Fréttablaðið - 15.12.2009, Side 26

Fréttablaðið - 15.12.2009, Side 26
26 15. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR UMRÆÐA Jón Sigurðsson skrifar um Icesave Leiðarahöfundar svara ekki athugasemdum enda gæti slíkt orðið umfangs- mikið. Sl. laugardag 12. þ.m. birta þrír áhuga- menn „alvarlegar athuga- semdir“ um leiðara sem birtist í Fréttablaðinu 8. þ.m. Í leiðaranum er fullyrt að málþóf á Alþingi um Icesave sé skaðlegt. Sagt er að Íslendingar geti valið um tvo kosti, að sam- þykkja frumvarp ríkisstjórn- arinnar eða hafna því. Því er haldið fram að báðir kostirnir séu herfileg- ir, en síðari kosturinn þó verri. Í leiðaranum er ekki vikið að öðrum valkostum. Ástæða þess er sú að þannig liggur málið fyrir Alþingi. Þessi framsetn- ing á ekkert skylt við „hræðslu við að standa vörð um hagsmuni þjóðarinnar“ eins og þremenningarnir orða það. Ásakanir um þjóðsvik leiða ekki til árangurs. Það er þrák- elkni að þykjast sjá fleiri úrkosti eins og málum er háttað. Þremenningarnir telja að Íslendingar eigi að bera skulda- stöðu sína saman við aðrar þjóð- ir með „litla eigin gjaldmiðla“. En slíkt væri að bera saman epli og appelsínur ef ekki er við sams konar vanda að etja. Þeir vilja heldur ekki meta skuldastöðu án fjármálafyrirtækja í slitameð- ferð og ekki heldur sérgreinda skuldastöðu ríkissjóðs, hvað þá hreinar skuldir. Þessi neitun þeirra er ekki skynsamleg. Þeir nefna hættu á „öðru eignafalli“ hér á landi. Rétt er að hætta er á öðru eignafalli bæði hérlendis og víðar, en af öðrum aðalástæðum en þre- menningarnir telja. Sumir álíta að Vesturlönd séu að ganga inn í Kondratieff-haglægð sem gæti haldist um árabil. Þeir vísa til þekktra hagfræðinga. Allir hafa séð og heyrt að margir kunnir hagfræðingar fjalla um almenn efnahagsmál eins og annað fólk, bara af talsvert minni varúð. Fáar stéttir hafa orðið fyrir slík- um álitshnekki við og eftir hrun- ið sem hagfræðingar. Þremenningarnir telja ofmælt að Íslendingar verði að finna nýja útflutningsmarkaði ef þeir hafna Icesave-samningnum. En í leiðaranum er gert ráð fyrir að þessi vandi snerti bæði útflutn- ing og innflutning þjóðarinnar. Þeir virðast hafa skipt um skoð- un á þeim lögum sem Alþingi samþykkti síðsumars um Icesa- ve-samninginn. Þeim líst betur á þessi lög nú en þá. Hitt er verra að þeir segja: „Hægur vandi er að sannfæra Breta og Hollend- inga um þessar staðreyndir … Sé málstaður okkar þannig kynntur af röggsemi …“ Því miður virð- ist þetta ástæðulaus bjartsýni. Þremenningarnir virðast vilja að málinu verði vísað til þjóðar- atkvæðis. Leiðarahöfundur er fylgismaður beins lýðræðis og skrifaði leiðara um það í Frétta- blaðið sl. haust. En það er vont að kollvarpa afgreiðslu máls í miðjum klíðum. Höfundur er fyrrverandi ráðherra og skrifar leiðara í Fréttablaðið. Málefnalegar athugasemdir JÓN SIGURÐSSON UMRÆÐAN Ágúst Guðmundsson skrifar um Lottó Um daginn benti ég á fjár-mögnunarleið fyrir listirn- ar í landinu, en hún felst í því að láta hluta lottóarðsins ganga til menningarmála. Í Finnlandi var í fyrra farið í sérstakt menn- ingarátak sem byggðist einkum á auknu fjármagni frá lottóinu þar í landi; engin grein fékk þar meira í sinn hlut en kvikmynda- gerðin. Finnski menntamálaráð- herrann sagði drjúgur í viðtali að kvikmyndafólkið hefði beðið um hækkun upp á 1,2 milljónir evra, en fengið 1,7. Svipuð stefnu- breyting var gerð í Noregi fyrir fimm árum, enda hefur árangur norskra kvikmynda verið í sam- ræmi við það. Höfundur er forseti Bandalags íslenskra listamanna. Meira um Lottó UMRÆÐAN Falasteen Abu Libdeh, Felix Bergsson og Jóhann Björns- son Á hverju ári vekur fjöldi for-eldra barna í leik- og grunn- skólum borgarinnar athygli á þeim vanda sem þeir standa frammi fyrir þegar skólaheim- sóknir í kirkjur eiga sér stað. Eðlilega tilheyra ekki allir sama trúfélagi og sem betur fer eru lífs- skoðanir fólks mismunandi. Í nóvember sl. sendi mannrétt- indastjóri Reykjavíkur bréf til stjórnenda leik- og grunnskóla þar sem bent var á mikilvægi þess að virða margbreytileika mannlífs- ins og minnt var m.a. á að í aðal- námskrá grunnskóla kemur fram að „Skólinn er fræðslustofnun en ekki trúboðsstofnun …“. Einn- ig var vakin athygli á niðurstöðu starfshóps um samstarf kirkju og skóla frá árinu 2007, en þar kemur fram að „í leik og grunnskóla skal börnunum ekki mismunað vegna trúar eða lífsskoðunar þeirra eða foreldra þeirra. Forðast skal aðstæður þar sem börn eru tekin út úr hópum eða skylduð til að taka þátt í atburðum sem ekki samræmast trúar- eða lífsskoð- unum þeirra.