Fréttablaðið - 15.12.2009, Síða 45
ÞRIÐJUDAGUR 15. desember 2009
Í Heilsuborg starfa læknar með
ýmiss konar sérfræðimenntun,
hjúkrunarfræðingar, næring-
arfræðingar, sálfræðingar og
félagsráðgjafar. Þar er einnig
líkamsræktarstöð sem býður
upp á sérstaka nýjung sem heitir
Lyklaþjálfun.
Tecnogym er nafn á líkamsrækt-
artækjum sem notast við sérstakt
tölvutengt þjálfunarkerfi. Sá eða
sú sem lyftir í tækjasal Heilsu-
borgar hefur tölvukubb meðferð-
is, nokkurs konar USB-lykil, sem
fylgist með framvindu líkams-
ræktarinnar. „Þegar ég byrjaði í
þessu prógrammi þá fór þjálfari
með mér í tækin og sá hve miklu
ég lyfti og hvernig ætti að stilla
sætin,“ segir Hildur Kristjánsdótt-
ir, markaðsstjóri hjá Heilsuborg.
„Þegar ég mæti og sting lyklinum
í samband segir tækið mér hvar
ég á að hita upp. Þegar ég er búin
að fara í eitt tæki þá bendir lyk-
illinn mér á næsta tæki, hvernig
á að stilla það og hve oft ég á að
lyfta,“ segir Hildur og útskýrir
að lykillinn telji hve margar lyft-
ur maður hefur framkvæmt. „Mér
finnst ótrúlega hvetjandi að ein-
hver skuli fylgjast með manni þó
það sé í raun enginn að því. Ef ég
svindla þá kemur það fram, því í
lok dags þegar ég stimpla mig út
þá sýnir lykillinn dagsplanið og
hvernig ég stóð mig í að uppfylla
það,“ segir Hildur um reynslu sína
af einkaþjálfaranum sem býr í
tölvuskjáum lyftingasalarins. Hún
tekur sem dæmi þegar hún er að
lyfta og telur sig ekki geta meir,
segi tölvuskjárinn henni að hún sé
aðeins búin með til dæmis þrett-
án af fimmtán lyftum sem hún á
að taka og það veiti henni innspýt-
ingu til að taka tvær lyftur til við-
bótar.
Í Heilsuborg er líka að finna
lækna og sjúkraþjálfara sem huga
að heilsu skjólstæðinga sinna.
Anna Borg sjúkraþjálfari bætir við
ræðu Hildar að hreyfi maður sig
aukalega, eins og að fara í göngu-
túr, skokka eða ganga á fjall, þá sé
hægt að skrá þá aukahreyfingu í
gagnabanka rafræna einkaþjálfar-
ans og nota þá hreyfingu til að ná
settum markmiðum. „Í Heilsuborg
gefst kostur á að fá heilsumat og
í framhaldi af því býðst meðferð
fagaðila, fræðsla og þjálfun sem
hentar hverjum og einum. Þar er
vönduð fræðsla þar sem gefin eru
ráð um það hvað hægt er að gera
til að lifa heilbrigðu lífi, líða vel
andlega sem líkamlega og fyrir-
byggja heilsubrest,” segir Anna
Borg. - nrg
Lyklaþjálfi fylgist
með framvindunni
Erla Gerður Sveinsdóttir læknir og Anna Borg sjúkraþjálfari, búnar að stinga Lykla-
þjálfanum í æfingatækið. Hildur stundar æfingar í bakgrunninum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Tíu ára fangelsi bíður þess sem fram-
kvæmir umskurð á stúlku svo og
þeim sem þröngvar stúlku til þess
að undirgangast þessa sársaukafullu
aðgerð. Lög þess efnis voru einróma
samþykkt á þingi í Úganda í síðustu
viku.
Umskurður kvenna er algengur í Afr-
íku. Aðgerðin er ekki mjög algeng í
Úganda en hefur þó verið stunduð í
nokkrum mæli í samfélögum í norð-
austurhluta landsins.
Árið 2007 lýstu Sameinuðu þjóð-
irnar því yfir að umskurður kvenna
væri gróf árás á réttindi kvenna. Þá þótti ljóst að umskurður yki hættu á
HIV-smiti og aukinni dánartíðni mæðra og barna. Talið er að um 100 til 140
milljónir kvenna í heiminum hafi verið umskornar.
Banna umskurð kvenna
STJÓRNVÖLD Í ÚGANDA Í AFRÍKU HAFA BANNAÐ UMSKURÐ KVENNA MEÐ
LÖGUM.
Stjórnvöld í Úganda hafa bannað
umskurð kvenna með lögum.
Næg hvíld er nauðsynleg
til að halda góðri heilsu.
Enn fremur er góð hvíld
mikilvæg svo unnt sé að
ná auknum árangri í lík-
amsræktinni. Reyndu að
forðast aðstæður sem hafa
truflandi áhrif á svefninn.
500 hollráð
Gefðu góða jólagjöf sem veitir vellíðan.
Þessi glæsilega gjöf fylgir öllum gjafakortum að upphæð
10.000 kr. eða meira.*
Gjafabréf
*Á meðan birgðir endast