Fréttablaðið - 14.12.2009, Side 14
14 14. desember 2009 MÁNUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Eignarhald fjölmiðla
Í frumvarpi til nýrra laga
um fjölmiðla eru ákvæði
sem tryggja eiga gagnsæi
eignarhalds fjölmiðla. Ná-
kvæmt eignarhald margra
helstu fjölmiðla landsins er
hins vegar nokkurri þoku
hulið. Spilar þar inn í að
hremmingar efnahags- og
viðskiptalífs hafa hrist upp
í eignarhaldi og víða er
leitað fjárfesta.
Í frumvarpi til nýrra fjölmiðla-
laga er kveðið á um að fjölmiðlar
skrái sig hjá Fjölmiðlastofu. Meðal
upplýsinga sem gefa þarf er eign-
arhald miðilsins. Þá kemur fram
að leggja megi allt að 200 þúsund
króna dagsektir á þá sem van-
rækja að afhenda upplýsingar.
Hremmingar sem gengið hafa
hér yfir í efnahagslífinu hafa breytt
stöðu margra stórra fjárfesta og um
leið hefur samdráttur gert rekstr-
arumhverfi fjölmiðla erfitt. Þannig
hefur verið skotið á að samdráttur
tekna fjölmiðla af auglýsingum geti
numið þriðjungi hjá sumum, eða
jafnvel enn meiru hjá öðrum milli
þessa árs og síðasta.
Jón Ásgeir langstærstur
Útefandi Fréttablaðsins, Vísis.is
og eigandi Stöðvar tvö, Bylgjunn-
ar og fleiri útvarpsstöðva er fjöl-
miðlafyrirtækið 365 miðlar. Þar er
Jón Ásgeir Jóhannesson lang-
stærsti eigandinn. Helsta breyting-
in sem orðið hefur á eignarhaldi
félagsins síðustu misseri er að
Fons, eignarhaldsfélag Pálma Har-
aldssonar, hefur horfið úr hópi hlut-
hafa. Ari Edwald, framkvæmda-
stjóri 365, segir að fyrirtækið hafi
ekki gefið upp nákvæma skiptingu
eignarhaldsins. „Það er kannski hjá
okkur eins og hjá Árvakri og ein-
hverjum öðrum einkamiðlum að við
erum í því ferli
að auka hlutafé
og gerjun verið
í hluthafahópn-
um. Hluthafar
hafa orðið gjald-
þrota og einhver
breyting orðið á
hlutum,“ segir
Ari, en telur þó
að á fyrstu mán-
uðum næsta árs
komi myndin til með að skýrast hjá
365 miðlum.
„En við höfum haft áhuga á því
að fá nýja hluthafa að félaginu
en það er hægara um að tala en
í að komast eins og rekstrarskil-
yrði og horfur hafa verið í geiran-
um.“ Hvort og hvenær aðrir koma
að rekstrinum og dreifðara eign-
arhald verði raunhæft segir Ari
að ráðist af því að hópurinn sem
áhuga hafi á starfseminni stækki.
Ari staðfestir þó að eftir gjald-
þrot Fons hafi félag Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar keypt hlut félagsins
í 365 af þrotabúinu, „Kaupandinn
var Rauðsól, en síðan hefur orðið
samruni í félaginu, sem núna er
365 miðlar,“ segir hann og kveður
hlutnum hafa verið miðlað áfram
til annarra hluthafa. Jón Ásgeir
segir Ari hins vegar vera í svip-
aðri stöðu og þrír stærstu hlut-
hafar Morgunblaðsins, með yfir
helmingshlut í
sinni eigu, eða í
félögum honum
nátengdum.
Vitað um þrjá
stærstu
Óskar Magnús-
son útgefandi
Morgunblaðsins
upplýsti nýver-
ið í viðtali við
Fréttablaðið að
smávægilegar breytingar hefðu
orðið á þeim hópi sem áður hafði
komið fram að stæðu að blaðinu.
Félagið sem á Árvakur, útgáfufé-
lag blaðsins, heitir Þórsmörk, en
eignarhald á því félagi segir Óskar
að sé ekki enn að fullu frágengið.
Stærstu hluthafarnir séu eftir sem
áður hann sjálfur, Samherji, sem
Þorsteinn Már Baldvinsson fer
fyrir og svo Guðbjörg Matthías-
dóttir, fjárfestir og eigandi Ísfé-
lagsins í Vestmannaeyjum. Þau
þrjú segir Óskar að fari með yfir
helmingshlut í félaginu.
Þá hefur bæst í hóp annarra
aðstandenda Ásgeir Bolli Krist-
insson, oft kenndur við verslun-
ina Sautján. Meðal annarra hlut-
hafa eru Páll H. Pálsson, forstjóri
útgerðarfélagsins Vísis í Grinda-
vík, Gunnar B. Dungal, fyrrver-
andi eigandi Pennans, og Þorgeir
Baldursson, forstjóri Kvosar, eign-
arhaldsfélags prentsmiðjunnar
Odda.
