Fréttablaðið - 15.12.2009, Síða 66

Fréttablaðið - 15.12.2009, Síða 66
46 15. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR KÖRFUBOLTI Það verður stórleik- ur í DHL-Höllinni í Frostaskjóli í kvöld þegar Íslandsmeistarar KR taka á móti Snæfellingum og um leið heitustu skyttunni í dag. Leikurinn er fyrsti leikur ell- eftu umferðar Iceland Express- deildar karla og var flýtt um þrjá daga þar sem KR-liðið er á leið- inni til Kína að mæta Beijing Aos- hen í tveimur sýningarleikjum. KR og Snæfell eru í hópi fimm efstu liða deildarinnar sem eru öll með 14 og 16 stig og þessi leik- ur er einn af lykilleikjum í barátt- unni um efstu sætin. Sean Burton, bandaríski bak- vörðurinn í Snæfelli, hefur sett niður 24 af 32 þriggja stiga skot- um sínum í síðustu tveimur leikj- um Snæfells. Þessi tölfræði ætti að gefa Snæfellingum sjálfstraust fyrir leikinn í kvöld en það er þó önnur tölfræði sem slær þá skot- sýningu Sean út. Snæfellingar eru nefnilega komnir með taplausa manninn í sitt lið, bakvörðinn og gamla KR- inginn Pálma Frey Sigur- geirsson. Pálmi Freyr hefur spilað undanfarin sex tímabil með KR (2005 -2009) eða Snæfelli (2004- 05 og 2009-) og það lið sem hefur haft hann innan- borðs hefur unnið alla tíu deildarleiki liðanna. Umrætt lið með Pálma hefur einnig slegið hitt liðið úr bæði úrslita- keppni (3 sinnum) og bikarkeppni (1 sinni). Pálmi Freyr hefur verið með 10,3 stig og 3,2 stoðsendingar að meðaltali á 29,0 mínútum í þessum tíu deildarleikjum KR og Snæfells frá árinu 2004. Hann hefur hitt úr 53,1 prósent skota sinna þar af 16 af 34 þriggja stiga skotum sínum. Í kvöld kemur það í ljós hvort KR-grýla Snæfellinga hafi eitthvað með Pálma að gera. Vinni Snæfellingar í kvöld væri aftur á móti erfitt að þræta fyrir áhrif lukkumannsins Pálma Freys Sigurgeirs- sonar enda þá búinn að vera í sigurliði í ellefu inn- byrðisleikjum félaganna í röð. - óój Snæfellingar mæta í kvöld með lukkumanninn í viðureignum KR og Snæfells: Tíu-núll fyrir liðið með Pálma LUKKU-PÁLMI Pálmi Freyr Sigurgeirsson mætir sínum gömlu félögum í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON KÖRFUBOLTI Helena Sverrisdótt- ir átti frábæran seinni hálfleik þegar TCU vann 56-65 Texas A&M í bandaríska háskólaboltanum í fyrrinótt. Þetta var óvæntur sigur því Texas A&M er í hópi bestu háskólaliða Bandaríkjanna og var í fimmta sæti á síðasta styrkleika- lista deildarinnar. TCU tryggði sér sigurinn með því að skora tíu síð- ustu stig leiksins. Helena Sverrisdóttir var með 20 stig, 8 fráköst, 7 stoðsendingar og 3 stolna bolta í leiknum og var hæst hjá sínu liði í öllum þessum þremur tölfræðiþáttum. Það var þó einkum frammistaða hennar í seinni hálfleik sem lagði grunninn að þessum glæsilega sigri. „Helena var aðeins með tvö stig í hálfleik en frábærir leikmenn finna alltaf leið til koma til baka líka þegar allt gengur ekki upp hjá þeim,“ sagði Gary Blair, þjálfari Texas A&M um Helenu Útlitið var nefnilega ekki bjart í hálfleik þegar TCU-liðið var átta stigum undir 22-30 og Helena virt- ist ekki vera að finna sig en hún var með 2 stig, 2 fráköst og 3 stoð- sendingar á 13 mínútum í fyrri hálfleik. Seinni hálfleikur henn- ar og liðsins verður væntanlega í minnum