Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.12.2009, Qupperneq 64

Fréttablaðið - 15.12.2009, Qupperneq 64
44 15. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR sport@frettabladid.is Ágúst Þór Jóhannsson skrifaði um helgina undir nýjan þriggja ára samning við norska úrvalsdeildarfélagið Levanger sem hann hefur stýrt nú síðan í sumar. Þetta gerði hann þrátt fyrir áhuga sem stórlið Byåsen sýndi honum nú fyrir fáeinum vikum en það er eitt besta félag heims í kvennahandboltanum. „Ég er mjög ánægður með samninginn. Þetta er góður klúbbur og það er gott að vera hérna,“ sagði Ágúst við Fréttablaðið í gær. „Það er einnig mikill áhugi fyrir kvennahandbolta hér í bænum, ég lít á það sem hið besta mál að vera áfram hér. Fjölskyldunni líður vel í bænum og ég sé tækifæri til að gera góða hluti með liðinu.“ Ágúst var áður með tveggja ára samning en forráðamenn Levanger höfðu frumkvæði að því að bjóða honum nýjan samning. „Það var væntanlega eftir að Byåsen kom í umræð- una. Ég fékk símtal frá félaginu fyrir nokkru þar sem ég var spurður hvort ég gæti hugsað mér að skoða þetta mál. Ég neita því ekki að mér fannst þetta spennandi en ég sá ekki ástæðu til þess að yfirgefa Levanger nú. Ég hef vissulega metnað til að ná langt sem þjálfari en ég er ungur enn og mér finnst það spennandi tilhugsun að fá að byggja upp félagið hér í Levanger.“ Þar að auki er Ágúst Þór á leiðinni í nám um áramótin. „Ég er að taka þjálfaragráðu sem nefnist EHF Master Coach og er á vegum norska handboltasambandsins í samstarfi við EHF (Hand- boltasamband Evrópu). Þetta er æðsta þjálfaragráða sem hægt er að fá í handboltanum og ekki ólíkt því að fá UEFA Pro-gráðuna í fótboltanum,“ sagði Ágúst. „Þetta mun taka næstu tvö árin en þetta verður kennt bæði hér í Noregi sem og í Þýskalandi.“ Levanger er sem stendur í níunda sæti úrvals- deildarinnar og segir Ágúst að hann hafi stefnt hærra með liðið. „Það var þó vita að þetta yrði strembið þar sem liðið þurfti að taka þátt í umspili um úrvalsdeildarsæti á síðasta tímabili. Það hafa verið nokkur meiðslavandræði í hópnum en ég hef fulla trú á því að við getum halað inn fleiri stig eftir áramót. Það vantar ekki mikið upp á og aðal- málið er að halda einbeitingunni góðri.“ ÁGÚST ÞÓR JÓHANNSSON: GERÐI NÝJAN ÞRIGGJA ÁRA SAMNING VIÐ LEVANGER Í NOREGI Sé tækifæri til að gera góða hluti með liðinu FÓTBOLTI Fjórir leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Hæst ber að Manchester United tekur á móti Wolves sem vann óvæntan og góðan útivall- arsigur á Tottenham nú um helgina. United tap- aði að sama skapi á heimavelli fyrir Aston Villa. United á mögu- leika á því að koma sér á topp deildar- innar með í kvöld þar sem Chelsea leikur næst á morgun. United þyrfti þó að vinna með sjö marka mun þar sem forysta Chelsea er nú orðin þrjú stig. Aston Villa getur komið sér upp í þriðja sæti deildarinn- ar með sigri á Sunderland á útivelli í kvöld en þá mæt- ast einnig Bolton og West Ham í miklum fall slag. Bæði lið eru í fallsæti. Bolton gerði um helgina 3-3 jafntefli við Manchest- er City á heimavelli og lagði Grétar Rafn Steinsson upp eitt mark sinna manna. Hann verður líklega aftur í byrjunarliðinu í kvöld. Að síðustu eig- ast við lið Birming- ham og Blackburn en bæði lið eru um