Fréttablaðið - 21.12.2009, Page 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
MÁNUDAGUR
21. desember 2009 — 301. tölublað — 9. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
Gefur fólkið
mikið
Friðargangan farin
í þrítugasta sinn á
Þorláksmessu.
TÍMAMÓT 42
BT-BÆKLINGURINN
Stútfullur bæklingur
af flottum tilboðum
Opið til klukkan tíu til jóla
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
dagar til jóla3
Opið til 22
Dekur gjöfin hennar
Gjafakort
handa stóru ástinni í lífi þínu
BJÖRG GUNNARSDÓTTIR
Er í vélsaumaklúbbi
sem hittist og prjónar
• heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
EINU SINNI ER er handverks- og hönnunar-sýning sem stendur yfir í Norræna húsinu til 17. janúar 2010. Sýningin hefur farið víða um land og meðal annars verið sett upp á Svalbarðseyri, Ísa-firði, Sauðárkróki og í Hveragerði.
Björg starfar á skrifstofu í einu ráðuneytanna en þegar hún kemur heim úr vinnunni finnst henni fátt betra en að hreiðra um sig í göml-um stól og hvíla fæturna á hnalli sem afi hennar smíðaði og amma hennar bróderaði. „Þetta er uppá-haldshornið mitt á heimilinu. Hér sit ég og prjóna, geri við fat ðles Stóll
Stóllinn hefur greinilega verið mikið notaður gegnum tíðina að sögn Bjargar. „Hann var orðinn svo lúinn að amma og föðursyst-ir mín bróderuðu áklæði á hann og afi klæddi hann. Þegar ég fékk hann var útsaumurinn orðinn slitinn é
á viðdvöl Fréttablaðsfólks stend-ur. „Systur mínar eru svona líka,“ segir hún hlæjandi þegar haft er orð á iðjuseminni. Við frekara spjall kemur í ljós aðBjörg er í prjónaklúbb
Hægindastóll sem hefur verið í stöðugri notkunBjörg Gunnarsdóttir skrifstofustúlka á ýmsa góða muni eftir afa sinn og ömmu. Þegar hún á lausa stund
heima sest hún gjarnan í gamlan stól sem hún fékk úr þeirra búi og dregur upp prjóna eða bók.
„Hér sit ég oft og prjóna,“ segir Björg í uppáhaldshorninu á heimilinu. Marmaraskálina fékk hún af heimili foreldra sinna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Auglýsingasími
Strekkingur og kalt Í dag
verður 6-10 m/s norðaustan til
en heldur hvassara annars staðar,
einkum SA-til. Búast má við
snjókomu eða éljum NA-lands en
sunnan- og vestanlands verður
nokkuð bjart.
VEÐUR 4
-2
-4
-5
-3
-3
Sendi ráðamönn-
um tóninn
Ragnar Bragason
skammaði ráðherra á
frumsýningu Bjarn-
freðarsonar.
FÓLK 66
Danir bera saman
íslenska rithöfunda
Berlingske Tidende hrósar Hall-
grími Helgasyni í hástert.
FÓLK 66
SJÁVARÚTVEGUR Fjárfestingar HB
Granda hf. í uppsjávarvinnslu
félagsins á Vopnafirði haf numið
tæplega fjórum milljörðum
króna frá þeim tíma sem lið-
inn er frá sameiningu fyrirtæk-
isins við Tanga hf. fyrir fimm
árum. Senn sér fyrir endann á
uppbyggingunni. Á næsta ári
verður lokið við byggingu nýrr-
ar fiskmjölsverksmiðju auk þess
sem ráðist verður í endurbætur á
uppsjávarfrystihúsi.
Umhverfisáhrifin eru veruleg
því ekki þarf lengur að brenna
olíu við framleiðslu á fiskmjöli og
-lýsi en undanfarin ár hefur olíu-
notkun verksmiðjunnar numið
um 2,5 til 3,0 milljónum lítra á
ári.
Með lokuðu kerfi hvað varðar
geymslu og flutning á mjöli frá
verksmiðjunni um borð í flutn-
ingaskip mun notkun einnota
mjölpoka leggjast af. Árlega hafa
verið notaðir um ellefu til tólf
þúsund pokar í þessu skyni og þá
hefur orðið að urða eftir notkun.
Þetta kom fram á kynningar-
fundi sem nokkrir af lykilstjórn-
endum HB Granda héldu með
sveitarstjórnarmönnum á Vopna-
firði í liðinni viku.