“ Mannréttindaráð hefur lagt mikla áherslu á að fólk búi saman í borginni og umgangist hvert annað burtséð frá uppruna og þjóðerni, burtséð frá kynhneigð og burtséð frá fötlun. Ætla mætti að ráðið væri líka á þeirri skoðun að ekki væru reistir aðskilnaðar- múrar fólks ólíkra trúarbragða og lífsskoðana í stofnunum borgar- innar, en svo er ekki um alla full- trúa mannréttindaráðs. Nýverið sá formaður Mann- réttindaráðs Reykjavíkur ástæðu til að senda leiðréttingarbréf til stjórnenda leik- og grunnskóla þar sem lögð er áhersla á að skólastarf í borginni skuli vera með þeim hætti að börnin skuli aðgreind eftir trúar- eða lífsskoð- unum. Í bréfi sínu segir formaður- inn m.a.: „Ætlunin var alls ekki að gera athugasemdir við hefðbundið kirkjustarf skólabarna heldur að benda á mikilvægi þess að þeim sem hafa aðrar lífs-eða trúarskoð- anir standi annað til boða á meðan á kirkjustarfinu stendur.“ Á meðan við sem aðhyllumst fjölmenningarlegt samfélag erum að leitast við að samþætta alla hópa samfélagsins í eina heild þá er formaður mannréttinda- ráðs að leggja áherslu á aðskiln- að barna eftir trúar- og lífsskoð- unum. Aðskilnaður mismunandi hópa samfélagsins kann aldrei góðri lukku að stýra. Við eigum að sameina íbúana hvernig sem þeir eru og skólarnir eiga að fara þar fremstir í flokki. Það er vafa- samt þegar skólar kjósa að haga starfsemi sinni með þeim hætti að aðstæður skapist þar sem börn eru tekin út úr hópum eða skyld- uð til að taka þátt í atburðum sem ekki samræm- ast trúar- eða lífsskoðunum þeirra. Með því að bjóða upp á „hefðbund- ið kirkjustarf skólabarna“ í skólum er verið að þvinga börn og foreld ra þeirra til að velja á milli þess að standa við sína lífsskoðun annars vegar eða falla inn í hópinn hins vegar. Fjöl- mörg dæmi eru um það að foreldr- ar eða börn ákveði að taka þátt í trúarstarfi í þeim eina tilgangi að vera ekki stimpluð öðruvísi. Í nýjum bæklingi frá Mann- réttindaskrifstofu Reykjavíkur er tekið dæmi um mismunun vegna trúarskoðana. Þar segir: „Foreldrar Bergþóru, sem standa utan trúfélaga, vilja ekki að hún læri kristin fræði eða fari í kirkju á skólatíma. Bergþóru er boðið að sitja á bókasafninu, án þess að fá kennslu, á meðan krist- indómsfræðslan stendur yfir. For- eldrarnir vilja hins vegar að hún sitji við sama borð og hin börnin og njóti fræðslu á meðan.“ Grundvallarmisskilnings gætir í þessu dæmi. Almennt eru for- eldrar ekki bara ósáttir við að börn þeirra séu látin hanga á bókasafni á meðan trúarathafn- ir fara fram. Foreldrar eru fyrst og fremst ósáttir við að starfsemi opinberra skóla sé þannig hátt- að að þeir neyðist til að láta taka börn sín út úr venjulegu skóla- starfi, frá samnemendum sínum og félögum. Mannréttindadómstóll Evrópu kvað upp dóm árið 2007 í máli norskra foreldra sem höfðað höfðu mál vegna starfsemi trúfélags í skólum. Í dómnum segir að brotið hafi verið gegn Mannréttindasátt- mála Evrópu þar sem skólar héldu uppi trúarlegri starfsemi sem m.a fól í sér kirkjuferðir. Spyrja má í framhaldi af þess- um dómi hvort við ætlum að bíða þess að Mannréttindadómstóll Evrópu komi vitinu fyrir okkur eða hvort við eigum að taka frumkvæðið sjálf og hefja veg fjölmenningarlegs skólastarfs til vegs og virðingar þar sem nem- endur eru ekki flokkaðir eftir trúar- og lífsskoðunum. Höfundar eru fulltrúar í mann- réttindaráði Reykjavíkur. Aðskilnaðarstefnan í skólum FALASTEEN ABU LIBDEH FELIX BERGSSON JÓHANN BJÖRNSSON Á meðan við sem aðhyllumst fjölmenningarlegt samfélag erum að leitast við að sam- þætta alla hópa samfélagsins í eina heild þá er formaður mannréttindaráðs að leggja áherslu á aðskilnað barna eftir trúar- og lífsskoðunum. Útskrift verður í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti föstudaginn 18. desember kl. 14:00. Allir nemendur dag- og kvöldskóla, er lokið hafa eftirtöldum prófum, eiga að koma og taka á móti prófskírteinum: Handíðabraut Sjúkraliðanámi Snyrtifræðinganámi Burtfararprófi af húsasmiðabraut Burtfararprófi af rafvirkjabraut Stúdentsprófi Skólameistari Austurbergi 5 111 Reykjavík Sími 570 5600 Símbréf 567 0389 Tölvupóstur: fb@fb.is www.fb.is 3.990kr.Verð frá Kraftar í kögglum Bolir 3.490kr.Verð frá Stuttbuxur 2.490kr.Verð frá Sippubönd 19.990kr.Verð frá Hlaupaskór HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.