Ekki leika heldur á lausu upplýs-
ingar um eignarhald á Viðskipta-
blaðinu og hafa raunar verið uppi
vangaveltur þar um allt frá því
skömmu eftir hrun. Eigendaskipti
urðu á blaðinu í nóvemberlok í
fyrra.
Heimildir blaðsins herma
hins vegar að hjá Viðskiptablað-
inu standi vonir til þess að innan
tíðar komist mynd á eigendahóp-
inn og verði þá greint frá samsetn-
ingu hans. Standa eigi þannig að
málum að fleiri smærri fjárfestar
eigi blaðið. Reksturinn sé svo smár
í sniðum að ekki sé þörf á þunga-
vigtarbakhjörlum.
Aukinheldur herma heimildir
Fréttablaðsins að aðstandendur
blaðsins vilji síður tengjast við-
skiptamönnum eða félögum sem
áberandi hafi verið í tengslum við
hrun fjármálakerfisins hér. Þá ætli
þeir sér að vera algjörlega óháð-
ir öðrum fjölmiðlum. Einu tengsl
Viðskiptablaðsins við Morgunblað-
ið munu vera að Viðskiptablaðið er
prentað hjá Landsprenti í Hádeg-
ismóum. Myllusetur, útgáfufélag
Viðskiptablaðsins, var áður skráð
á Harald Johannessen, fyrrver-
andi ritstjóra Viðskiptablaðsins.
Áður en hann tók við því var það
í eigu Exista. Þegar Haraldur réði
sig til starfa á Morgunblaðinu seldi
hann hlut sinn í Myllusetri. Fram-
kvæmdastjóri útgáfufélagsins og
forsvarsmaður nú er Pétur Árni
Jónsson.
Vefmiðlar að mestu opnir
Línur taka heldur að skýrast þegar
horft er til sjónvarpsstöðva ann-
arra en Stöðvar tvö. Ríkisútvarpið
er enda opinbert hlutafélag að fullu
í eigu ríkisins. Og eignarhaldið á
Skjánum, sem meðal annars rekur
Skjá einn hefur legið fyrir um ára-
bil. Sigríður Margrét Oddsdóttir,
framkvæmdastjóri Skjásins, segir
að fjölmiðlafyrirtækið Skjárinn sé
að fullu í eigu Skjámiðla hf., sem
aftur séu að fullu í eigu Skipta hf.
Skipti eiga auk
Skjámiðla, Mílu,
Símann, Já og
fleiri fyrirtæki,
og eru að fullu í
eigu Exista.
Sömuleiðis
liggur nokkuð
ljóst fyrir eign-
arhald á vef-
miðlunum vin-
sælu Pressunni
og Eyjunni.
„Eignarhaldið á Vefpressunni
hefur legið fyrir frá fyrsta degi
og alltaf verið opið,“ segir Björn
Ingi Hrafnsson, ritstjóri Pressun-
ar.is, en útgáfufélagið Vefpressan
er í eigu hans, Arnars Ægissonar
og Salt Investments, fjárfestinga-
félags Róberts Wessmans. Félag
Róberts á fjórðung í Vefpressunni.
Þá er Jón Garðar Hreiðarsson
framkvæmdastjóri og aðaleigandi
vefmiðilsins Eyjunnar og fer með
um þrjá fjórðu eignarhluta félags-
ins. Auk hans eru skráðir eigendur
Birgir Erlendsson, Rúnar Hreins-
son og Pétur Gunnarsson.
Jón Garðar segir hins vegar að
nákvæm skipting liggi ekki fyrir,
enda hafi eignarhlutur í gegn um
tíðina ekki einvörðungu ráðist af
fjárframlagi heldur einnig vinnu-
framlagi. „Við höfum lagt áherslu á
að halda þessu í hópnum sem hefur
búið þetta til, en höfum verið opnir
fyrir að taka fleiri inn,“ segir Jón
Garðar.
SIGRÍÐUR MAR-
GRÉT ODDSDÓTTIR
STÆRSTU EIGENDUR MORGUNBLAÐSINS Þorsteinn Már Baldvinsson hjá Samherja,
Guðbjörg Matthíasdóttir, aðaleigandi Ísfélagsins í Vestmannaeyjum og Óskar Magn-
ússon útgefandi eiga yfir helmingshlut í útgáfufélagi Morgunblaðsins.