hafður en Helena var með 18 stig, 6 fráköst og 4 stoð- sendingar þegar TCU tryggði sér sigur. Helena kom að þrettán af síð- ustu fimmtán stigum TCU í leikn- um (8 stig og 2 stoðsendingar) eða allt frá því að liðið lenti ellefu stigum undir, 41-52, þegar aðeins rúmar fimm mínútur voru eftir. Texas A&M var enn átta stigum yfir, 54-46, þegar 3 mínútur og 38 sekúndur voru eftir en þá tók Hel- ena sig til og skoraði átta stig í röð. Hún skoraði fyrst tveggja stiga körfu og fékk víti að auki sem hún nýtti. Helena skoraði síðan aðra tveggja stiga körfu og setti síðan niður þriggja stiga skot og jafnaði leikinn í 54-54. Félagi hennar T.K. LaFleur tryggði síðan liðinu sigur- inn á vítalínunni. Jeff Mittie, þjálfari TCU, var mjög ánægður með að liðið hans spilaði tvo góða leiki í röð á móti sterkum mótherjum en TCU vann 84-66 sigur á SMU aðeins þrem- ur dögum áður. Helena var með 18 stig, 12 fráköst og 5 stoðsend- ingar í þeim sigri. Helena hefur í kjölfar þessa frábæra sigurleikja verið valin leikmaður vikunnar í Mountain West-deildinni. - óój Helena Sverrisdóttir og félagar í TCU unnu fimmta besta lið bandaríska háskólaboltans um helgina: Frábærir leikmenn koma alltaf til baka SIGRI FAGNAÐ Helena Sverrisdóttir sést hér um leið og TCU hafði tryggt sér sigurinn á Texas A&M. MYND/AP FÓTBOLTI Brynjar Björn Gunnars- son gæti verið á leið frá enska B- deildarfélaginu Reading í næsta mánuði eftir því sem kom fyrst fram í frétt Sky Sports í gær. „Það er nokkuð ljóst að ég verð ekki áfram hjá þeim eftir tímabil- ið. Það gæti því verið möguleiki á að ég myndi færa mig eitthvað í janúar,“ sagði Brynjar Björn á Stöð 2 í gærkvöldi. Brynjar sagði að ekkert lið væri inn í myndinni hjá honum eins og er. „Þetta er algjörlega á byrjun- arstigi og við erum aðeins að líta í kringum okkur. Við erum bæði að skoða lið hérna í Englandi og ef út í það er farið þá er alveg hægt að skoða það líka að fara aftur til Skandinavíu. Ég þekki ágætlega til þar og er mjög opinn fyrir því,“ sagði Brynjar Björn sem spilaði í Noregi (Valerenga og Moss) og í Svíþjóð (Örgryte) frá 1998 til 1999. - óój Brynjar Björn Gunnarsson: Spenntur fyrir Skandinavíu NÝTT LIÐ EFTIR ÁRAMÓT? Brynjar Björn Gunnarsson. MYND/GETTY IMAGES N1-deild karla HK-Haukar 26-19 (12-6) Mörk HK (skot): Valdimar Fannar Þórsson 6/5 (9/5), Atli Ævar Ingólfsson 6 (11), Ragnar Hjalte sted 5 (11), Bjarki Már Elísson 3 (4), Vilhelm Gauti Bergsveinsson 2 (4), Ólafur Víðir Ólafsson 2 (7), Bjarki Már Gunnarsson 1 (1), Hákon Bridde 1 (3). Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 22/2 (38/3, 58%), Lárus Helgi Ólafsson 2 (5, 40%) Hraðaupphlaup: 3 (Vilhelm, Hákon, Bjarki) Fiskuð víti: 5 (Ólafur 2, Atli 2, Ragnar) Utan vallar: 8 mín. Mörk Hauka (skot): Elías Már Halldórsson 3 (5), Guðmundur Árni Ólafsson 3/1 (6/2), Pétur Pálsson 3 (7), Þórður Rafn Guðmundsson 3 (6), Heimir Óli Heimisson 2 (4), Freyr Brynjarsson 2 (7), Einar Örn Jónsson 1 (1), Sigurbergur Sveins son 1 (3/1), Björgvin Hólmgeirsson 1 (7). Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 7 (21/4, 33%), Aron Rafn Eðvarðsson 6 (18/1, 33%) Hraðaupphlaup: 6 (Freyr 2, Pétur 2, Einar ,Elías) Fiskuð víti: 2 (Pétur 2) Utan vallar: 4 mín. STAÐAN Í DEILDINNI: Haukar 9 6 2 1 222-204 14 FH 9 5 1 3 250-238 11 Akureyri 9 5 1 3 220-215 11 Valur 9 5 1 3 223-210 11 HK 9 5 1 3 234-220 11 Grótta 9 4 0 5 229-237 8 Stjarnan 9 2 0 7 206-231 4 Fram 9 1 0 8 227-256 2 Í undanúrslitum deildarbikarsins milli jóla og nýárs mætast Haukar-Valur annars vegar og FH-Akureyri hins vegar. ÚRSLITN Í GÆR HANDBOLTI HK hélt áfram góðu gengi sínu í N1-deild karla með frábærum sjö marka sigri, 26-19, á Íslandsmeisturum Hauka. Þetta var fyrsta tap Hauka á tímabil- inu en liðið hefði getað náð fimm marka forskoti með sigri í gær. Þetta var síðasti leikurinn í deildinni á þessu ári en deild- in hefst svo aftur að nýju hinn 4. febrúar. „Þetta er mjög svekkjandi og hefði verið flott heildarmynd að vinna hér í dag, en það hefði kannski verið einum of gott til að vera satt,“ sagði Aron Kristj- ánsson, þjálfari Hauka, eftir leik en liðið var búið að ná í 14 af 16 mögulegum stigum fyrir skellinn í Digranesi í gærkvöldi. HK-ingar voru miklu meira en klárir í þennan slag gegn Hauk- um. Þeir spiluðu frábæra vörn sem Haukar áttu í miklum erfiðleikum með að finna leið í gegnum. Svein- björn Pétursson, markvörður HK, var líka að verja vel og átti mjög góðan dag. Haukar skoruðu aðeins sex mörk í fyrri hálfleik og það er ekki eitthvað sem sést á hverjum degi. Hauka liðið virkaði óör- uggt og klaufagangur bæði í sókn og vörn áberandi . HK- ingar stungu gest- ina algjörlega af í fyrrihálfleik og stað- an í hálfleik, 12-6. Heimamenn héldu áfram að brosa og njóta þess að spila hand- bolta í síðari hálf- leik. Það var ljóst að þeir ætluðu sér allan tím- ann að vinna þennan leik. Liðs- heildin góð og leik- menn voru að vinna fyrir hvorn annan. Haukarnir vöknuðu þegar um tíu mínútur voru eftir og minnk- uðu muninn í fjögur mörk minnst. En það dugði ekki til og þurftu að játa sig sigraði í fyrsta sinn á þessu tímabili. Þetta var leikur heimamanna frá upphafi til enda og óhætt að segja að enginn hafi búist við þessu fyrir fram. Meistararnir voru ekki búnir að tapa leik í deildinni en misstigu sig í Digranesi og fara súrir í jóla- fríið. Frábær sigur hjá HK-ingum og stjörnuleikur hjá unga og efni- lega markmanni þeirra, Sveinbirni Péturssyni. „Ég get ekki annað en verið sáttur eftir svona leik. Liðið var frábært og góð samvinna og barátta skilaði sigrinum í dag. Hin liðin í deildinni eru ekki að búast við þessu af okkur vegna þessa að við erum með litla breidd en við sýndum að við eigum heldur betur skilið að vera í þessari baráttu. Hin liðin verða að fara að passa sig,“ sagði Sveinbjörn Pétursson, markvörður HK, eftir leikinn í gær. -rag HK-ingar rassskelltu Haukaliðið HK varð fyrsta liðið til að vinna meistara Hauka á tímabili þegar þeir unnu sannfærandi 26-19 sigur í gær. Haukar fara bara með þriggja stiga forskot í EM-fríið en HK er eitt fjögurra liða með 11 stig í 2. til 5. sæti. Sveinbjörn Pétursson átti stórleik í marki HK-liðsins og varði 58 prósent skota Haukanna í leiknum. FLOTTUR Í GÆR Atli Ævar Ingólfsson skorar hér eitt af sex mörkum sínum fyrir HK í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 58 PRÓSENT MARKVARSLA Sveinbjörn Pétursson, mark- vörður HK. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.