Fréttablaðið - 21.12.2009, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 21.12.2009, Blaðsíða 74
62 21. desember 2009 MÁNUDAGUR Enska úrvalsdeildin Arsenal - Hull 3-0 1-0 Denilson (48.), 2-0 Eduardo (58.), 3-0 Abou Diaby (79.). Aston Villa - Stoke 1-0 1-0 John Carew (60.). Blackburn - Tottenham 0-2 0-1 Peter Crouch (46.), 0-2 Peter Crouch (82.). Fulham - Manchester United 3-0 1-0 Danny Murphy (21.), 2-0 Bobby Zamora (45.), 3-0 Damien Duff (74.). Manchester City - Sunderland 4-3 1-0 Roque Santa Cruz (3.), 2-0 Carlos Tevez (11.), 2-1 John Mensah (15.), 2-2 Jordan Henderson (23.), 3-2 Craig Bellamy (34.), 3-3 Kenwyne Jones (61.), 4-3 Roque Santa Cruz (68.). Portsmouth - Liverpool 2-0 1-0 Nadir Belhadj (32.), 2-0 F. Piquionne (81.) Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn með P. Wolves - Burnley 2-0 1-0 Nenad Milijas (15.), 2-0 Kevin Doyle (50.). Jóhannes Karl Guðjónsson kom inn á sem vara- maður á 68. mínútu í liði Burnley. Everton - Birmingham 1-1 1-0 Diniyar Bilyaletdinov (5.), 1-1 S. Larsson (21.). West Ham - Chelsea 1-1 1-0 Alessandro Diamanti, víti (44.), 1-1 Frank Lampard, víti (60.). STAÐAN Chelsea 18 13 2 3 43-15 41 Man. United 18 12 1 5 37-17 37 Arsenal 17 11 2 4 44-20 35 Aston Villa 18 10 5 3 29-14 35 Tottenham 18 10 3 5 40-22 33 Man. City 17 7 8 2 33-27 29 Birmingham 18 8 4 6 19-18 28 Liverpool 18 8 3 7 34-25 27 Fulham 17 7 5 5 23-17 26 Sunderland 18 6 3 9 25-28 21 Stoke City 17 5 6 6 15-20 21 Wolves 18 5 4 9 17-31 19 Blackburn 18 5 4 9 17-32 19 Burnley 18 5 4 9 21-37 19 Everton 17 4 6 7 23-31 18 Wigan 17 5 3 9 20-38 18 Hull City 18 4 5 9 17-37 17 Bolton 16 4 4 8 23-33 16 West Ham 18 3 6 9 26-35 15 Portsmouth 18 4 2 12 17-26 14 Enska B-deildin Bristol City - Reading 1-1 Ívar Ingimarsson og Gylfi Þór Sigurðsson voru í byrjunarliði Reading. Gylfi var tekinn af velli á 65. mínútu en Brynjar Björn Gunnarsson kom inn á sem varamaður í hálfleik. Crystal Palace - Barnsley 1-1 Emil Hallfreðsson lék allan leikinn með Barnsley. Peterborough - Watford 2-1 Heiðar Helguson lék allan leikinn með Watford. Plymouth - Coventry 0-1 Kári Árnason lék allan leikinn með Plymouth sem og Aron Einar Gunnarsson með Coventry. QPR - Sheffield United 1-1 Sheffield Wednesday - Swansea 0-2 Derby - Doncaster 0-2 Nottingham Forest - Preston 3-0 Newcastle - Middlesbrough 2-0 STAÐA EFSTU LIÐA Newcastle 22 15 4 3 37-12 49 West Brom 21 11 6 4 43-21 39 Nott. Forest 22 10 9 3 33-18 39 Cardiff 21 11 3 7 38-22 36 Swansea 22 9 8 5 20-18 35 Leicester 21 9 7 5 26-23 34 Sheff. Utd. 22 8 8 6 33-31 32 Blackpool 21 8 7 6 33-25 31 Enska C-deildin Hartlepool - Yeovil 1-1 Ármann Smári Björnsson lék allan leikinn með H. Skoska úrvalsdeildin Hearts - Celtic 2-1 Eggert Gunnþór Jónsson lék allan leikinn á miðjunni með Hearts. Franska úrvalsdeildin AS Monaco - Lyon 1-1 Eiður Smári Guðjohnsen var ekki í leikmanna- hópi Monaco, annan leikinn í röð. Belgíska úrvalsdeildin KSV Roeselare - Sint-Truiden 1-2 Bjarni Þór Viðarsson lék allan leikinn með KSV. Spænska úrvalsdeildin Real Madrid - Zaragoza 6-0 1-0 Gonzalo Higuain (3.), 2-0 Rafael van der Vaart (26.), 3-0 Van der Vaart (28.), 4-0 Higuain (34.), 5-0 