FRÉTTABLÖÐ Eignarhald þriggja blaða er ekki að fullu frágengið og liggur því ekki
fyrir hverjir eiga Viðskiptablaðið og þótt stærstu línur liggi fyrir hjá Fréttablaðinu og
Morgunblaðinu, hefur ekki verið gengið frá endanlegri skiptingu milli hluthafa og
gætu enn bæst við nýir eigendur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Umbrot efnahagslífs gera mynd
af eignarhaldi fjölmiðla óskýrari
JÓN ÁSGEIR
JÓHANNESSON
ARI EDWALD
ALÞINGISHÚSIÐ Stefnt var að
því að leggja fram á
haustþinginu
frumvarp
til nýrra
fjölmiðla-
laga. Líklegt
má telja að
lagasetningin
tefjist þar til
eftir áramót.
Fagor þvottavél
1400 snúninga þeytivinda. 6 kg hleðsla.
Tímaseinkun. Stillanleg vinda. 32 cm hurðarop.
89.900
Fagor þvottavél
Reykjavík . Skútuvogi 1 . Sími 562 4011
Akureyri . Draupnisgata 2 . Sími 460 0800
Reyðarfjörður . Nesbraut 9 . Sími 470 2020
Reykjanesbær . Hafnargata 52 . Sími 420 7200
Þeytivinda Jólatilboð
Verð kr. 99.900
Birtíngur, útgáfufélag DV og fjölda tímarita, er
nær alfarið í eigu Hreins Loftssonar lögmanns.
Hann segist vissulega hafa verið tvístígandi við
að láta verulega fjármuni í félagið á þessum
viðsjárverðu tímum.
„Hlutafélag sem heitir Hjálmur ehf. á 98 pró-
sent hlutafjár í Birtíngi og hlutafélag sem heitir
Austursel á 100 prósent hlutafjár í Hjálmi. Ég á
svo Austursel að fullu, þannig að eignarhaldið
er nokkuð skýrt,“ segir Hreinn. Eftir niðurfærslu
hlutafjár fyrir um ári síðan kom félag Hreins með
nýtt hlutafé inn í Hjálm. „Vorið 2008, ef ég man þetta rétt
varð skipting á Baugi. Hjálmur var áður í eigu Baugs, en
færðist yfir til Stoða Invest. Það félag lagði upp laupana
og ég kom inn með með nýtt hlutafé.“
Hreinn segir hins vegar engu að leyna í að aðkoma
hans að fjölmiðlarekstri sé sprottin úr Baugi og hlutafjár-
þátttöku hans í kring um Baug og tengd fyrirtæki. „Ég hef
í mörg ár átt mjög gott samstarf við Jón Ásgeir Jóhannes-
son, Jóhannes Jónsson og fleiri og ekkert launungarmál
er að ég hef átt margháttuð samskipti við aðra hluthafa í
Baugi, stjórnarmenn og framkvæmdastjóra,“ segir Hreinn
og kveðst hvergi skammast sín fyrir þau samskipti. Hann
segir hlutina hafa æxlast þannig að hann sem áhugamað-
ur um fjölmiðla og fyrrverandi blaðamaður hafi
færst yfir í umsýslan tengdri útgáfumálum og
verið í því allt frá árinu 2006. „Sjálfstæðisflokkur-
inn vildi gera mig að útvarpsstjóra á sínum tíma,
árið 1997,“ bendir hann á, til marks um hvernig
hann hafi áður verið orðaður við fjölmiðla.
Hreinn segist svo enn hafa aukið við hlutafé í
félaginu á þessu ári. „Töluverða fjármuni á minn
mælikvarða,“ segir hann og kveðst að auki hafa
gengist í ábyrgðir gagnvart bönkum. Og þótt
hann hafi verið tvístígandi við að leggja svo mikið
undir kveðst Hreinn hafa talið mjög mikilvægt að leita
bæði samkomulags við nýjan banka og birgja og koma
með hlutafé til að halda starfseminni gangandi. „Það er
ekki síst fyrir það að ég tel mjög mikilvægt að hér sé gefin
út fjölbreytt tímaritaflóra og að DV haldi áfram að koma út.
Og svo má ekki gleyma að þetta er yfir 100 manna vinnu-
staður. Við höfum lagst á eitt um að halda þessu gangandi.
Það hefur tekist og farið að ganga mun betur núna en í
hruninu, eða skömmu þar eftir þegar allt hækkaði og allt
varð mjög erfitt. En það hefur tekist að halda þessu á floti
og yfir það versta, en staðan hefur stundum verið þröng.
Auðvitað trúir maður því samt að markaðurinn nái sér á
strik aftur. Þetta verður ábatasamt aftur.“ - óká
BIRTÍNGUR ER NÆR ALVEG Í EIGU HREINS LOFTSSONAR
HREINN LOFTSSON
FRÉTTASKÝRING
ÓLI KRISTJÁN ÁRMANNSSON
oka@frettabladid.is