Fréttablaðið - 14.12.2009, Side 32

Fréttablaðið - 14.12.2009, Side 32
BAKÞANKAR Þórhildar Elínar Elínardóttur 24 14. desember 2009 MÁNUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman HEIMURINN ÞARF STÆRRI HETJUR! FRÁ JERRY BRUCKHEIMER 10. HVER VINNUR! G-FORCE LENDIR Í ELKO 15. DESEMBER SENDU SMS SKEYTIÐ EST VGF Á NÚMERIÐ 1900 ÞÚ GÆTIR UNNIÐ MYNDINA Á DVD EÐA BLU-RAY! FULLT AF AUKAVINNINGUM: TÖLVULEIKIR, DVD MYNDIR, GOS OG MARGT FLEIRAGOS O ARGT FLEIRA! Vinningar afhentir í ELKO Lindum. 199 kr/skeytið. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. Mmmm! Kaldar tær? Já, smá! Nei, sko farsími; hversu margar mínútur eru inni á reikninginum. Í hverjum mánuði ertu með 600 mínútur á dagtaxta, 5000 mínútur á kvöld-og helgartaxta og 750 sms. Ef þú ferð yfir það, þá verður þú að borga það sjálfur af vasa- peninginum þínum, ok? Já, ok, en eitt hérna? Hvenær fæ ég launahækkun? Hannes fór úr öllum fötun- um, málaði nærbuxurnar sínar eins og hlébarðaskinn og batt helling af sokkabux- um við rólurnar og sveiflaði sér af miklum móð Mikið væri ég nú glaður ef maður kæmi heim og spyrði frétta og svarið væri: „Ekkert“ Hættu að kvarta og byrjaðu að leysa hnútana. Martha vonaðist eftir róleg- um degi við vatnið og hafði í rauninni ekkert kvartað. Brjánn hafði sagt henni að hann ætti skútu. Karlotta vinkona mín skrapp um dag-inn á námskeið í jólakonfektgerð. Þar hitti hún gamla skólasystur úr menntó og sú hafði einhvern tímann heyrt að Kar- lotta ætti orðið hvað – þrjú börn, ekki satt? Og búin að gifta sig, já, hvað heitir aftur maðurinn þinn? Augnablik leið og Karlotta opnaði munninn til að svara en ekkert svar kom. Í staðinn fyrir nafnið á manninum sem hún hefur búið með undanfarin tólf ár kom bara svona vandræðalegt uhuuu … m. Því nákvæmlega þessu smáatriði – nafninu á ástkærum eiginmanni og barnsföður – var alveg stolið úr höfðinu á henni. Og komst ekki þangað aftur fyrr en hún las það á póstkassanum heima. Æjá, Friðrik, alveg rétt. ÞESSI SANNA saga styður þá skoðun að námskeið í jólakon- fektgerð í desember geti valdið tímabundnum heilaskaða. Nú þegar allir tómstundaskólarnir og grunnskólarnir og frístunda- heimilin hafa bitið í sig að þeir beri ábyrgð á samveru foreldra og barna í desember, eru pósthólf- in daglega sneisafull af skeytum um föndurdaga, laufabrauðsgerð og aðventustundir, að ógleymdum öllum afraksturssýningunum. Ef við getum ekki tekið sumarfríið á aðventu til að vera með í öllum þess- um gæðastundum, er um tvennt að velja: Skrópa í vinnunni eða lenda í ruslflokki foreldrahæfis. Námskeið að auki getur auð- veldlega orðið kornið sem fyllir mælinn og hreinsar allt út af harða diskinum. HÚSFREYJUR Fyrri tíðar lögðu metn- að sinn í stórfenglegar hreingerningar og sjúklegan smákökubakstur, það var engin alvöru húsmóðir nema vera eins og undin tuska af píslarvætti á aðfangadag. Við hlæjum bara að svoleiðis vitleysu nú þegar allt á að vera stórkostlega notalegt og áreynslulaust. Kveikt á kertum frá morgni til kvölds, allir geri piparkökuhús með börnunum, prjóni lopapeysur og föndri jólagjafir úr gömlum herðatrjám. ALLT HLJÓMAR þetta mjög vel. Eini gall- inn er að hverja vökustund utan vinnu erum við í skólanum að föndra með börn- unum eða æðum á milli ballettsýninga og jólaleikrita sem eru undantekningarlaust á sama síðdeginu svo ekki sekúnda má fara úrskeiðis. Í stað þess að vera afslöppuð og yndisleg eins og við ætluðum svo sannar- lega, þá skrensum við á milli staða á tveim- ur hjólum með æðasláttinn í enninu, allt til að þykjast vera svo áreynslulaus og afslöppuð. Vera þessir ævintýraforeldrar sem eru alltaf að syngja með börnunum, mála piparkökur og föndra jólasveina úr klósettrúllum. Karlotta brennur yfir

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.