Gríðarlegar breytingar hafa
orðið á möguleikum til veiða á
uppsjávartegundum frá árinu
2005. Það ár veiddu skip hins
sameinaða félags 265 þúsund
tonn af kolmunna, síld og loðnu
en til samanburðar mætti nefna
að heimildir þess í sömu fiskteg-
undum á þessu ári nema aðeins
63 þúsund tonnum. Þar munaði
mestu um hrun í loðnuveiðum
og verulegan samdrátt í veiðum
á kolmunna. Þrátt fyrir þenn-
an mikla samdrátt hefur Vopna-
fjörður haldið hlut sínum betur en
mörg önnur sveitarfélög, en fast-
ráðnir starfsmenn fyrirtækisins
á Vopnafirði eru rúmlega fimmtíu
talsins.
Eggert B. Guðmundsson, for-
stjóri HB Granda, fjallaði á fund-
inum sérstaklega um þær vænt-
ingar sem bundnar væru við hina
nýju fiskmjölsverksmiðju sem
verður ein sú fullkomnasta sinn-
ar tegundar. Markmiðið væri að
auka nýtinguna, bæta gæði afurð-
anna, lækka rekstrarkostnaðinn
og bæta umhverfisáhrifin.
Meðal nýjunga er að settur
hefur verið upp rafskautaketill,
sem þegar hefur verið gangsett-
ur, og stefnt er að því að nýja
verksmiðjan verði hin fyrsta í
heiminum sem eingöngu mun
nýta raforku til framleiðslu á
hágæðafiskmjöli.
Loftræsting í nýju verksmiðj-
unni verður einnig með því besta
sem þekkist. Þá verða settir upp
söfnunartankar fyrir hreinsiefni
þannig að hægt verði að nota þau
til að þrífa búnað verksmiðjunnar
oftar en einu sinni. - shá
NÝTT VERKSMIÐJUHÚS Fyrst og síðast
er horft til þess að vinnsla á mjöli og
lýsi sé umhverfisvæn. MYND/HB GRANDI
STJÓRNMÁL Svonefnd Brussel-viðmið
voru kjarni málsins fyrir Íslend-
inga í Icesave-deilunni. Þau tóku
ekki einungis tillit til „erfiðra og
fordæmislausra“ aðstæðna Íslands,
heldur kváðu á um aðkomu Evrópu-
sambandsins að deilunni.
ESB þurfti að skynja ábyrgð sína,
því Ísland sem EES-ríki átti ekki að
hafa lakari stöðu í deilunni en það
hefði haft sem ESB-ríki.
Svo segir í minnisblaði Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur, fyrr-
verandi utanríkisráðherra, sem
hún ritaði utanríkismálanefnd 18.
desember síðastliðinn.
Falist hafi í viðmiðunum að
Alþingi hefði lögfest innstæðu-
tryggingar en engin réttarleg viður-
kenning ábyrgðar umfram lög.
„Þannig mörkuðu þau nýtt upphaf
auk þess sem tíminn hefur unnið
með okkur, því í október/nóvember
voru öll stjórnvöld í Evrópu eins og
þaninn strengur af ótta við óróann
á fjármálamörkuðum og áhlaup á
banka hver hjá sér. Sú staða hefur
róast,“ segir Ingibjörg.
Stjórnvöld hafa verið gagnrýnd
fyrir að hafa að nokkru leyti fallið
frá Brussel-viðmiðunum.
Fréttablaðið birtir minnisblaðið í
dag. - kóþ / sjá síður 22 og 24
Minnisblað fyrrverandi utanríkisráðherra til utanríkismálanefndar Alþingis:
Brussel-viðmið kjarni málsins
Toppliðin misstigu sig
Bæði Chelsea og
Manchester
United töpuðu
stigum í ensku
úrvalsdeildinni
um helgina.
ÍÞRÓTTIR 62
Nota rafmagn
í stað milljóna
lítra af olíu
Frá sameiningu Granda og Tanga á Vopnafirði
hefur fjórum milljörðum króna verið varið til
uppbyggingar eystra. Verksmiðja fyrirtækisins er
ein sú fullkomnasta í heimi.
JÓLASKÓGURINN Fjölmargir lögðu leið sína í jólaskóginn í Heiðmörk yfir helgina þar
sem hægt var að velja og höggva eigið jólatré. Mikil stemning var á staðnum og fólk gat
yljað sér við varðeld í kuldanum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM