Fréttablaðið - 15.12.2009, Page 6
6 15. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR
DÓMSMÁL Mæðgur hafa verið
dæmdar til að greiða samtals 240
þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs
fyrir að hafa ráðist á konu í verbúð
í Þorlákshöfn. Þá voru þær dæmd-
ar til að greiða fórnarlambinu 130
þúsund krónur í miskabætur.
Konan sem mæðgurnar réðust
á er systir þeirrar eldri. Erindi
þeirra í verbúðina var að jafna
sakir við konuna út af póstkorti,
sem þær töldu hana hafa sent dótt-
urinni í eineltisskyni og jafnframt
til kunningjafólks í Póllandi. Hefði
dóttirin fengið póstkort með mynd
af hrossum og hefði tilgangurinn
augljóslega verið sá að líkja henni
við hross.
Þegar mæðgurnar komu í verð-
búðina upphófust hörð orðaskipti
milli þeirra og systur þeirrar
eldri. Orð eins og „barnamaskína“
„hóra“ og önnur álíka flugu á milli.
Á endanum réðust mæðg urnar á
konuna með barsmíðum og spörk-
um í höfuð og líkama.
Fórnarlamb árásarinnar fékk
áverkavottorð hjá lækni, þar sem
fram kom að hún hefði verið marin
og bólgin eftir árásina. Mæðgurn-
ar vildu lítið gera úr því fyrir
dómi og sögðu konuna líklega
hafa fengið áverkana við að kafa
ofan í ruslagáma. Auk þess væri
hún alltaf rauð í framan.
- jss
ÞORLÁKSHÖFN Árásin átti sér stað í
verbúð í Þorlákshöfn.
Mæðgur dæmdar til greiðslu sektar og miskabóta fyrir líkamsárás:
Töldu dótturinni líkt við hross
EFNAHAGSMÁL Ákveðnum áföngum þarf að ná áður
en hægt verður að stíga næstu skref í afnámi gjald-
eyrishafta, segir Mark Flanagan, yfirmaður sendi-
nefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) á Íslandi.
Sjóðurinn kynnti í gær niðurstöður viðræðna við
stjórnvöld og fleiri aðila síðustu tvær vikur vegna
annarrar endurskoðunar efna-
hagsáætlunar stjórnvalda og
sjóðsins.
Fyrstu skrefin í afnámi hafta
hafa þegar verið tekin og mögu-
lega segir Flanagan hægt að taka
eitt eða tvö til viðbótar á næsta
ári. „En þetta er nokkuð sem við
skoðum við hverja endurskoð-
un samkomulagsins og þetta mat
er nokkuð flókið,“ segir hann og
kveður tvær meginforsendur
þess að hægt sé að afnema höft
fullkomlega starfhæft og stöðugt fjármálakerfi
sem lúti viðeigandi eftirliti. „Og þangað höfum við
ekki enn alveg náð,“ segir hann og kveður vandlega
fylgst með öðrum þáttum sem einnig þurfi að vera í
lagi, svo sem fjármögnun ríkisins.
„Þessa stundina er það metið sem svo að ekki
verði hægt að gera breytingar á næstunni,“ segir
Flanagan, en bætir um leið við að staðan sé í
stöðugri endurskoðun. „Eins og við höfum löngum
sagt er markmiðið þó að afnema höftin eins hratt og
hægt er, en þó í samræmi við markmið um að við-
halda stöðugleika krónunnar.“ - óká
MARK FLANAGAN
STÝRA FERÐINNI Seðlabanki Íslands heldur utan um gjaldeyr-
ishöft og framkvæmd þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Tæpast verður slakað á gjaldeyrishöftum í náinni framtíð að sögn AGS:
Tímaáætlun liggur ekki fyrir
SAMFÉLAGSMÁL Afar óeðlilegt er að
leiguverð í nýjum þjónustuíbúðum
fyrir aldraða sem velferðarsvið
Reykjavíkurborgar úthlutar sé
svo hátt að þeir tekjulægstu í hópi
aldraðra hafi engan möguleika á
að greiða húsaleiguna, segir Björk
Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi Sam-
fylkingarinnar.
Með þjónustugjaldi gætu leigj-
endur í nýjum þjónustuíbúðum
Eirar við Fróðengi þurft að greiða
um 115 þúsund fyrir um 40 fer-
metra íbúð, eða um 165 þúsund
fyrir rúmlega 60 fermetra íbúð,
samkvæmt upplýsingum frá vel-
ferðarsviði borgarinnar.
Íbúðirnar eru nýjar, og í fyrsta
áfanga eru tvær 40 fermetra íbúð-
ir og fimm 60 fermetra íbúðir sem
velferðarsvið hefur til útleigu.
Björk bendir á að eitt af þeim
skilyrðum sem fólk þurfi að upp-
fylla til að fá þjónustuíbúð eldri
borgara á vegum borgarinnar sé
að hafa að mati félagsráðgjafa ekki
möguleika á því að kaupa eigið hús-
næði eða búseturétt sem henti.
„Það er ekki eðlilegt að við séum
að greiða fólki laun og lífeyri sem
dugir ekki fyrir leigu á svo litlum
íbúðum,“ segir Björk.
