Fréttablaðið - 21.12.2009, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 21.12.2009, Blaðsíða 8
8 21. desember 2009 MÁNUDAGUR 1 Íslenskur knattspyrnumaður er leikjahæsti Norðurlanda- búinn með 319 leiki í ensku úrvalsdeildinni. Hver? 2 Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari kvaddi hljómsveit sína um helg- ina eftir 35 farsælt starf. Hvað kallast sveitin? 3 Hver var yfirskrift útrým- ingarbúðanna í Auschwitz í Póllandi? SVÖR Á SÍÐU 66 LÖGREGLUMÁL „Jeppinn flaug upp í loftið og lenti á hvolfi tíu metr- um fyrir framan bílinn okkar,“ segir Lára Björg Björnsdóttir sagnfræðingur, sem varð vitni að eftirför lögreglu og manns sem stundaði ofsaakstur á stolnum bíl í gær. „Ef við hefðum verið tíu sek- úndum fyrr á ferðinni hefðum við fengið þennan jeppa ofan á bílinn,“ segir Lára Björg. Mikil hætta skapaðist í gær þegar maður á stolnum bíl virti að vettugi stöðvunarmerki lögreglu í Hafnarfirði. Maðurinn jók hrað- ann og ók áfram inn í Kópavog. Hann ók um tíma á móti umferð. Lögregla fór á eftir manninum frá Hafnarfirði og tóku sex lögreglu- bílar þátt í eftirförinni. Skammt frá Smáralind skall bíll manns- ins á kyrrstæðum bíl og síðan á öðrum bíl sem var staddur á hringtorgi skammt frá. Lögreglan hafði komið sér fyrir á horni Fífuhvammsvegar og Hlíðardals- vegar og ók jeppinn á hornið á lög- reglubílnum. Þá keyrði maðurinn á nokkra lögreglubíla og eru í það minnsta tveir þeirra óökuhæfir. Eftirför- inni lauk í Lindarhverfi þegar öku- maðurinn velti bifreiðinni á horni Fífuhvammsvegar og Hlíðardals- vegar. Einn farþegi var í bílnum. Mildi þykir að enginn hafi slas- ast alvarlega í eftirförinni en karl- inn og konan sem voru í bílnum voru umsvifalaust dregin út af lög- reglumönnum og handjárnuð. Lögreglan var búin að koma sér fyrir á horni Fífuhvammsvegar og Hlíðardalsvegar og ók jeppinn á hornið á lögreglubílnum. Lára Björg Björnsdóttir segist prísa sig sæla að ekki hafi farið verr. „Það var tvöfalt sjokk að verða vitni að bílveltu þar sem fólk virtist vera stórslasað og að sjá lögguna draga það út og hand- taka það.“ freyr@frettabladid.is Flúði lögreglu á ofsahraða Lögreglumenn veittu manni á stolnum bíl eftirför frá Hafnarfirði í Kópavog í gær. Hann ók á ofsahraða og á móti umferð. Sjónarvottur segir aðeins hafa munað sekúndum að ekki fór miklu verr. Á SLYSSTAÐ Lokað var fyrir alla umferð á slysstað á meðan fólkið var handtekið og bílarnir dregnir í burtu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HANDTEKINN Maðurinn sem ók bílnum á ofsahraða liggur á götunni í handjárnum. BORGARMÁL Skipulagsráð leggur til að nöfnum fjögurra gatna verði breytt og þær nefndar eftir þeim fjórum konum sem fyrstar sátu í borgarstjórn Reykjavíkur árið 1908. Þá taki aðkomugatan að Höfða nafn eftir túninu sem húsið stendur á, en það heitir Félagstún. „Erlendis er nokkuð algengt að menn taki götur og endurnefni með þessum hætti,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður skipulags- ráðs og fagnar því að heiðra eigi minningu kvennaframboðsins með þessum hætti. Borgaryfirvöld nutu aðstoðar nafnanefndar við valið. „Nafna- nefnd taldi ekki við hæfi að velja nöfnunum stað á götur í nýbygg- ingarhverfum borgarinnar heldur var valið að finna nöfnunum stað innan eldri hluta Reykjavíkur og þá með því að skipta út eldri nöfnum gatna,“ segir í umsögn byggingarfulltrúa til borgarráðs. „En á þessu svæði eru skrifstofur flestra sviða Reykjavíkur borgar, þar er og móttökuhúsið Höfði, stolt Reykjavíkur, jafnaldra setu kvenna í borgarstjórn,“ segir einn- ig í umsögninni. Konurnar sem um ræðir eru Bríet Bjarnhéðinsdóttir sem var formaður Kvenréttindafélags Íslands, Þórunn Jónassen, for- maður Thorvaldsensfélagsins, Katrín Magnússon sem var for- maður Hins íslenska kvenfélags og Guðrún Björnsdóttir, félagi í Kvenréttindafélagi Íslands. - óká Nefndar eftir fjórum fyrstu konunum í bæjarstjórn Reykjavíkur: Götuheitum breytt í borginni ERLENT Fjórtán ára gömul hol- lensk stúlka sem vakti athygli fjölmiðla þegar hún barðist fyrir rétti sínum til að sigla um heim- inn ein síns liðs hvarf af heimili sínu á föstudag. Hún fannst í gær á eyjunni St. Martins í Karabískahaf- inu. Hollensk yfirvöld munu sækja stúlkuna á næstu dögum og flytja hana heim. Laura Dekker ætlaði að verða yngsta manneskjan til að sigla ein í kringum hnöttinn en barnaverndarnefnd í Hollandi kom í veg fyrir það þar sem stúlkan var undir lögaldri. - sm Vildi sigla ein um heiminn: Fannst eftir mikla leit ERLENT Yfirmaður í bandaríska hernum vill að reglu innan hers- ins verði breytt þannig að þung- un verði talin refsivert athæfi. Eigi bandarískir hermenn von á barni fá þeir leyfi frá störfum. Anthony Cucolo, yfirmaður í hernum, vill breyta þessari reglu. „Ég hef verk að vinna í Írak. Ég hef takmarkaðan fjölda hermanna til að vinna þetta verk og ég þarf á þeim öllum að halda. Þess vegna finnst mér að hermenn ættu annað hvort að geyma ástarlífi sinu um sinn eða huga að forvörnum,“ var haft eftir Cucolo. - sm Vill koma í veg fyrir þungun: Hermenn verði sóttir til saka fyrir þunganir KATRÍNARTÚN Gatan sem nú heitir Höfðatún verður Katrínartún. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA LAURA DEKKER ERLENT Um hundrað manns létu lífið í Kogi í Nígeríu þegar öku- maður flutningabíls missti stjórn á bifreið sinni. Vegakerf- inu í Nígeríu er illa viðhaldið og umferðarslys því tíð. Lögreglan í Kogi, sem er í mið- hluta landsins, segir að bílnum hafi verið ekið hratt niður hæð áður en hann ók inn í fjölmennið. Yfirvöld segja að 55 manns séu látnir en fréttamaður BBC- sjónvarpsstöðvarinnar á staðn- um fullyrðir að allt að hundrað manns hafi látist. Umdæmis- stjórinn í Kogi hefur lýst yfir þriggja daga sorg vegna slysins. - sm Missti stjórn á vörubifreið: Hundrað manns létust VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.