Cristiano Ronaldo (50.), 6-0 Karim Benzema (71.). Athletic Bilbao - Osasuna 2-0 Sevilla - Getafe 1-2 Villarreal - Racing 2-0 Valladolid - Sporting 2-1 Malaga - Mallorca 2-1 Espanyol - Almeria 2-0 Tenerife - Atletico 1-1 Deportivo - Valencia 0-0 STAÐA EFSTU LIÐA Barcelona 15 12 3 0 36-9 39 Real Madrid 15 12 1 2 40-13 37 Sevilla 15 9 3 3 26-13 30 Valencia 15 8 5 2 27-16 29 ÚRSLIT FÓTBOLTI Chelsea hefur fjögurra stiga forskot á toppi ensku deild- arinnar eftir jafntefli við West Ham á Upton Park í gær 1-1. Á Old Trafford geta menn allavega andað örlítið léttar eftir að Fulham niður- lægði Manchester United á heima- velli sínum á laugardag. Chelsea hefði því getað náð sex stiga for- ystu hefði liðið náð að leggja West Ham. „Þessi kafli tímabilsins er alls ekki auðveldur enda leikið þétt. Við höfum oft spilað betur en ég er sannfærður um að við verðum enn betri eftir viku. Að mínu mati var þetta stig alls ekki slæmt, við erum með fjögurra stiga forystu og getum haldið góða jólahátíð. Við vorum að leika á móti baráttu- glöðu liði sem sýndi mikinn kar- akter,“ sagði Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea. Gianfranco Zola, kollegi hans hjá West Ham, var goðsögn sem leik- maður hjá Chelsea. „Ég er virki- lega ánægður með mitt lið, við vorum óheppnir að ná ekki öllum þremur stigunum í leiknum. Chel- sea er með hörkugott lið og hefur það sem þarf til að vinna titilinn,“ sagði Zola. Bæði mörkin á Upton Park komu úr vítaspyrnum, West Ham tók forystu rétt fyrir hálfleik en þá skoraði Alessandro Diamanti af punktinum. Þegar um stund- arfjórðungur var liðinn af seinni hálfleik gerði dómaratríóið svo slæm mistök þegar Chelsea fékk víti. Matthew Upson átti góða tæklingu og fór beint í boltann en aðstoðardómarinn benti til merk- is um brot og Mike Dean dómari benti á punktinn. Frank Lampard þurfti að þrítaka spyrnuna þar sem leikmenn voru komnir inn í teiginn þegar spyrnt var. Lampard brást ekki bogalistin og jafnaði í 1-1 sem urðu úrslitin. Það leyndi sér ekki á knattspyrnu- stjóra Manchester United, Sir Alex Ferguson, að hann hefur áhyggjur af framhaldinu eftir 3-0 tap liðs- ins gegn Fulham á laugardag. Eng- landsmeistararnir voru langt frá sínu besta í leiknum og áttu fleiri feilsendingar en þekkjast á þeim bænum. Helsti höfuðverkur liðsins er varnarlínan sem er þynnri en góðu hófi gegnir enda sjö af átta varnar- mönnum liðsins verið að glíma við meiðsli. Miðjumennirnir Michael Carrick og Darren Fletcher hafa starfað sem afleysingamenn í vörninni en þeir áttu í miklu basli með spræka leikmenn Fulham. „Ég sé ekkert ljós við enda gang- anna,“ sagði Ferguson sem er far- inn að óttast að Englandsmeist- aratitillinn gæti runnið liðinu úr greipum með þessu áframhaldi. „Ég get bara vonað að miðað við hvernig deildin er í dag að þessi úrslit séu ekki það slæm fyrir okkur. Ég vona að þessi úrslit muni ekki kosta okkur titilinn. Við verðum að fá varnarmenn okkar til baka ef við ætlum að eiga raun- hæfan möguleika á að vinna titil- inn.“ Margir stuðningsmenn United sakna Cristiano Ronaldo sárt en Ryan Giggs segir að Portúgalans sé ekki saknað innan liðsins. „Við höfum aldrei verið eins manns lið. Ég hef ekki tekið eftir mikl- um breytingum, við erum ennþá meira og minna sami hópur leik- manna.“ Bobby Zamora er í feikilegu formi um þessar mundir og var hann lykillinn að þessum sigri Lundúnaliðsins. Hann var sífellt ógnandi í fremstu víglínu og skor- aði eitt af mörkunum þremur. „Ég neita því ekki að við vorum heppnir að mæta Manchester Unit- ed í þessu ástandi. Þeir eiga við mikil meiðslavandræði að stríða og við stefndum á að nýta okkur það. Þetta eru svo sannarlega laun erf- iðisins fyrir okkur og niðurstaða harðra æfinga,“ sagði hinn ofur- klóki knattspyrnustjóri Fulham, Roy Hodgson. Zamora fékk að sjálfsögðu sinn skammt af hrósi frá Hodgson. „Ég er ekki vanur því að heimta að ein- hverjir leikmenn mínir fái lands- liðssæti. En ef Fabio Capello vill skoða Bobby nánar þá veit hann hvar hann er að finna. Ég er glaður tilbúinn að gefa honum allar upp- lýsingar sem ég hef um hann.“ Arsenal nálgaðist liðin fyrir ofan sig með því að leggja Hull 3-0. Úrslitin hefðu þó getað orðið önnur ef markvörðurinn Manuel Almun- ia hefði ekki varið vítaspyrnu frá Geovanni sem hefði getað jafnað metin í 1-1. Arsenal á möguleika á að komast upp í annað sætið vinni liðið þann leik sem það á inni. Þá vann Aston Villa mikilvægan sigur á varnarsinnuðu liði Stoke og ætlar greinilega að taka fullan þátt í baráttu um sæti í Meistara- deild Evrópu. elvargeir@frettabladid.is Við öllu að búast hjá toppliðunum Mörg óvænt úrslit voru í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Chelsea jók forskot sitt á toppnum þrátt fyrir að gera aðeins jafntefli gegn West Ham þar sem Manchester United steinlá óvænt fyrir Fulham. Arsenal vann Hull og getur komist upp fyrir Englandsmeistarana í annað sætið vinni liðið leik sem það á inni. ALLT ER ÞEGAR ÞRENNT ER Frank Lampard þurfti að þrítaka vítaspyrnu gegn West Ham í gær og skoraði í öll skiptin. Aðeins eitt af mörkunum taldi. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Stuðningsmenn Liver- pool eiga ekki sjö dagana sæla um þessar mundir og þurfa að lifa við sífelldar háðsglósur, hvort sem það er á veraldarvefnum eða í daglegu lífi. Því mun ekki linna eftir að liðið lá fyrir botnliði Portsmouth um helgina 2-0. Ýmsar sögur eru á kreiki um ástandið á Anfield. Talað hefur verið um klíkumyndanir innan leikmannahópsins, stöðugan óróleika vegna eigenda félagsins og fleira. Útlit er fyrir að knatt- spyrnustjórinn Rafael Benítez sé búinn að missa traust leikmanna og stuðningsmönnum hans fer óðum fækkandi. Á blaðamannafundi eftir leikinn á Fratton Park mætti hann með kaldhæðnina að vopni og talaði í sífellu um að dómari leiksins hefði verið fullkominn. Benítez var allt annað en sáttur við dómarann Lee Mason sem tók virkilega umdeilda ákvörðun með því að reka Javi- er Mascherano af velli rétt fyrir hálfleik en þá var staðan 1-0. Það gerði leikmönnum Liverpool erf- itt fyrir í seinni hálfleik en ekki er hægt að horfa framhjá því að fyrir þetta atvik var spilamennska liðsins langt undir væntingum og lykilmenn liðsins skugginn af sjálfum sér. Þessu er Benítez þó ekki sam- mála. „Mér fannst spilamennska liðsins í fyrri hálfleik góð og við