Fréttablaðið - 15.12.2009, Síða 4

Fréttablaðið - 15.12.2009, Síða 4
4 15. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR Í grein um hljómsveitina The Esot- eric Gender kom fram að Gabriel Malenfant væri prófessor við Háskóla Íslands. Hann er doktorsnemi í heim- speki við Háskóla Íslands og hefur stundað þar kennslu af og til. LEIÐRÉTTING FJÁRMÁL „Við þykjumst sjá dæmi þess að forstöðumönnum stofnana hafi verið hent út í djúpu laugina. Ég held að þeir hafi ekki fengið nægilega þjálfun til að umgangast þennan málaflokk með sömu rögg- semi, eða það má kalla það hörku, og viðgekkst áður,“ segir Sveinn Arason ríkisendurskoðandi. Í nýútkominni skýrslu Ríkis- endurskoðunar um endurskoðun ríkisreiknings 2008 segir að rík- isstofnanir virðist ekki hafa verið nægjanlega vel undir það búnar að taka sjálfstæðar ákvarðanir um launamál starfsmanna sinna. Það hafi verið gagnrýnt að ekki hafi nægjanlega vel verið staðið að því að færa launaákvarðanir úr mið- stýrðu kerfi til einstakra stofnana á sínum tíma. Launamál ríkisstarfsmanna fóru alfarið í gegnum Launaskrifstofu ríkisins áður en ákveðið var að færa ábyrgð á rekstri hverrar stofnunar til stjórnenda þeirra. „Við erum að vitna í þetta og hvort ástæða sé til að stíga eitt skref til baka svo að menn séu ekki jafn sjálfráðir og nú er hvað varðar launaþáttinn. Þá er ég alls ekki að segja að horfið verði til fyrra horfs. Ábyrgðin yrði sem áður hjá for- stöðumönnum stofnananna,“ segir Sveinn. „Ég held engu síður að það sé nauðsynlegt að þeir hafi aðhald og fái aðstoð sem þekkja launamál- in, og ekki síður samningamálin, hvað best.“ Laun eru drjúgur hluti af rekstr- arkostnaði hverrar ríkisstofnunar. Ríkisendurskoðun hefur bent á að þess vegna séu laun helsta matar- holan þegar kemur að niðurskurði í ríkisrekstri. Áætlaðar launa- greiðslur ríkisins samkvæmt fjár- lagafrumvarpi árið 2010 eru 119 milljarðar króna af 555 milljarða heildarútgjöldum. Eins og komið hefur fram eru yfirkeyrslur ríkisstofnana fram úr fjárveitingum töluverðar, og hefur vand- inn verið viðvarandi undanfarin ár. Sveinn telur að frjálsræði for- stöðumanna við launaákvarðanir séu hluti af þeim vanda. Ríkisendurskoðun hvetur í skýrslu sinni til að launamálin, sem svo mikla þýðingu hafa fyrir útgjöld ríkisins, verði tekin til endurmats með hliðsjón af þeirri reynslu sem komin er á launamál í meðförum einstakra ríkisstofn- ana á undanförnum árum. Í heild er niðurstaða skýrslunnar að mikið ógagnsæi sé í launamálum ríkisins, og kemur þar til fyrirkomulag á yfirvinnu- og aukagreiðslum. svavar@frettabladid.is Þarf að endurskoða launamál hjá ríkinu Forstöðumenn ríkisstofnana voru ekki nægilega vel undirbúnir til að bera ábyrgð á launamálum starfsmanna. Þetta skýrir að hluta yfirkeyrslur stofnana. Mikið ógagnsæi er í launamálum ríkisins, segir Ríkisendurskoðun. DÓMSMÁL Þrjár 17 ára stúlkur sem gengu í skrokk á sextán ára stúlku í Heiðmörk í apríl sleppa við refs- ingu ef þær hegða sér sómasam- lega næstu þrjú ár. Héraðsdóm- ur Reykjaness kvað upp dóm þess efnis í gær. Stúlkurnar þrjár, ásamt fjórum öðrum, fluttu fórnarlambið nauð- ugt upp í Heiðmörk og gengu þar í skrokk á því. Tvær þeirra kýldu stúlkuna ítrekað í andlitið og ein þeirra sló hana í hnakkann. Í niðurstöðum dómsins segir að litið sé til ungs aldurs stúlknanna og hreins sakaferils þeirra. Þær hafi sýnt iðrun og tekið sig á. Eftir sem áður sé brotið alvarlegt. Er ákvörðun um refsingu þeirra frestað í þrjú ár. „Við erum rosalega óánægð með þennan dóm,“ segir Hrönn Óskars- dóttir, systir fórnarlambsins. Fjöl- skyldan hefði átt von á að gerend- urnir myndu sleppa létt, en ekki án refsingar. „Auðvitað vildum við ekki að þær færu í mörg ár í fang- elsi, en það vantar greinilega ein- hver úrræði fyrir unga afbrota- menn þannig að þeir finni fyrir því að þeir hafi gert eitthvað af sér,“ segir Hrönn. Hrönn segir að systir hennar sé enn að takast á við andlegar afleið- ingar