Fréttablaðið - 14.12.2009, Side 12

Fréttablaðið - 14.12.2009, Side 12
 14. desember 2009 MÁNUDAGUR Gott í gogginn fyrir Ringjara. Við sendum tilboð beint í símann. Tilboð dagsins: Gott 1 Gott 2 MMS tilboð hjá Ring – ekki klippa þennan miða út MMS tilboð hjá Ring – ekki klippa þennan miða út 50% afsláttur af lítilli pizzu með 2 áleggstegundum. 50% afsláttur af matseðli. Gos er ekki innifalið í tilboði Gildir í dag mánudag Gildir í dag mánudag Dominos Serrano E N N E M M / S ÍA / N M 4 0 2 7 0 50% afsláttur Lítil pizza m. 2 áleggsteg. 50% afsláttur af máltíð fyrir einn Ringjarar fara inn á ring.is og óska eftir að fá MMS með tilboðum send í símann. FÓLK Fram undan er aðalvertíð ársins hjá Múlalundi í möppuframleiðslu, en þar eru framleiddar bókhaldsmöppur sem heita því rammíslenska nafni EGLA. Ef ekki selst vel af möppum í janúar má segja að árið sé ekki gott á vinnustofunni. Með því að kaupa möppurnar er verið að styrkja einstakling til betri framtíðar, því þær skapa vinnu fyrir fatlað fólk. Múlalund- ur var stofnaður árið 1959 og fagnar því hálfrar aldar afmæli sínu í ár. Þar vinnur fólk sem hefur einhvers konar fötlun, líkamlega eða andlega, en þó ekki blindir og heyrnarlausir. Glatt var á hjalla í Múlalundi þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði í gær. Tilefnið var enda ærið, jólamatur var á boðstólum og allir í hátíðarskapi. - kóp Mikið að gera í möppuframleiðslu á vinnustofunni á Múlalundi: Möppurnar seljast í janúar GÓÐA VEISLU GJÖRA SKAL Jólamaturinn fór vel í starfsfólk Múlalundar enda girnilegur á að líta. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SAMGÖNGUR Ekki hefur enn verið gengið frá því hvaða fyrirtæki eiga að nota fyrirhugaða samgöngu- miðstöð í Vatnsmýri. Á næstunni verður rætt við flugfélög, veitinga- menn og þá sem reka hópferðabíla um þetta. Þangað til er ekki hægt að segja til um hvað miðstöðin verður stór. Eitt af viðfangsefnum sam- gönguyfirvalda er svo að finna út úr því hvernig miðstöðin geti borg- að sig á tuttugu til þrjátíu árum, eins og væntanlegir lánveitendur verkefnisins reikna með, ef flug- rekstri verður úthýst úr Vatns- mýri 2016, eins og Reykjavíkur- borg gerir ráð fyrir. Nú hefur verið horfið frá hug- myndum, sem rætt var um í seinni hluta nóvember, um að endur- byggja gömlu flugstöðina. Samgönguráðherra sagði á Alþingi á mánudag að lán til fram- kvæmda frá lífeyrissjóðunum yrði til allt að 35 ára. Það yrði greitt með leigutekjum og innritunar- gjöldum farþega, tvö hundruð til 250 krónum á mann. Samkvæmt aðalskipulagi Reykjavíkur á önnur stóra flug- brautin að hverfa árið 2016, en ein verður eftir. Hjá Flugstoðum er gengið út frá því að ekki sé hægt að reka flugvöll í Vatnsmýri með einni braut. Ólafur Sveinsson, stjórnarfor- maður Flugstoða og verkefnis- stjóri samgöngumiðstöðvar, getur ekki svarað því að svo stöddu hvernig þetta viðskiptamódel, til allt að 35 ára stenst, fyrst hætta á með flugrekstur í Vatnsmýri 2016. Hann vonast til að fá niðurstöðu í málið innan fárra daga. Þá sé það ekki hans að segja til um framtíð Umferðarmiðstöðvar, BSÍ, spurður hvort