Fréttablaðið - 15.12.2009, Page 60

Fréttablaðið - 15.12.2009, Page 60
40 15. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR Tónlist ★★★ Pascal Pinon Pascal Pinon Ákveðin ofurkrútt Jófríður Ákadóttir semur lög og texta á þessari fyrstu plötu Pascal Pinon. Hún er í Melaskóla og stofnaði bandið seint á síðasta ári með þremur jafnöldrum sínum. Þá voru þær 14 ára. Sjaldgæft er að svo ungar stelpur hafi svo sterk bein í nefinu að þær fari alla leið og gefi út plötu með frumsömdu efni, en það er einmitt það sem stelpurnar í Pascal Pinon gerðu. Og þær gerðu það algjörlega á eigin forsendum. Eftir að hafa vakið athygli á sér á tónleikum bauðst þeim alls konar tækifæri – að taka upp í góðu hljóðveri og fá útgáfu- eða dreifingar- samning – en stelpurnar vildu miklu frekar gera allt sjálfar, taka upp heima hjá sér og gefa út og dreifa. Það er því ekki annað hægt en að taka ofan alla hugsanlega hatta fyrir þessum hæfileikaríku og ákveðnu stelpum. Þær verða vonandi fordæmi fyrir kynsystur sínar, því stelpur virðast alltof oft veigra sér við þátttöku í tónlist, samanber sorglega lágt hlutfall kvenfólks í Músiktilraunum. En að plötunni. Hún er ellefu laga og rétt undir hálftíma löng. Lögin lulla áfram í heimilislega skemmtilegum föndurgír, oft mjög greinilega undir áhrifum frá Amiinu og Ólöfu Arnalds. Krúttleg naumhyggjan ræður ríkjum í útsetningunum. Kassagítar varðar leiðina, bassi, sílafónar, blokkflautur, harmónikur og fleiri hljóðfæri leggja sparlega í púkkið. Textar eru á íslensku og ensku og söngur Jófríðar smellpassar við þessa afslöppuðu músík. Stundum syngja fleiri í einu og þá er gaman. Lögin á plötunni eru nokkuð keimlík og því er vonandi að hljómsveitin stækki litaspjald sitt í framtíðinni. Ég hef litlar áhyggjur því þessar stelpur er jú vonandi bara rétt að byrja. Og þessi fína byrjun lofar frábærlega fyrir framtíðina. - Dr. Gunni Niðurstaða: Hæfileikaríkar unglingsstúlkur með skemmtilega föndurmúsík Þrátt fyrir gjálífi margra Hollywood-stjarna eru einnig til þær stjörnur sem eiga í ástríkum samböndum sem endast út ævina. Leikarinn Paul Newman var einnar konu maður og sagði eitt sinn að heimskulegt væri að fara út að borða hamborgara þegar maður ætti góða steik heima. STJÖRNUSAMBÖNDIN SEM STANDAST TÍMANS TÖNN Í FRIÐ OG RÓ Hjartaknúsarinn Johnny Depp kynntist eiginkonu sinni, Vanessu Paradis, árið 1998 við tökur á kvikmynd. Þau hafa aldrei gift sig og hefur Depp sagt að það sé óþarfi að breyta einhverju sem sé full- komið. Þau eiga saman tvö börn, dótturina Lily Rose og soninn Jack. Þau búa í París en eiga einnig hús í Man- hattan, Bahama-eyjum og sveitabýli í Suður-Frakklandi. Depp og Paradis reyna að halda sig fjarri hringiðunni í Hollywood og virðast hamingjusöm í hinu rólega lífi í Frakklandi. SÁ HANA FYRST Í AUGLÝSINGU Stórleikarinn Michael Caine hefur verið kvæntur fyrirsætunni Shakiru Baksh frá árinu 1973. Caine sá Shakiru í Maxwell kaffi-auglýsingu og heillaðist svo af stúlkunni að hann ákvað að verða sér úti um símanúmer hennar, sem hann og gerði. Hjónin eiga saman eina dótt- SKRAUTLEG