Fréttablaðið - 15.12.2009, Síða 28

Fréttablaðið - 15.12.2009, Síða 28
 15. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR2 BÓLUSETNING gegn inflúensu A(H1N1) hefst á nýjan leik á morg- un miðvikudag og ganga þeir fyrir sem hafa skráð sig á bið- lista. Bóluefni verður næst dreift um landið 6. janúar 2010. www.heilbrigdisraduneyti.is „Við vorum bara búnir að sprengja allt utan af okkur,“ segir Jón Viðar Arnþórsson formaður Mjölnis til útskýringar á því að ráðist var í stækkun æfingahúsnæðis félags- ins. Um 375 manns æfa í húsnæði Mjölnis eins og stendur og hefur fjölgunin verið gríðarleg síðasta árið. „Við erum mjög ungt félag og þegar við fluttum í þetta hús- næði árið 2006 héldum við að það væri allt of stórt fyrir okkur,“ segir Jón Viðar, en raunin varð önnur. Fljótlega fjölgaði félags- mönnum og leyfi fékkst til að nýta lagerrými á hæðinni til að stækka æfingasalinn. „Við brutum vegginn og feng- um 200 fermetra í viðbót. Salur- inn sem var áður 130 fermetrar er nú 330 fermetrar,“ útskýrir hann en öll vinnan við breytingarnar var unnin í sjálfboðastarfi. „Allir voru tilbúnir til að hjálpa enda erum við félag en ekki fyrirtæki,“ segir hann ánægður með félaga sína. Mjölnir bjó enda vel að því að hafa innan sinna vébanda ýmsa iðnaðarmenn á borð við pípara, rafvirkja og smiði. „Við gerum síðan ráð fyrir að stækka búnings- klefana um næstu páska ef okkur gefst tími til,“ segir hann en þang- að til sitja menn þröngt en sáttir í klefunum enda útrásina stutt að sækja út á æfingagólfið. Í Mjölni er stundað brasilískt Jiu-Jitsu, kickbox, þrekæfingar í formi ketilbjalla og blandaðar bardagaíþróttir (Mixed Martial Arts, MMA) sem Jón Viðar segir eitt mest vaxandi sport í heim- inum. Íþróttin er blanda af boxi, glímu og öðrum bardagaíþróttum og þar slást menn í búri. Fyrsta búrið af þeirri teg- und kom nýlega til landsins frá Bandaríkjunum og stendur nú í nýjum æfingasal Mjölnis. „Þetta er átthyrningur og í búrinu er æft MMA,“ segir hann og þegar blaða- maður spyr hvort búrið sé til þess gert að bardagamennirnir geti ekki flúið leiðréttir hann þann misskilning fljótt. „Nei, þetta snýst aðallega um öryggi,“ segir hann en netið kemur í veg fyrir að menn meiði sig, reki sig utan í veggi eða fólk. „Einnig er hægt að halda glímukeppni í búrinu og þannig þarf ekki alltaf að vera að stoppa glímuna þegar fólk er komið út í enda á dýnunum,“ segir Jón Viðar og bætir við að búrið auki mjög fjölbreytni æfinga. Jón Viðar, sem starfar sem lög- reglumaður, var einn af stofnend- um Mjölnis. Hann stundaði karate frá 1996 en í kringum 2003 vakn- aði áhugi hans á MMA og fór hann að stunda það og kenna í litlum mæli. Árið 2005 var Mjölnir svo formlega stofnað. Hann hefur alla tíð bæði æft og þjálfað í Mjölni sem hann segir vissulega töluverða vinnu með- fram fullu starfi. Á nýju ári verða breytingar þar á. Þá munu tveir menn taka yfir allar æfingar félagsins. Það eru Bandaríkjamað- urinn James Davis og svo Gunn- ar Nelson sem hefur vakið mikla athygli fyrir frábæra frammistöðu í MMA á heimsvísu. Þeir sem vilja kynna sér starf Mjölnis nánar er bent á vefsíðuna www.mjolnir.is. Þess má geta að byrjendanámskeið hefjast 4. jan- úar en auk þess mun barnastarf Mjölnis hefjast í fyrsta sinn í upp- hafi árs. „Þar kennum við glímu í gegnum leik sem er bæði spenn- andi og skemmtilegt fyrir krakk- ana,“ segir Jón Viðar. solveig@frettabladid.is Barist í glænýju búri Áhugi á bardagaíþróttum hefur stóraukist á síðustu árum. Það kemur berlega í ljós hjá Mjölni þar sem félagsmenn lögðust nýlega allir á eitt og stækkuðu æfingasalinn um 200 fermetra. Jón Viðar setur sig í stellingar fyrir framan nýja átthyrnda búrið sem prýðir æfingaaðstöðu Mjölnis. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Fæðu- ofnæmi tengist alltaf ónæmiskerfi einstakl- ings og er algengast hjá ungum börnum. Algengustu ofnæmis- valdarnir hjá börnum eru kúamjólk, egg og fiskur. www.matarvef- urinn.is Glæsilegu Vanity Fair haldararnir komnir aftur. 7990 kr. HAMRABORG 20A • KÓPAVOGI 544-4088 • YNJA.IS Útsölustaðir: Snyrtivöruverslunin Nana Hólagarði 557-1644 Lau 12.des kl. 10-16 Lau 19.des kl. 10-18 Þorláksmessa kl. 10-20 teg. 81103 - einn vinsælasti BH sem við höfum haft, fæst í mörgum litum í BC skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl á kr. 1.950,- teg 7204 - mjúkur og flottur í BCDE skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl á kr. 1.950,- Létt Bylgjan kemur þér í jólaskap Bragi Guðmundsson og Jóhann Örn Ólafsson spila uppáhalds jólalögin þín, alla virka daga frá 8 - 18 Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is sími 512 5473 Laugardaga

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.