Eldri borgarar sem hafa ein-
göngu tekjur frá Tryggingastofnun
hafa um 155 þúsund krónur útborg-
aðar á mánuði. Við það geta bæst
18 þúsund króna húsaleigubætur,
samtals 173 þúsund krónur. Vildi
eldri borgari með þær tekjur leigja
40 fermetra íbúð ætti hann um 53
þúsund krónur eftir á mánuði þegar
leigan væri greidd.
Þá er leiguverð á hvern fer-
metra, með öllu inniföldu, umtals-
vert hærra í þjónustuíbúðunum en
á almennum markaði, eins og sjá
má í meðfylgjandi töflu.
Jórunn Frímannsdóttir, for-
maður velferðarráðs Reykjavík-
urborgar, segir að borgin sé nú að
fara yfir reglur um sérstakar húsa-
leigubætur með það í huga að fólk
sem leigir íbúðir sem þessar geti
átt rétt á bótunum. Þær geta numið
rúmlega 15 þúsund krónum á mán-
uði að hámarki.
„Ef það kemur í ljós að enginn
hefur efni á að leigja þessar íbúð-
ir verður að endurskoða úthlutun í
íbúðirnar,“ segir Jórunn. Hún seg-
ist sannfærð um að leigjendur fáist
í íbúðirnar.
Björk segir að þörf sé á nýjum
hugsunarhætti í búsetumálum aldr-
aðra. Það sé úrelt hugsun að aldr-
aðir sem búi í húsnæði sem henti
þurfi að flytja í sérstakar þjónustu-
íbúðir til að fá þá þjónustu sem þeir
þurfi.
Jórunn bendir á að slík þjón-
usta sé þegar til staðar, og sífellt
verið að þróa hana. Einnig sé ljóst
að eldri borgarar sæki það marg-
ir fast að komast í sérstakar þjón-
ustuíbúðir, og við því sé borgin að
bregðast. brjann@frettabladid.is
Segir þjónustuíbúðir
aldraðra allt of dýrar
Nýjar þjónustuíbúðir aldraðra sem Reykjavíkurborg leigir út eru svo dýrar að
tekjulágir geta ekki leigt þær, segir borgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Borgin
mun endurskoða sérstakar húsaleigubætur, segir formaður velferðarráðs.
ÖRYGGISÍBÚÐIR Í öryggisíbúðum Eirar er hjúkrunarfræðingur á vakt allan sólarhring-
inn og ýmiss konar öryggisbúnaður fyrir íbúa. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Leiguverð á fermetra í þjónustu-
íbúðum og á almennum markaði:
■ 60 fermetra þjónustuíbúð vel-
ferðarsviðs hjá Eir: 2.585 krónur.
■ 66 fermetra tveggja herbergja
íbúð á almennum markaði: 1.826
krónur.
■ 40 fermetra þjónustuíbúð vel-
ferðarsviðs hjá Eir: 2.750 krónur.
■ 37 fermetra stúdíóíbúð á almenn-
um markaði: 2.481 króna.
Heimild: Velferðarsvið
og Neytendablaðið (apríl 2008)w
FERMETRAVERÐIÐ HÆRRA
S N E R T I N G
„Við erum í sífellu að snerta hluti sem á vegi okkar verða.
Manneskjan skilur eftir sig slóð af fingraförum í gegnum lífið.
Við snertum fólk og það okkur.
Snerting er notuð í lækninga- og líknarskyni.
Við tökum upp hluti, réttum þá öðrum, búum til hluti,
breytum hlutum.
Immanuel Kant sagði að hendurnar væru
hinn ytri heili mannsins.“
Hre inn Fr ið f innsson
Sölut ímabi l 5. – 19. desember
Söluaðilar:
Epal - Skeifunni og Leifsstöð · Kokka - Laugavegi
Kúnígúnd - Kringlunni · Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhúsinu
Líf og list - Smáralind · Hafnarborg - Hafnarfirði
Blóma - og gjafabúðin - Sauðárkróki
Blómaturninn - Ísafirði · Norska húsið - Stykkishólmi
Póley - Vestmannaeyjum · Valrós - Akureyri
Markmiðið með sölu Kærleikskúlunnar er að auðga líf fatlaðra
barna og ungmenna og rennur allur ágóði til starfs í þeirra þágu.
Útgefandi er Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
EFNAHAGSMÁL Meðalatvinnuleysi
hér á landi á þriðja ársfjórðungi
var 7,1 prósent, 1,5 prósentustig-
um undir meðaltali ríkja Efna-
hags- og samvinnustofnunarinn-
ar (OECD), sem var 8,6 prósent.
Þetta kemur fram í nýjum tölum
stofnunarinnar.
Meðalatvinnuleysi er svo held-
ur hærra á tímabilinu þegar horft
er til ríkja ESB, eða 9,1 prósent og
9,6 prósent á evrusvæðinu.
Í Bandaríkjunum stóð atvinnu-
leysisstigið í 10,0 prósentum í nóv-
ember, 0,2 prósentustigum lægra
en í fyrra mánuði og 3,2 prósentu-
stigum hærra en ári fyrr.
- óká
Atvinnuleysi innan OECD:
Ísland undir
meðaltölum
Viltu að forseti Íslands synji
Icesave-lögum staðfestingar?
Já 69,1
Nei 30,9
SPURNING DAGSINS Í DAG
Á ríkið að innheimta 400 millj-
ónir í skatt til að fjármagna
Samtök iðnaðarins?
Segði þína skoðun á visir.is
KJÖRKASSINN