Goldie Hawn og Kurt Russell kynntust fyrst við tökur á kvikmyndinni The One And Only, Genuine, Original Family Band árið 1968 en tóku þó ekki saman fyrr en árið 1983. Hjónin eiga einn son saman en tvö börn Hawn af fyrra hjónabandi líta þó á Russell sem föður sinn og þegar Kate Hudson, dóttir Hawn, eignaðist sitt fyrsta barn skírði hún soninn Ryder Russell í höfuðið á Kurt. Hjónin eru lítið áberandi í slúður- blöðum hið vestra og virðast njóta lífsins saman í rólegheitunum. STEIKIN HEIMA Eitt lengsta Holly- wood-sambandið er án efa hjónaband Pauls Newman og leikkonunnar Joanne Woodward, en þau gengu í það heilaga árið 1958 og eiga þrjár dætur saman. Newman og fjölskylda bjuggu í Connecticut, fjarri gjálífinu í Holly- wood. Newman var mjög trúr eiginmaður og faðir og lét eitt sinn þessi fleygu orð falla: „Því ætti maður að fara út að fá sér hamborgara þegar maður á góða steik heima?“ SAMHELDIN HJÓN Susan Sarandon og Tim Robbins kynnt- ust við tökur á kvikmyndinni Bull Durham árið 1988. Þau hafa verið saman síðan þá, en hafa aldrei gift sig. Sar- andon og Robbins deila áhuga sínum á stjórnmálum og taka gjarnan þátt í ýmsum pólitískum aðgerðum saman. Þau eru búsett í New York-borg og eiga saman tvo syni. Í SKUGGA SORGAR Leikkonan Meryl Streep kynntist eiginmanni sínum, Don Gummer, árið 1978. Streep hafði stuttu áður misst unnusta sinn, leikarann John Cazale, sem hafði þjáðst af krabbameini í nokk- urn tíma. Streep og Gummer giftu sig 30. september 1978 á heimili foreldra hennar í New Jersey. Þau eiga saman fjögur börn og hefur ein dóttirin, Mamie, fetað í fótspor móður sinnar og lagt leik- listina fyrir sig. Oksana Grigorieva, kærasta stórleikarans Mels Gibson, er ósátt við það hversu lítinn tíma Gibson eyðir með dóttur þeirra. Parið eignaðist sitt fyrsta barn saman í nóvem- ber og stuttu síðar sagði Oksana í viðtali við Hello! að Gibson væri hinn fullkomni maki og faðir. En nú er tíðin önnur því Oksönu þykir Gibson ekki standa í stykkinu. „Hann býr ekki í sömu íbúð og Oksana og barnið og það líða oft margir dagar á milli heimsókna. Þegar hann lítur inn er hann ekki að aðstoða Oksönu við uppeldið. Hann segist ekki vera að ala Luciu upp á annan hátt en hin börn sín og viðurkenndi að Robyn, fyrrum eiginkona hans, hafi alfarið séð um uppeldið,“ var haft eftir vini Oksönu. Mel afskiptalaus faðir SLÆMUR UPPALANDI Mel Gibson sinnir dóttur sinni lítið að sögn barnsmóður hans. Tvær glæsilegar veiðibækur í gjafaöskju L á íKjós ogBugða Eftir Guðmund GuðjónssonLjósmyndir eftir Einar Fal Ingólfsson E ftir G u ð m u n d G u ð jó n sso n Ljó sm y n d ir eftir E in F Laxá í Kjós og Bugða & Langá á Mýrum eftir Guðmund Guðjónsson og Einar Fal In Veiðistaðalýsingar, ágrip af sögunni, hugleiðingar og veiðisögur allmargra veiðimanna sem veitt haf bökkum Langár á Mýrum og Laxár í Kjós og Bug Bækurnar eru ríkulega skreyttar myndum Einars Ingólfssonar, ljósmyndara á Morgunblaðinu. Einnig er að finna í bókunum fjölda eldri mynda í sérköflum sem tengja bækurnar fortíðinni.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.