árásarinnar. „Hún á langt í land,“ segir Hrönn. Hrönn segir jafnframt að fjöl- skyldan stefni að því að fara í einkamál gegn árásarstúlkunum til að sækja skaðabætur. - sh Systir fórnarlambs segir fjölskylduna ætla í einkamál til að sækja skaðabætur: Heiðmerkurstúlkunum ekki refsað ÆTLA Í EINKAMÁL Hrönn Óskarsdóttir segir systur sína enn vera að takast á við andlegar afleiðingar árásarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 9° 4° 1° 3° 2° 1° -2° 2° 2° 23° 3° 14° 13° 29° 1° 1° 14° -1° Á MORGUN Fremur hægur vindur um allt land. FIMMTUDAGUR Víða 3-8 m/s, stöku él N-til. 6 5 3 1 2 4 4 7 4 6 0 3 5 4 5 3 6 4 3 3 5 3 6 5 0 2 4 6 0 -1 0 4 HÆGUR VINDUR Hæðasvæði liggur yfi r landinu þannig að næstu daga verður hægur vindur og úrkomu- lítið. Þó má búast við stöku éljum norðanlands. Einng kólnar smám sam- an og næstu helgi má búast við frosti um allt land. Soffía Sveinsdóttir veður- fréttamaður EGYPTALAND, AP Ayman Al Zawa- hri, sem enn er talinn vera næst- æðsti leiðtogi hryðjuverkasam- takanna Al Kaída, segir Barack Obama Bandaríkjaforseta reyna að slá ryki í augu araba með yfir- lýsingum um að hann ætli að reyna að koma friðarviðræðum af stað fyrir botni Miðjarðarhafs. Al Zawahri segir einnig að samtökin muni ekki gleyma föng- unum í Guantanamo á Kúbu, þar á meðal fjórum föngum sem tald- ir eru hafa skipulagt árásirnar á Bandaríkin 11. september 2001. Þetta kemur fram í nýju ávarpi Al Zawahris, sem að þessu sinni hafði engar hótanir í frammi. - gb Næstæðsti maður Al Kaída: Segir Obama blekkja araba FÉLAGSMÁL Ragna Árnadóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra, sótti í gær fund sem boðað var til af Lögreglufélagi Reykjavíkur. Ráðherrann skiptist á skoðunum við fundargesti um fyrirhugað- ar breytingar á skipan lögreglu- mála. Í gær fékk Ragna einnig afhent fyrsta eintakið af bókinni Nor- ræn sakamál sem nú kemur út í áttunda sinn. Þar eru að þessu sinni frásagnir af þremur íslenskum sakamálum - gar Fyrirhugaðar breytingar: Ráðherra hitti lögreglumenn STJÓRNMÁL „Þessi ár hafa verið mér mikils virði og í raun ómet- anleg,“ segir Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson, forseti borgarstjórn- ar, í yfirlýsingu þar sem hann kynnir þá ákvörðun að bjóða sig ekki fram í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins vegna borgarstjórnar- kosninganna næsta vor. Vilhjálmur hefur verið borg- arfulltrúi í 28 ár og var borgar- stjóri 13. júní 2006 til 16. október 2007. „Að sjálfsögðu hafa skipst á skin og skúrir í þessari vegferð. Þannig eru ekki einungis stjórn- málin, heldur lífsferlið allt. Í öll þessi ár hef ég í störfum mínum lagt mikla áherslu á að vera í góðu sambandi við borgarbúa og reynt að liðsinna þeim eins vel og ég hef getað hverju sinni,“ segir meðal annars í yfirlýsingu Vil- hjálms. - gar Borgarstjórnarkosningar í vor: Vilhjálmur ekki með í prófkjöri VILHJÁLMUR Þ. VILHJÁLMSSON Borgar- fulltrúi í 28 ár og hættir næsta sumar. STJÓRNMÁL Í breytingatillögum meirihluta fjárlaganefndar við fjárlög fyrir árið 2010 er lagt til að selja Hegningarhúsið á Skóla- vörðustíg 9. Þetta kemur fram á visir.is. „Auk þess að selja Hegning- arhúsið er lagt til að fangelsið á Kópavogsbraut verði einnig selt og í staðinn verði hentugra hús- næði á höfuðborgarsvæðinu leigt eða keypt. Þá er lagt til að leigt verði húsnæði til bráðabirgða sem hýst geti gæsluvarðhalds- fanga í nágrenni við fangelsið að Litla-Hrauni,“ segir á visir.is. - gar Vilja losa fé úr fangelsum: Hegningarhús á sölulistann SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR 9 Virðuleg 125 ára eign miðsvæðis í Reykjavík. Garður fylgir. GENGIÐ 14.12.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 236,9912 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 125,34 125,94 203,43 204,41 183,54 184,56 24,659 24,803 21,683 21,811 17,625 17,729 1,4151 1,4233 198,8 199,98 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.