Fréttablaðið - 15.12.2009, Blaðsíða 58
38 15. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR
folk@frettabladid.is
Fyrir jólin berast iðulega
fregnir af því að kvik-
myndafyrirtæki kaupi kvik-
myndarétt að skáldsögum.
Ef kvikmynd ratar á hvíta
tjaldið getur það haft mikið
auglýsingagildi.
Tuttugu og átta kvikmyndarétt-
ir eru nú til taks hjá íslenskum
framleiðslufyrirtækjum sam-
kvæmt lauslegri könnun Frétta-
blaðsins. Þrjár eru vel á veg
komnir: Rokland, sem byggð er
á bók Hallgríms Helgasonar, var
í tökum fyrr á þessu ári, Svart-
ur á leik eftir Stefán Mána fer í
tökur á næsta ári þar sem Þor-
valdur Davíð leikur aðalhlutverk-
ið og Órói eftir Ingibjörgu Reyn-
isdóttur er komin vel á veg. Hún
var einnig í tökum á þessu ári en
leikstjóri er Baldvn Z
Ein elsta myndin á listanum
yfir bækur sem hafa verið seldar
er Slóð fiðrildanna eða A Journey
Home eftir Ólaf Jóhann Ólafsson.
Upphaflega stóð til að Liv Ull-
man myndi leikstýra þeirri mynd
og hjónakornin Jennifer Conn-
elly og Paul Bettany höfðu verið
ráðin til að leika aðalhlutverk-
in. Fréttir um að Connelly væri
farin að læra íslensku fyrir hlut-
verkið bárust hingað til Íslands.
Ullman datt aftur á móti út og
Bille August var sagður eiga að
leikstýra myndinni en fátt hefur
gerst síðan þá. Hollywood-fram-
leiðandinn Steven Haft á réttinn
að myndinni.
Til að byrja með er rétt að
geta þess að þetta eru engir
tugir milljóna sem þarna skipta
um hendur. Kvikmyndaréttar-
samningum hefur verið skipt í
tvo flokka. Annars vegar leiga á
rétti þar sem höfundur fær eina
greiðslu á ári í einhvern tiltekinn
tíma, oftast þrjú ár, og hins vegar
beinhörð kaup á kvikmyndarétti.
Þá fær höfundur eina greiðslu
við undirskrift og aðra ef bókin
verður síðan loks að kvikmynd.
Fyrir tveimur árum var leigan
í kringum 300 þúsund krónur á
ári en þegar samið var um kaup á
kvikmyndarétti fékk höfundurinn
í kringum hálfa milljón við und-
irskrift og sömu upphæð ef kvik-
myndin verður að veruleika.
Á þessu ári hefur ekki verið
neinn hörgull af fréttum um kvik-
myndaréttasamninga. Konur eftir
Steinar Braga reið á vaðið í okt-
óber en þá keypti ZikZak réttinn
að þeirri bók. ZikZak samdi einn-
ig við Kristínu Helgu Gunnars-
dóttur um gerð kvikmyndar eftir
barnabókinni Draugaslóð. Í kjöl-
farið kom svo frétt um að Björn
Brynjólfur Björnsson hefði samið
við Viktor Arnar Ingólfsson um
hugsanlega kvikmynd- eða sjón-
varpsþáttaröð eftir Flateyjargátu.
Samvinna þeirra tveggja hafði
áður getið af sér sjónvarpsþátta-
röðina Mannaveiðar sem sýnd var
á RÚV. Nýverið var síðan greint
frá tveimur samningum til við-
bótar; annars vegar keypti Saga
Film réttinn að Ódáðahrauni
eftir Stefán Mána og svo blandaði
skartgripahönnuðurinn Hendr-
ikka Waage sér óvænt inn í kvik-
myndabransann ásamt Hrafn-
hildi Gunnarsdóttur frá Krumma
Films og keypti réttinn að Barón-
inum eftir Þórarin Eldjárn.
freyrgigja@frettabladid.is
BEÐIÐ EFTIR HVÍTA TJALDINU
KOMNAR ÁLEIÐIS
Rokland
Hallgrímur Helgason
Leikstjóri: Marteinn Þórsson
Tegund: Bíómynd
Órói
Ingibjörg Reynisdóttir
Leikstjóri: Baldvin Z
Tegund: Bíómynd
VINSÆLIR HÖFUNDAR
Stefán Máni hefur verið duglegur að selja kvikmyndaréttinn að bókum sínum;
Skipið, Svartur á leik og Ódáðahraun eru allar komnar inn á borð hjá íslenskum
framleiðslufyrirtækjum. Ameríkanar hafa verið áhugasamir um bækur Ólafs
Jóhanns Ólafssonar en Liz Manne á réttinn að Höll minninganna og Steven
Haft keypti Slóð fiðrildanna. Kristín Helga seldi kvikmyndaréttinn að bókinni
Draugaslóð til ZikZak fyrr á þessu ári og Túndra keypti réttinn að Fólkinu í kjallar-
anum eftir Auði Jónsdóttur.
