Fréttablaðið - 21.12.2009, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 21.12.2009, Blaðsíða 36
 21. desember 2009 MÁNUDAGUR 2 „Það er svo sniðugt að forma úr trefjaplasti. Þú færð vökvann í tunnum og blandar hann svo með ákveðnu herðismagni. Einangrun- ar- og styrktarefnið kemur bara í plötum sem maður sker niður í mót. Ég forma þetta eftir eigin hugmyndum, reynslu og getu og síðan verður eitthvað úr þessu. Þetta er eins og að leika djass, hann er impróvíseraður,“ segir Daði Hinriksson, bifvélavirki, vél- stjóri og bátasmiður. Daði hefur mikla trú á trefjaplasti, segir það vera geimaldarbyggingarefni sem muni verða keppinautur áls, timb- urs og stáls. Trefjaplast er mikið notað í bíla- iðnaði, í lestar, brúarsmíði, flugvél- ar, húsasmíði, gervilimi, vindmyll- ur, tanka, baðker og skipasmíði svo fátt eitt sé nefnt. „Formúlu 1 bíl- arnir eru allir smíðaðir út trefja- plasti. Vissirðu það? Veiðistöngin þín er úr trefjaplasti, þess vegna er hún svona sterk og sveigjanleg. Óperuhúsið í Sydney. Öll björg- unarskýlin á Íslandi sem aldrei skemmast og aldrei fjúka eru úr trefjaplasti,“ segir Daði og minn- ist sérstaklega á hús úr trefjaplasti sem byggt var í Surtsey fyrir tut- tugu og tveimur árum. „Ef þú berð upprunalega litanúmerið við húsið í dag, þá sér ekkert á litnum eftir tuttugu ár!“ Daði hefur tröllatrú á framtíð trefjaplasts og hlakk- ar vísast til mögulegrar opnunar koltrefjaverksmiðju á Sauðárkróki 2012. „Húsið verður allt hitað með gasi sem er sáralítill kostnaður við. Ég mun notast við saurtank alveg eins og þá sem reglur kveða á um að séu í bátum. Og á þakinu verður vindmylla sem framleiðir rafmagn en til vara hef ég ljósavél ef allt annað þrýtur. Ég ætla ekki að fara í Okurbú Vestfjarða eins og ég kalla það, ég ætla bara að notast við ferskt og nýtt rafmagn,“ segir Daði en hann er mjög óánægð- ur með raforkuverð, sem er mun hærra á Vestfjörðum en annars staðar sökum flutningskostnaðar og fárra virkjana. Spurður hvort hann sé umhverf- isverndarsinni vegna þess hve sjálfbært húsið hans verður sýnist blaðamanni Daða verða hverft við spurningunni og hann líta á orðið umhverfissinni sem skammaryrði. „Nei, nei, ég er ekkert umhverfis- verndarsinni. Þú átt að nýta orku landsins, það eru alveg hrein- ar línur, til hagsbótar fyrir þjóð- arbúið í heild sinni. Mannskepn- an lifir hérna eins og dýrin sem heyja harða lífsbaráttu til að kom- ast af í köldu og hrjóstrugu landi. En mér finnst að við eigum að lifa á landinu og ganga um það eins og menn, en ekki eins og skepn- ur,“ segir Daði og tekur dæmi af rjúpnaskyttum sem skilja rjúp- urnar eftir hálfdauðar og sund- urskotnar úti um alla móa. „Ég mundi aldrei fara að bjarga týndri rjúpnaskyttu því ég veit að meirip- arturinn af þeim hagar sér svona.“ Daði stefnir á að halda reisugilli næsta sumar og segist ætla að ljúka sínum æviferli í kúluhúsinu sínu. Það hljóti að endast honum því það getur staðið í áttatíu ár án þess að þurfa neitt viðhald. niels@frettabladid.is Geimaldarefni notað í bolvískt kúluhús Það er ekki á hverjum degi sem bátasmiður ákveður að reisa sér súð yfir haus. Daði Hinriksson ætlar að nýta þekkingu sína á smíði trefjaplastbáta til að byggja kúluhús í Bolungarvík. Daði hjá Glódísi sem stendur við Hafnarfjarðarhöfn. Daði átti einusinni og byggði alveg eins bát. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Neyðarskýli og radarstöðvar sem standa af sér öll veður eru búin til úr trefjaplasti Teikningar af húsinu sem Daði Hinriksson ætlar að reisa. JÓLASERÍURNAR YFIRFARNAR Mikilvægt er að yfirfara gömlu seríurnar áður en þær eru settar á jólatréð. Skipta þarf um brotnar klær og perustæði og hvergi má sjást í bera víra. Serían má síðan aldrei liggja nærri brennanlegu efni eins og pappírsskrauti. DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS · Tekur 12 Kg · Hljóðlát · Stórt op > auðvelt að hlaða · Sparneytin 12 kg Þvottavél og þurrkari Eldsneytissíur og síuhús Ný sending á frábæru jólatilboðsverði SNAIGÉ gerð RF-32 119.900 159.900 Þetta er skápur sem margir hafa beðið eftir, stór 233 ltr. kælir að ofanverðu og góður 54 ltr. frystir að neðanverðu. NÝJA KÆLISKÁPALÍNAN FRÁ Þriðjudaga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.