Fréttablaðið - 15.12.2009, Qupperneq 8
8 15. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR
1. Hvar er loftslagsráðstefna
Sameinuðu þjóðanna haldin?
2. Hvaða erlendi stjórnmála-
leiðtogi var laminn á fundi á
sunnudaginn?
3. Hvar er nú kosið með raf-
rænum hætti um Icesave?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 50
Brauðrist TT 61101
Tekur tvær venjulegar
brauðsneiðar, 900 W.
Jólaverð: 6.400 kr. stgr.
Töfrasproti MSM 6B100
280 W. Hljóðlátur og
þægilegur í notkun.
Jólaverð: 4.100 kr. stgr.
Ryksuga VS 01E1800
3 l poki, 1800 W.
Jólaverð: 14.900 kr. stgr.
Hárblásari PHD 1150
1200 W. Hægt að fella saman.
Jólaverð: 4.290 kr. stgr.
Brick borðlampar
Nokkrir litir. Hæð 38 sm.
Jólaverð: 5.500 kr. stgr.
Stór og lítil heimilistæki, símtæki og ljós í miklu úrvali.
Sjáið jólatilboðin á www.sminor.is
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Þvottavél WM 12A162DN
Tekur 5 kg. 1200 sn./mín.
Orkuflokkur A.
Jólaverð: 109.900 kr. stgr.
Uppþvottavél SE44E232SK
Hvít, með fjórum kerfum.
Jólaverð: 109.900 kr. stgr.
1
2
3
4
5
6
7
fyrir
1
2
4
6
7
A
T
A
R
N
A
5
3
FÉLAGSMÁL „Það verður að finna
aðrar leiðir til að spara en að
skera niður framlög til áfengis-
sjúklinga,“ segir Þórarinn Tyrf-
ingsson, yfirlæknir SÁÁ, um boð-
aðan 70 milljóna niðurskurð til
samtakanna. „Enginn sparnað-
ur er í að rústa áfengismeðferð,
vandinn gufar ekki upp og það er
ljóst að þeir sem eiga við vanda-
mál að stríða munu lenda á bráða-
deild og öðrum deildum spítalans,
róstur munu aukast á heimilum
og svo framvegis.“
Þórarinn segir framlög til SÁÁ
hafa sætt það miklum niðurskurði
á árinu að frekari niðurskurður
muni skerða
þjónustu veru-
lega, færri
muni komast
í meðferð en
fyrr.
Tuttugu
þúsund manns
hafa r itað
undir áskor-
un til þing-
manna um
að skera ekki
framlög ti l
samtakanna. Að mati Þórarins
sýnir fjöldinn mikinn stuðning
þjóðarinnar við störf SÁÁ sem
rekur sjúkrahúsið Vog auk göngu-
deilda í Reykjavík og á Akur-
eyri og áfangaheimili í Reykja-
vík. Til að vekja athygli á málinu
standa samtökin fyrir uppákomu
á Austurvelli í dag klukkan fimm,
Bubbi og Páll Óskar munu syngja
og verður kveikt á kertum „sem
þakklætisvott fyrir þau líf sem
starfsemi SÁÁ hefur bjargað og
bætt“, eins og segir á heimasíðu
samtakanna.
Landsmenn eru hvattir til að
mæta og sýna samstöðu með bar-
áttu samtakanna gegn áfengis- og
fíkniefnavanda.
- sbt
Bubbi og Páll Óskar mótmæla niðurskurði til SÁÁ:
Enginn sparnaður í niðurskurði
ÞÓRARINN
TYRFINGSSON
SKATTAR „Við höfum tekið þá
ákvörðun að bíða dóms í málinu,“
segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðar-
ráðherra um iðnaðarmálagjald,
skatt sem lagður er á veltu iðn-
fyrirtækja og miðlað um ríkis-
sjóð til Samtaka iðnaðarins.
Eins og fram kom í Fréttablað-
inu í gær mun Mannréttindadóm-
stóll Evrópu í Strassborg fljótlega
fella dóm um hvort innheimta
gjaldsins brjóti gegn Mannrétt-
indasáttmála Evrópu. Það er
félagsmaður í Meistarafélagi
húsasmiða, sem höfðar málið.
Katrín segir að „í sögulegu
samhengi“ hafi umhverfið breyst
en hún kjósi að tjá sig ekki nánar.
Iðnaðarmálagjald er 0,08 prósent
af veltu. Samkvæmt fjárlögum
næsta árs er áætlað að 420 millj-
ónir króna innheimtist, sem er
sama upphæð og þetta ár. -pg
Iðnaðarmálagjald fyrir dómi:
Ráðherra bíður
dóms í málinu
ÍTALÍA, AP Silvio Berlusconi, hinn
73 ára forsætisráðherra Ítalíu,
hefur verið á sjúkrahúsi í Míl-
anó frá því á sunnudag þegar
maður réðst á hann á stjórn-
málafundi.
Árásarmaðurinn, Massimo
Tartaglia, sló forsætisráðherr-
ann með lítilli styttu, með þeim
afleiðingum að hann nefbrotnaði
auk þess sem tvær tennur brotn-
uðu. Tartaglia er 42 ára og sagð-
ur vera í andlegu ójafnvægi.
Hann var samstundis handtek-
inn.
Berlusconi er afar umdeildur
á Ítalíu, bæði vegna stjórnmála-
skoðana sinna, ríkidæmis og
framferðis, sem stundum hefur
þótt fara út fyrir mörk velsæm-
is.
Samúðarkveðjur og stuðnings-
yfirlýsingar hrönnuðust inn á
Facebook-síðum og víðar á net-
inu, en einnig lýstu fjölmargir
Ítalir yfir ánægju með framtak
árásarmannsins.
Berlusconi þurfti ekki að und-
irgangast aðgerð, en fékk bæði
sýklalyf og verkjalyf. Hann var
þreyttur og þjáður eftir árásina
og læknar ráðleggja honum að
fara sér hægt fyrstu dagana.
Árásin vakti spurningar um
hvort öryggis Berlusconis sé
nægilega vel gætt.
Roberto Maroni innanrík-
isráðherra segir að venjulega
gæti þrjátíu leyniþjónustumenn
öryggis forsætisráðherrans,
en Berlusconi reyni að komast
í nálægð við stuðningsfólk sitt
hvenær sem færi gefst.
- gb
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, verður líklega útskrifaður af sjúkrahúsi í dag:
Þreyttur og þjáður eftir líkamsárás
SILVIO BERLUSCONI Venjulega gæta þrjátíu leyniþjónustumenn öryggis Berlusconis.
NORDICPHOTOS/AFP
SAMGÖNGUMÁL Evrópusamband-
ið áformar að framlengja bann
við að taka vökva í handfarangri í
flug fram í apríl 2013. Verði bann-
ið ekki framlengt mun það renna
út í apríl næstkomandi.
Í tilkynningu frá samgöngu-
ráðuneytinu kemur fram að seink-
un hafi orðið á þróun tækjabúnað-
ar sem gera átti bannið óþarft.
Flugfarþegar geta því enn um
skeið reiknað með því að þurfa
að vera með vökva í 100 millilítra
umbúðum eða minni ætli þeir að
taka hann með sér í handfarangri,
þótt einhverjir flugvellir fái und-
anþágu þegar nýi búnaðurinn
hefur verið settur upp. - bj
Seinkun á öryggisbúnaði:
Vökvabann í
flugi framlengt
VEISTU SVARIÐ?