Fréttablaðið - 15.12.2009, Side 14

Fréttablaðið - 15.12.2009, Side 14
DÓMSTÓLAR Fyrsta dómsmálið þar sem reynir á gildi neyðarlaganna sem sett voru við fall bankakerf- isins í fyrrahaust var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Lögð voru fram gögn og fundinn dagur um miðjan febrúar næst- komandi fyrir málflutning vegna kröfu ríkisins um að málinu verði vísað frá dómi. Í málinu stefnir DekaBank Deutsche Girozentrale íslenska ríkinu. Ragnar Aðalsteinsson, lög- maður DekaBank, segir að enn sé málið það eina þar sem tekist er á um gildi neyðarlaganna. Með þeim var bönkunum meðal annars skipt upp í nýja og gamla. Málið er þó ekki rekið sem einhvers konar prófmál og segir Ragnar að ekki myndi koma honum á óvart þótt fleiri mál yrðu höfðuð á hendur ríkinu vegna neyðarlaganna. Málsskjöl eru 33 talsins, en bæði Ragnar og Skarphéðinn Þór- isson, lögmaður ríkisins, áskilja sér rétt til frekari gagnaöflunar. Meðal gagna sem Ragnar á eftir að afla eru bréfaskrift- ir sem sanna að DekaBank hafi óskað eftir upplýsingum eftir fall bankanna, en það sagði hann fyrir dómi að hefði verið vefengt af hálfu ríkisins. „Þá er ágreining- ur um tilraun ríkisvaldsins til að kaupa 75 prósent í Glitni og örfá önnur atriði,“ sagði hann. Skarphéðinn sagði að einnig væri beðið endanlegs álits ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, varð- andi setningu neyðarlaganna, en það yrði lagt fyrir dóminn með öðrum skjölum. Ragnar lagði fyrir dóminn að þessu sinni útdrátt úr skýrslu sem skilanefnd Glitnis sendi um miðj- an október síðastliðinn öllum sem hagsmuna áttu að gæta í gamla- bankanum, en í honum er farið yfir efnahagsstöðu gamla og nýja bankans. Þá lagði hann fram upplýsingar um fjárhagsstöðu Íslandsbanka um síðustu áramót og efnhagshreyfingar frá miðjum október 2008 til áramóta. Neyðarlögin voru samþykkt á Alþingi 6. október 2008 með 50 atkvæðum. Þingmenn Sjálf- stæðisflokks, Samfylkingar og Framsóknarflokks samþykktu lögin. Þingmenn Vinstri grænna og Frjálslyndra sátu hjá. Lögin færðu Fjármálaeftirliti valdheim- ildir til að taka yfir og skipta upp fjármálafyrirtækjum, en stjórn- arandstæðingar vöruðu við því í umræðum um lögin að með svo víðtækum heimildum reyndi á þanþol stjórnarskrárinnar. olikr@frettabladid.is Í HÉRAÐSDÓMI REYKJAVÍKUR Einar Karl Hallvarðsson hjá ríkislögmanni og Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður DekaBank, ræða málin áður en kom að fyrirtöku í máli umbjóðanda Ragnars á hendur íslenska ríkinu í gærmorgun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Takast á um frávísun eftir gagnaöflun Þýskur banki stefnir íslenska ríkinu vegna setningar neyðarlaganna í október. Fjármálaeftirlitið fékk þá heimildir til að skipta upp bönkum í greiðsluvanda. Málið er það fyrsta sinnar tegundar. Lögmaður bankans á eins von á fleirum. SAMA VERÐ fyrir alla jólapakka hvert á land sem er Hámarksþyngd 30 kg eða 0,1 m3 Við erum sérfræðingar í matvælaflutningum Upplýsingar um afgreiðslustaði og opnunartíma er að finna á landflutningar.is 790 kr. MENNING Nýtt frumkvöðlaset- ur var opnað í aflagðri rafveitu- byggingu í Elliðaárdal í gær. Setrið er nefnt eftir húsinu sjálfu sem heitið hefur Toppstöðin. Að því er kemur fram í tilkynningu verður í setrinu orkuver hugvits og verkþekkingar rekið af félaga- samtökunum Toppstöðinni og hafi að markmiði að styðja við nýsköp- un á sviði framleiðslu og hönnun- ar og auka tengsl milli hönnunar- greina og iðngreina. „Toppstöðin mun á komandi mánuðum byggja upp öflugt starf með fjölbeyttri dagskrá, fyrirlestrum, vinnustof- um, námskeiðum og þróunarverk- efnum,“ segir í kynningu. - gar Nýtt frumkvöðlasetur opnað: Orkuver ræst í Elliðaárdalnum Í TOPPSTÖÐINNI Hanna Birna Kristjáns- dóttir opnaði nýja frumkvöðlasetrið.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.