Fréttablaðið - 21.12.2009, Blaðsíða 42
H
Hjálparsíma Rauða
krossins 1717?
Meðal markmiða
Hjálparsímans er að hlusta
á og veita ráðgjöf til fólks
á öllum aldri sem þarf
á stuðningi að halda t.d.
vegna þunglyndis, kvíða
eða vanlíðunar. Hlutverk
Hjálparsímans 1717 er
einnig víðtækara og
felur m.a. í sér að vera til
staðar fyrir einmana fólk
og veita upplýsingar um
samfélagsleg úrræði.
Er opið hjá
Hjálparsímanum 1717 yfir
hátíðarnar?
Já, hjá okkur er opið
er sólahringsopnun alla
hátíðisdagana hjá 1717.
Fyrir jól og áramót er einnig
að hægt að fá upplýsingar
um matarúthlutanir,
ókeypis hátíðarmálsverði
og opnunartíma ýmissa
athvarfa.
Hverjir svara í
Hjálparsímann?
Það starfar rúmlega 100
manna hópur sjálfboðaliða
og starfsmanna við svörun
hjá 1717. Allir hafa farið
í gegnum yfirgripsmikla
fræðslu, námskeið og þjálfun
áður en þeir byrja. Þeir sem
starfa við þetta eiga það
sameiginlegt að vilja vera
Margir sjálfboðaliðar bjóða
sig fram til að taka vaktir á
jólum og áramótum.
Hringja margir á þessum
tíma?
Í fyrra bárust samtals
um 250 hringingar frá
þorláksmessu fram á
annan í jólum. Tæplega 200
símtöl bárust á gamlárs- og
nýársdag og voru þeir sem
hringdu afar þakklátir fyrir
að geta rætt við einhvern
um mál sín á þessum
tíma árs sem er sumum
erfiður. Ástæður þess geta
verið margvíslegar svo
sem missir ástvina á árinu,
fjölskylduerjur, þunglyndi,
fátækt. Gera má ráð fyrir að
jafnvel enn fleiri muni nýta
sér þjónustu Hjálparsímans
yfir hátíðarnar í ár. Númerið
er gjaldfrjálst úr öllum
símum og ekki kemur fram
á símreikningi að hringt hafi
verið í númerið. Einnig er
hægt að hringja í 1717 án
inneignar í gsm símum.
Fjölgaði
hringingum í kjölfar
efnahagsþregningana?
Já símtölum fjölgaði
gífurlega í kjölfar
bankahrunsins og þá
sérstaklega símtölum er
snéru að fjárhagsvanda.
Fjöldi símtala í október
sama mánuð árið áður.
Fjöldi símtala hefur haldist
svipaður í ár og greinilegt
að margir eiga um sárt
að binda til dæmis vegna
atvinnumissis og erfiðrar
skuldastöðu. Margir
sem hringja eru kvíðnir
framtíðinni, reiðir og vonlitlir.
Fólk talar um að því finnst
gott að létta á hjarta sínu
við einhvern í trúnaði og hjá
Hjálparsímanum er hægt að
fá upplýsingar um starfsemi,
þjónustu og úrræði í
samfélaginu. Margt stendur
fólki til boða sem stendur
á tímamótum og oft þarf
einungis hvatninguna til að
kynna sér það betur.
HJÁLPARSÍMI
Flestir sem hringja eru að leita eftir sálrænum
stuðningi vegna geðraskana, þunglyndis, kvíða,
fjá
vegna eigin vanlíðunar en einnig vegna ættingja
eða vina í sjálfsvígshættu Í ár hafa borist tæplega
gefst meðal annars tækifæri til að láta gott af sér
leiða fá fræðslu um sérhæfð málefni og öðlast