stjórnuðum leiknum. Við fengum á okkur mark en vorum samt með stjórnina. Rauða spjaldið breytti hins vegar öllu,“ sagði Benítez. Eftir úrslit helgarinnar er Liverpool í áttunda sæti deildar- innar en Birmingham komst upp í sjöunda sætið í gær með því að gera 1-1 jafntefli við Everton á útivelli. Fyrir leikinn hafði Birmingham unnið fimm leiki í röð og hefur liðið komið skemmtilega á óvart á tímabilinu. Í gær fór einnig fram nýliðaslag- ur þegar Wolves unnu góðan sigur á Burnley 2-0. Sigur Úlfanna var verðskuldaður en liðin eru nú jöfn að stigum í 12.-14. sæti deildar- innar með 19 stig hvort. - egm Liverpool tapaði fyrir Portsmouth og virðast hrakfarir liðsins engan enda ætla að taka: Benítez beitti kaldhæðni eftir leikinn Í HEITU SÆTI Það var þungt yfir Rafael Benítez á laugardag. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Ítalinn Roberto Mancini lýsti því yfir fljótlega eftir að hafa verið látinn taka pokann sinn hjá Inter í fyrra að draumur hans væri að taka við liði í ensku úrvalsdeildinni. Honum varð að ósk sinni á laugardagskvöld þegar Manchester City boðaði til blaða- mannafundar og tilkynnti um stjóraskipti. Mark Hughes missti vinnuna en margir kollegar hans hafa stigið fram og lýst yfir furðu sinni á þessari ákvörðun stjórnar City. Þar á meðal er knattspyrnustjóri Tottenham, Harry Redknapp. „Ég átti erfitt með að trúa þessu þegar ég fékk fréttirnar. Þessi ákvörð- un veldur mér vonbrigðum. Liðið hefur tapað tveimur deildarleikj- um á tímabilinu, útileik gegn Manchester United þar sem sigur- markið kom í blálokin og svo gegn mínu liði,“ sagði Redknapp. „Liðið er rétt við sæti í Meistara- deildinni og á leik til góða. Mér finnst þetta furðuleg ákvörðun á þessum tímapunkti. Mark er góður stjóri og hefði hann fengið meiri tíma er ég ekki í vafa um að City hefði notið mikillar velgengni.“ Margir telja að Hughes hafi náð fínum árangri miðað við þær gríðarlegu breytingar sem hafa orðið á leikmannahópi City. Red- knapp segir að starfsumhverfi knattspyrnustjóra á Englandi sé að umturnast með auknum fjölda erlendra eigenda. „Starfsaldur manna verð- ur sífellt styttri. Fjölmargir moldríkir eigendur gera miklar kröfur og vilja allir að þeirra lið sé í efsta sæti. Þeir skilja ekki að þeir geta ekki allir unnið. Þetta á aðeins eftir að versna,“ sagði Red- knapp. Hughes stýrði City í síðasta sinn þegar liðið vann sigur á Sunder- land 4-3 í mögnuðum leik á laugar- dag. Eftir leikinn gekk hann að stuðningsmönnum liðsins og klapp- aði fyrir þeim. Á þeim tímapunkti var ekki búið að tilkynna honum uppsögnina en gera má ráð fyrir að hann hafi grunað ýmislegt. Spennandi verður að sjá hvernig Mancini mun vegna í enska bolt- anum en hann var þjálfari Inter í fjögur ár. Áður hafði hann stýrt Lazio og Fiorentina en sem leik- maður var hann í fimmtán ár hjá Sampdoria. - egm Mark Hughes sagt upp störfum sem knattspyrnustjóri Manchester City og Roberto Mancini ráðinn: Stjórum á Englandi sýnd lítil þolinmæði SÍÐASTI LEIKURINN Mark Hughes stýrði Manchester City í síðasta sinn þegar liðið lék gegn Sunderland á laugardag. NORDICPHOTOS/GETTY
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.