinna öðruvísi að málum þannig að losnað verði við kosningar. Á morgun verður verkefni ýtt úr vör á Egilsstöðum, en þá verða kannaðir kostir og gallar þess að gera allt Austurland að einu sveit- arfélagi. Kristján segir að þannig sé ætlunin að vinna um allt land og leggja síðan tillögu fyrir Alþingi um skipan mála. „Ég sé fyrir mér að um þarnæstu sveitarstjórnar- kosningar, árið 2014, verði orðin gjörbreytt mynd á sveitarfélög- um landsins. Þau þarf að stækka og efla til að gera þau í stakk búin til að taka á móti fleiri verkefnum sem best er að sinna í nærþjónust- unni.“ Sigrún Björk Jakobsdóttir, fyrr- verandi bæjarstjóri á Akureyri, flutti erindi á fjármálastefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga í haust. Þar tilgreindi hún að sam- eining sveitarfélaga gæti skilað eins til tveggja prósenta hagræð- ingu. Heildarvelta sveitarfélaga er um 160 milljarðar króna á ári og hagræðingin myndi því spara einn til þrjá milljarða. „Þessari tölu hefur verið fleygt fram um hag- ræðingu sveitarfélaga. Eins pró- sents hagræðingarkrafa er ekki óeðlileg við sameiningu,“ segir Sigrún Björk. Til samanburðar má nefna að aukaframlag úr Jöfnun- arsjóði nam einum milljarði króna í ár. kolbeinn@frettabladid.is Rjómi allra landsmanna  Fjöldi sveitarfélaga lifir ekki án styrkja Um helmingur sveitarfélaga fær yfir þrjátíu prósent tekna sinna frá Jöfnunar- sjóði sveitarfélaga. Hæst er hlutfallið 60 prósent. Sameining gæti skilað 1,5 til 3 milljörðum króna. Ráðherra kynnir sameiningarvinnu á morgun. SIGRÚN BJÖRK JAKOBSDÓTTIR KRISTJÁN L. MÖLLER ÍSLAND Að beiðni Austfirðinga verða kostir þess og gallar að gera Austurland allt að einu sveitarfélagi kannaðir. Ætlunin er að skoða sameiningu eftir óskum íbúa um allt land en ekki láta eina ákveðna íbúatölu ráða. HLUTFALL FRAMLAGS Fjöldi Íbúar Framlög Jöfnunarsjóðs innan við 20,2% tekna 25 269.061 Framlög Jöfnunarsjóðs 20,8% til 34,7% tekna 26 38.069 Framlög Jöfnunarsjóðs 35,1% tekna eða meira 26 12.573 TÖLVUR Vinna er hafin á openoff- ice.is við að þýða skrifstofuforrit- in vinsælu OpenOffice.org yfir á íslensku. Þessi forrit samanstanda af ýmsum algengum gerðum hug- búnaðar, svo sem ritvinnslu, töflureikni og framsetningarfor- riti, til dæmis fyrir glærur. Einnig fylgir í pakkanum teikniforrit og hugbúnaður til uppsetningar á gagnagrunnum. Þá er þar ritill til að skrifa stærð- fræðiformúlur. Allir sem vilja geta lagt sitt af mörkum við þýðingarnar og hug- búnaðurinn er ókeypis. - kóþ Ókeypis hugbúnaður: Skrifstofuforrit þýdd á íslensku NEYTENDUR Neytendasamtökin eru andvíg frumvarpi ríkisstjórnarinnar um umhverfis- og auðlindaskatta og hvetja til þess að það verði endurskoðað. Þetta kemur fram í umsögn samtakanna um frumvarpið. Samtökin veittu einnig umsögn um frumvarp um ráðstafanir í skattamálum og leggjast gegn auk- inni skattlagningu á neysluvörur almennt. Þau segja ljóst að slíkar skattahækkanir fari beint út í verð- lagið og leiði til meiri verðbólgu og þar með hækk- unar á höfuðstóli og greiðslubyrði verðtryggðra lána. Í umsögnum sínum segja Neytendasamtökin að aukin skattlagning á lífsnauðsynlegar vörur eins og hita og rafmagn muni bitna mikið á neytend- um, ekki aðeins vegna hækkaðs verðs heldur einnig vegna þyngri greiðslubyrði verðtryggðra lána þar sem skattarnir muni hafa áhrif á neysluvísitölu. Þar segir einnig að álögur á bíla og bílavörur séu komn- ar langt úr hófi fram og enn einni hækkuninni á áfengi og tóbak sé ekki á bætandi. Það sama megi segja um hækkun virðisaukaskatts og hækkun á almennu skattþrepi. „Því er mótmælt að gripið sé nú til aðgerða sem koma með tvöföldum þunga á flest heimili. Heimilin hafa einfaldlega ekki efni á slíkum álög- um í ljósi efnahagsástandsins,“ segir að lokum. - þeb Neytendasamtökin gefa umsagnir um skattafrumvörp ríkisstjórnarinnar: Mótmæla auknum sköttum BENSÍNSTÖÐ Neytendasamtökin segja álögur á bíla og bílavör- ur komnar langt úr hófi fram. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HEILBRIGÐISMÁL Ný sending bólu- efnis gegn svínaflensu berst heilsugæslustöðvum um land allt næstkomandi mánudag og þriðju- dag. Þá verður unnt að taka þráð- inn upp að nýju og bólusetja fólk sem skráð hefur sig á biðlista, að því er fram kemur í frétt frá sótt- varnalækni. Að mati hans hafa um sextíu þúsund manns sýkst af inflúensunni frá því að faraldur- inn hófst í vor. Bólusetning hefst á nýjan leik miðvikudaginn 16. desember og þá ganga þeir fyrir sem hafa skráð sig á biðlista. Tekið er við nýjum pöntunum vegna bólusetningar frá og með mánudegi 14. desember. Bóluefni verður næst dreift um landið 6. janúar 2010 og verður tekið við pöntunum í þá sendingu eftir áramótin. Sóttvarnalæknir beinir því til heilsugæslustöðva að gefa skýrar upplýsingar á heima- síðum sínum, og við símsvörun á hverjum stað, um gang bólusetn- ingarinnar og helstu tímasetn- ingar. Staða mála er mismunandi á heilsugæslustöðvunum. Þannig verður unnt á sumum heilsugæslu- stöðvum að bólusetja fleiri núna í desember en eru þar á biðlista en á öðrum heilsugæslustöðvum dugar ný sending bóluefnis nú ekki til að bólusetja alla þá sem hafa skráð sig í bólusetningu. - jss BÓLUSETNING Nýjar birgðir af bóluefni gegn svínaflensu koma eftir helgina. Sextíu þúsund Íslendingar hafa fengið svínaflensu: Bóluefni væntanlegt í vikunni 1. Hvers lensk er arkitektastof- an sem vann hönnunarsam- keppni um skipulag Gömlu hafnarinnar í Reykjavík? 2. Hvaða auðkýfingur kemur að útgáfu ljósmyndabókar Páls Stefánssonar; Afríka, framtíð fótboltans? 3. Hver skrifaði ævisögu söngv- arans Vilhjálms Vilhjálmssonar sem ber nafnið Söknuður? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 38 VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.