Draugaslóð
Kristín Helga Gunnarsdóttir
ZikZak 2009
Flóttinn/Dætur mæðra
minna
Sindri Freysson
Felix Film 2009
Konur
Steinar Bragi
ZikZak 2009
Flateyjargáta
Viktor Arnar Ingólfsson
Björn Brynjólfur 2009
Cannibal Holiday +*
Þórarinn Leifsson
Árfarvegur 2009
Ódáðahraun
Stefán Máni
Saga Film 2009
Baróninn
Þórarinn Eldjárn
Krumma Films 2009
Yosoy
Guðrún Eva Mínverudóttir
Snorri Þórisson 2008
Grafarþögn +
Arnaldur Indriðason
Baltasar Kormákur 2008
Afleggjarinn
Auður A. Ólafsdóttir
WhiteRiver Productions
2008
Fólkið í kjallaranum
Auður Jónsdóttir
Túndra 2007
Hnífur Abrahams
Óttar Martin Norðfjörð
ZikZak 2007
Indjáninn
Jón Gnarr
True North 2007
Myndin af pabba
Gerður Kristný
Elf Films 2007
Skipið
Stefán Máni
ZikZak 2006
Krosstré
Jón Hallur Stefánsson
Pegasus 2006
Þriðja táknið
Yrsa Sigurðardóttir
Ziegler Films 2006
Öxin og Jörðin
Ólafur Gunnarsson
Sigurjón Sighvatsson 2006
Morðið í Hæstarétti
Stella Blómkvist
UFA Fernsehproduktion
GmbH 2006
Svartur á leik
Stefán Máni
ZikZak/Filmus
Höll minninganna
Ólafur Jóhann Ólafsson
Liz Manne 2004
Slóð fiðrildanna +
Ólafur Jóhann Ólafsson
Steven Haft 2003
Bæjarins verstu +
Hreinn Vilhjálmsson
Vesturport (ekki vitað)
Aska +
Yrsa Sigurðardóttir
Pegasus (ekki vitað)
Í upphafi var morð
Árni Þórarinsson og Páll
Kristinn Pálsson
UFA Fernsehproduktion
GmbH (ekki vitað)
Gauragangur +
Ólafur Haukur Símonarson
ZikZak (Ekki vitað)
Sjálfstætt fólk
Halldór Laxness
Snorri Þórisson (Ekki
vitað)
Tími nornarinnar +
Árni Þórarinsson
Leiknar myndir (Ekki vitað)
*Listinn er ekki tæmandi
*Inn á þessum lista er Cannibal
Holiday en handritið að þeirri
mynd skrifar höfundurinn sjálfur,
Þórarinn Leifsson.
** Myndir merktar með + hafa
ratað inn á borð Kvikmyndamið-
stöðvar.
29 BÆKUR Á LISTA
„Mér fannst yndislegt að vinna þetta upp
á nýtt,“ segir kontratenórinn Sverrir Guð-
jónsson. Hann, í samvinnu við Skálholts-
útgáfu, hefur endurútgefið plötuna „Og
það varst þú“ sem hann tók upp með Páli
Óskari Hjálmtýssyni fyrir 25 árum.
Nýja útgáfan er endurhljóðblönduð
og hefur Sverrir einnig bætt við þrem-
ur barnasöngvurum úr Söngvaseiði sem
syngja ofan í kórinn sem var á upphaf-
legu plötunni. „Ég fann Pál Óskar á þeim
tíma þegar hann var að syngja í leikriti.
Ég heillaðist af röddinni hans og ákvað
að athuga hvort hann væri ekki til í að
syngja inn á plötu með mér sem þá var
í undirbúningi. Hann tók því mjög vel,“
segir Sverrir um samstarfið við Pál
Óskar. „Hann var með mjög heillandi
drengjarödd og ég var mjög fljótur að
kveikja á því.“ Á meðal laga á plötunni
eru Í bljúgri bæn, Er vasapening ég fæ
og Hringrás, sem er eftir Joni Mitchell.
Eftir að platan kom út týndust upptök-
urnar en þegar þær komu aftur í leitirn-
ar fyrir nokkru ákvað Sverrir að end-
urútgefa þær á geisladiski. Á plötunni
eru einnig gamlar upptökur frá sex ára
krökkum sem Sverrir hafði kynnst í
opna skólanum í Fossvogi þar sem hann
starfaði. Fékk hann krakkana til að tala
um lífið og tilveruna við píanóundirleik
Jónasar Þóris.
„Það sem kom mér á óvart við að fara
ofan í saumana á þessu löngu síðar er
hversu einlæg platan er og hversu vel hún
talar til okkar á þessum tímum. Ísland
sem þjóð hefur misst sjálfstraustið og ég
finn að fólk leitar í þessi gömlu gildi sem
við lærðum sem börn,“ segir Sverrir.
- fb
Endurútgefur Páls Óskars-plötu
FYRIR 25 ÁRUM Sverrir Guðjónsson og Páll
Óskar bregða á leik fyrir 25 árum síðan.
> LEITA AÐ HÚSI
Reneé Zellweger er sögð ætla að
hefja sambúð með kærasta sínum,
leikaranum Bradley Cooper. Sam-
kvæmt fjölmiðlum vestanhafs sást
parið vera að skoða hús í Los Ang-
eles á dögunum. Þau eru sögð
vilja taka samband sitt á næsta stig,
en undanfarið hafa þau eytt miklum
tíma saman og er Cooper sagður hafa
kynnt Zellweger fyrir foreldrum sínum.
ST
O
FA
5
3
MÁ
LTÍÐ
MÁN
AÐA
RINS