til standi að starfsemin þar færist í fyrirhugaða miðstöð. „Við eigum eftir að fara í gegn- um allt þetta með þeim rekstrarað- ilum sem myndu vera í samgöngu- miðstöð,“ segir Ólafur. Heyrst hafa hugmyndir um flug- og samgöngumiðstöðvar í Vatns- mýri frá 1.500 fermetrum og allt upp í tíu þúsund fermetra. Júlíus Vífill Ingvarsson, for- maður skipulagsráðs, getur heldur engu svarað um stærð miðstöðv- arinnar, enda hafi samgöngu- ráðuneytið ekki skilað formleg- um tillögum um það. Hún verði þó „verulega minni“ en áður var áætlað. Spurður hvort ráð sé gert fyrir því að umferðarmiðstöðin víki, segir Júlíus Vífill að boltinn sé hjá ráðuneytinu: „Það er ráðuneytis- ins að semja við þá aðila sem þurfa að vera með í samgöngumiðstöð- inni.“ klemens@frettabladid.is Samgöngumiðstöð enn í mestri óvissu Samgöngumiðstöð í Vatnsmýri á að borga sig á tuttugu til 35 árum með inn- ritunargjöldum farþega. En árið 2016 verður flugrekstri hætt þar, að öðru óbreyttu. Óvíst hvaða fyrirtæki verða í miðstöðinni, og hversu stór hún verður. REYKJAVÍKURFLUGVÖLLUR Fyrir mánaðamót ræddu samgönguráðherra og for- maður skipulagsráðs um að reisa 1.500 fermetra flugstöð í Vatsnmýrinni. Nú er aftur horfið til áforma um samgöngumiðstöð. MYND/LOFTMYNDIR ■ Samgönguyfirvöld ganga út frá því að ekki sé hægt að reka flugvöll í Vatnsmýri með aðeins einni flugbraut. ■ Samkvæmt aðalskipulagi Reykjavíkur á aðeins ein flugbraut að vera eftir á Reykjavíkurflugvelli 2016. ■ Viðskiptamódel samgöngumiðstöðvar gerir ráð fyrir að innritunargjöld og leiga greiði aftur kostnað skattgreiðenda af miðstöðinni á tuttugu til 35 árum. ■ Ekki er víst hvort eða hvaða flugfélög og rútufyrirtæki verða með í sam- göngumiðstöð. Fyrir mánaðamót ræddu ríki og borg um að byggja litla flugstöð vegna þess að fyrirtækin höfðu lítinn áhuga á samgöngumiðstöð. Í STUTTU MÁLI DÓMSMÁL Tvítug kona hefur verið ákærð fyrir inn- brot, þjófnaði og afhendingu fíkniefna í söluskyni. Konan stal, í anddyri Fjölbrautaskólans í Garðabæ í byrjun árs 2008, leðurstígvélum og tösku sem innihélt muni að verðmæti á annað hundrað þúsund króna. Síðar á árinu var hún tekin með kannabisefni og amfetamín heima hjá sér, ætlað til sölu. Þá er konan ákærð fyrir að hafa afhent tæplega tvítugum manni rúmlega þrjú grömm af amfetam- íni í söluskyni. Maðurinn afhenti efnin síðan öðrum manni, einnig í söluskyni. Andvirði efnanna, tuttugu þúsund krónur, hafði ekki fengist greitt. Enn er konan, nú ásamt stúlku og pilti, báðum undir tvítugu, ákærð fyrir innbrot og þjófnaði. Þeim er gefið að sök að hafa í sameiningu brotist inn í þrjú sumarhús í landi Ásatúns í Hrunamanna- hreppi. Þremenningarnir létu greipar sópa í öllum húsun- um. Meðal annars var stolið úr þeim þremur sjón- varpstækjum, mínútugrilli og örbylgjuofni. Einn- ig matvinnsluvél, vöfflujárni og sængurfötum. Loks stálu þremenningarnir frosinni matvöru og vodka- flösku. - jss HÉRAÐSDÓMUR SUÐURLANDS Fólkið var ákært fyrir Héraðs- dómi Suðurlands. Tvítug síbrotakona ákærð ásamt þremur öðrum: Stal og vildi selja fíkniefni

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.