miðja deild. Takist Birmingham að fá stig í leiknum fell- ur Liverpool niður í átt- unda sæti deildarinnar. Fjórir aðrir leikir fara fram í deildinni annað kvöld og verða þá hin „stór- liðin“ þrjú – Chelsea, Ars- enal og Liverpool – í eldlín- unni. - esá Fjórir leikir í ensku úrvalsdeildinni í kvöld: Gefur United eftir? ALEX FERGUSON Knattspyrnustjóri Manchester United. NORDIC PHOTOS/GETTY > Fer í læknisskoðun í dag Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Ólafur Garðarsson, umboðsmaður hans, héldu í gær til Englands þar sem Gunnar Heiðar mun gangast undir læknisskoðun hjá enska B-deildarfélaginu Reading í dag. Ef allt gengur að óskum mun Gunnar Heiðar væntanlega skrifa undir samning við Reading en danska úrvalsdeild- arfélagið Esbjerg hefur samþykkt að lána Gunnar Heiðar út þessa leiktíð. Reading mun þá hafa kost á því að festa kaup á Eyjapeyjanum ef hann stendur sig. HANDBOLTI Lokaumferð milliriðla- keppninnar á HM í handbolta fer fram í dag en mikil spenna ríkir um hvaða fjórum liðum tekst að tryggja sér sæti í undanúrslitun- um. Eitt þessara liða er norska landsliðið sem leikur undir stjórn hins íslenska Þóris Hergeirsson- ar. Spánverjar eru eina liðið sem hafa þegar tryggt sér sæti í und- anúrslitunum en það gerðu þeir á sunnudaginn með naumum sigri á Florentinu Stanciu, leikmanni Stjörnunnar, og félögum í rúm- enska landsliðinu. Fyrir vikið eiga Rúmenar ekki lengur möguleika á sæti í undanúrslitunum. Noregur mætir Spánverjum í dag og þarf helst á sigri að halda til að tryggja sér sæti í undanúr- slitunum. Hins vegar mun það fleyta Norðmönnum einnig í und- anúrslit ef Rúmenum tekst að vinna Suður-Kóreu. Noregur tap- aði sínum fyrsta leik á mótinu á laugardaginn er liðið tapaði fyrir Suður-Kóreu, 28-27. Ágúst Þór Jóhannsson er þjálf- ari norska úrvalsdeildarfélagsins Levanger og hefur fylgst vel með HM í Kína. „Það var auðvitað gríðarlega svekkjandi að tapa fyrir Suður-Kóreu en mér kom það samt ekkert sérstaklega á óvart. Noregur er ekki með yfirburða lið á þessu móti og Suður-Kórea er gríðarlega sterkt. Væntingarnar í Nor- egi eru samt gríðar- lega miklar og þeir eru sumir hér sem skilja bara ekki hvernig þetta lið eigi að geta tapað leik.“ Ágúst er ánægður með hvað Þórir hefur gert með liðið. „Hann er að gera flotta hluti með þessu liði og ég hef fulla trú á því að Norðmenn vinni Spánverja í dag. Það býr mikil reynsla í norska liðinu og ég gæti vel trúað því að Spánverjar munu eitthvað gefa eftir fyrst þeir eru öruggir áfram.“ Gríðarlega mikill áhugi er í Noregi fyrir keppninni í Kína. „Leik- urinn á morgun [í dag] er klukkan tólf á hádegi og þjóðfélagið lamast á meðan. Það er gríðarlega vel fylgst með.“ - esá Gríðarlega mikilvægur dagur hjá stelpunum hans Þóris Hergeirssonar í dag: Sæti í undanúrslitunum í húfi ÞÓRIR HERGEIRSSON Stendur í ströngu á HM í Kína. NORDIC PHOTOS/AFP Ef þú notar MasterCard kort frá Kreditkorti gæti barnið þitt upplifað ógleymanlega stund. Tveir krakkar á aldrinum 7-9 ára fá að fara ásamt fylgdarmanni á leik í Meistaradeild Evrópu í Englandi 2010 og leiða leikmann inn á völlinn. Fjölmargir skemmtilegir aukavinningar SKRÁÐU ÞIG TIL LEIKS Á WWW.KREDITKORT.IS UPPLIFUN SEM ALDREI GLEYMIST BARNIÐ ÞITT GÆTI LEITT HETJUNA SÍNA INN Á VÖLLINN Í MEISTARADEILDINNI  FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen og félagar í Mónakó eru á hraðri niðurleið í frönsku úrvalsdeildinni eftir þrjú í röð og aðeins eitt stig út úr síðustu fimm leikjum. Món- akó var í 2. sæti deildarinnar fyrir aðeins tæpum tveimur mánuðum en er nú komið niður í 12. sætið og farið að nálgast fallbaráttuna. Eiður Smári hefur enn ekki náð að skora fyrir liðið og hann hefur aldrei fengið verri dóma fyrir frammistöðu sína en í Lille- leiknum á sunnudagskvöldið. Tvö stærstu fótboltablöð lands- ins, France Football og Ĺ Equipe, gáfu íslenska landsliðsmanninum aðeins tvo (af tíu) í einkunn. Eiður Smári lék í 62 mínútur í leiknum og var skipt út af í stöð- unni 0-2 fyrir Lille. Hann kom alls þrettán sinnum við boltann í leiknum og 6 af 8 sendingum hans heppnuðust. Mónakó vann þrjá leiki í röð án hans í október (spilaði í eina mín- útu í einum) en hefur síðan ekki unnið leik. Það sem er enn verra er að Mónakó-liðið hefur ekki skorað í síðustu þremur leikjum þar sem Eiður Smári hefur verið í byrjun- arliðinu. Mónakó hefur á móti náð í 15 af 22 stigum sínum á tímabil- inu í leikjum þar sem Eiður Smári hefur ekki verið í byrjunarliðinu. Einkunnir Eiðs Smára um helg- ina voru eins og áður sagði þær lægstu hjá honum á tímabilinu en fyrir var hann ekki búinn að heilla mikið frönsku blaðamennina. Eiður Smári hafði hæst fengið fimm í einkunn og það bara einu sinni og það hjá aðeins Ĺ Equipe. Umræddur leikur var fyrir rúmri viku en Eiður kom þá inn á sem varamaður í hálfleik í 1-3 tapi fyrir Valenciennes. Ĺ Equipe hefur verið örlítið ánægðari með frammistöðu Eiðs Smára en hann er með meðal- einkunn upp 3,57 í þeim sjö leikj- um sem hann hefur fengið ein- kunn fyrir. Meðaleinkunn hans hjá France Football er aðeins upp á 3,29 þar sem hann hefur fengið lægra en fjóra í 4 af 7 leikjum. Það er ekki bara kalt mat franskra blaðamanna á Eiði Smára sem kemur illa út því sjálf tölfræð- in lýgur ekki. Eiður Smári hefur nefnilega ekki enn náð að skora eða gefa stoðsendingu með Món- akó þrátt fyrir að vera búinn að spila 8 deildarleiki og í 449 mín- útur með liðinu. Leikurinn á móti Lille var enn fremur sjötti leik- urinn þar sem hann nær ekki að skjóta að marki. Eiður Smári hefur reyndar aðeins náð að skjóta þrisvar sinn- um í þessum átta leikjum (sam- kvæmt tölfræði á heimasíðu frönsku deildarinnar) sem þýðir að það hafa liðið tæpar 150 mínút- ur milli skota hjá honum. Slík töl- fræði er allt annað en góðar frétt- ir fyrir sóknarmann sem ætlaði að sanna sig á nýjan leik eftir bekkj- arsetuna hjá Barcelona fyrri hluta ársins. ooj@frettabladid.is Ekkert gengur hjá Eiði Eiður Smári Guðjohnsen fékk aðeins tvo í einkunn hjá bæði France Football og Ĺ Equipe fyrir frammistöðu sína í 0-4 tapi Mónakó fyrir Lille um helgina. LEIKIR OG EINKUNNIR EIÐS**: France Football/L´Equipe Paris Saint-Germain (heima) 2-0 sigur 3/3 Nice (út) 3-1 sigur 4/4 Saint-Etienne (heima) 1-2 tap 3/4 Grenoble (h) 0-0 3/3 Auxerre (ú) 0-2 tap 4/4 Valenciennes (ú) 1-3 tap* 4/5 Lille (h) 0-4 tap 2/2 * Varamaður ** Áttundi leikurinn er á móti Marseille þar sem hann kom inn á 90. mínútu. ÞRJÚ SKOT OG NÚLL MÖRK Á 449 MÍNÚTUM Eiður Smári Guðjohnsen finnur sig ekki hjá Mónakó-liðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.