Fréttablaðið - 21.12.2009, Blaðsíða 6
6 21. desember 2009 MÁNUDAGUR
Xerodent 28,6 mg/0,25 mg munnsogstöflur.
Notkunarsvið og skömmtun: Hver tafla inniheldur eplasýru 28,6 mg og natríumflúoríð samsvarandi 0,25
mg af flúor. Xerodent er lyf til varnar tannskemmdum notað við meðhöndlun einkenna vegna munnþurrks
og fyrirbyggjandi við tannskemmdum hjá sjúklingum með munnþurrk.
Skammtastærðir fyrir fullorðna: 1 tafla eftir þörfum, venjulega 6 sinnum á dag. Við mikinn munnþurrk má
auka skammtinn í 12 töflur á dag í takmarkaðan tíma. Töfluna á að láta bráðna hægt í munni. Dreifa skal
skammtinum jafnt yfir daginn.
Varúðarreglur: Þeir sem hafa ofnæmi fyrir virku efnunum eða einhverju hjálparefnanna ættu ekki að nota
Xerodent. Við meðhöndlun með Xerodent skal forðast að nota önnur lyf sem innihalda flúor. Xerodent má
ekki nota á landsvæðum þar sem flúorinnihald drykkjarvatns er hátt. Vegna þess að Xerodent inniheldur
xylitól getur það haft hægðalosandi verkun.
Meðganga/brjóstagjöf: Engin þekkt áhætta við notkun á meðgöngu. Natríumflúoríð skilst ekki út í
brjóstamjólk. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Markaðsleyfishafi: Actavis Group hf. 29. nóvember 2007.
Þreföld virkni Xerodents
Eplasýra – örvar munnvatnsframleiðslu
Flúor – ver tennurnar gegn skemmdum
Xylitol – hemur bakteríuvöxt í munni
Xerodent
Við munnþurrki
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Heimilistæki, stór og
smá, ljós og símar í
miklu úrvali.
Líttu inn og gerðu
góð kaup. Við tökum
vel á móti þér.
A
T
A
R
N
A
Sjáið jólatilboðin á
www.sminor.is
fyrir
–fegurðin býr í bókum
Barónsstíg 27 | 511 0910 | crymogea@crymogea.is | www.crymogea.is
LISTAVERKABÓK Á HEIMSMÆLIKVARÐA
KRISTINN E. HRAFNSSON
NEYTENDUR Sala á kæstri og salt-
aðri skötu er hafin og búast fisk-
salar við góðri sölu á skötunni í
ár. Skata tilheyrir aðdraganda
jóla hjá mörgum og þó að hefð-
inni samkvæmt eigi að borða
hana á Þorláksmessu halda
margir skötuveislu dagana fyrir
Þorláksmessu.
31 prósents verðmunur er á
hæsta og lægsta kílóverði á stór-
skötu hjá þeim fisksölum sem
haft var samband við. Ódýrust
var skata í Litlu fiskbúðinni í
Hafnarfirði, 1.290 krónur kílóið,
en dýrust í Fiskbúðinni Hafbergi
þar sem kílóið kostaði 1.690 krón-
ur. Meðalkílóverð á kæstri skötu
er 1.490 krónur miðað við þessa
verðkönnun. Fréttablaðið gerði
sambærilega könnun í fyrra og
var meðalverð á þeim tíu búðum
sem haft var samband við þá um
1.390 krónur. Hækkun á meðal-
verði milli ára er þannig um sjö
prósent.
„Það er nóg til af skötu í ár, ég
hef verið að selja skötu í tuttugu
ár og það hefur stundum verið
hallæri en ekki í ár,“ segir Kristj-
án Berg, eigandi verslunarinnar
Fiskikóngsins. Hann segist finna
fyrir miklum áhuga á skötu í ár.
„Fyrir suma er skatan aðalatrið-
ið í jólahaldinu,“ segir Steingrím-
ur Ólason í Fiskbúðinni við Sund-
laugarveg. „Sumir kaupa skötuna
mjög tímanlega og geyma úti á
svölum fram að Þorláksmessu.
„Svo eru aðrir sem að taka forskot
á sæluna, eins og einn viðskipta-
vinur sem keypti skötu og smakk-
aði og kom svo aftur og keypti
skötu fyrir Þorláksmessu og sagði
um leið að það væri í lagi að allt
annað klikkaði fyrir jólin, skatan
mætti bara ekki gera það.“
Kristófer Ásmundsson í Gall-
erý fiski verkar sína skötu sjálfur.
„Við leggjum okkar metnað í það,
enda kemur fólk aftur og aftur til
okkar,“ segir Kristófer sem segir
kæsinguna á skötunni hafa tekið
sex vikur í ár en í kaldari árum
taki hún átta vikur. „Kæsingin er
svo stoppuð með söltun en þeir
alhörðustu fá ósaltað skötu hjá
mér og gráta svo fram á nýárið.“
Þess má geta að víðast er kæst
tindabikkja einnig seld, en til siðs
er á Vestfjörðum að borða hana
frekar en stórskötuna. Kílóverð á
henni er lægra, algengt kílóverð
var tæpar þúsund krónur. Sumir
selja einnig smáskötu, sem er
önnur skötutegund en stórskatan
sem er sú sem mest er borðað af.
sigridur@frettabladid.is
Þrjátíu prósenta
verðmunur á skötu
Sjö prósenta verðhækkun er á meðalverði á kæstri skötu á milli ára í verðkönn-
un Fréttablaðsins. Fisksalar segja mikla stemmingu fyrir skötunni í ár. Meðal-
kílóverð er 1.490 krónur, það lægsta er 1.290 krónur og hæsta 1.690 krónur.
KRISTÓFER ÁSMUNDSSON Kæsir skötuna sjálfur og á fastakúnna sem kunna vel að
meta verkið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
TÍU DÆMI UM VERÐ Á
STÓRSKÖTU
Hringt var í búðirnar föstudaginn
18. desember og spurt um kílóverð
á stórskötu.
Fiskbúð Kílóverð
Litla fiskbúðin 1.290 kr.
Fiskikóngurinn 1.390 kr.
Fiskbúðin Sundlaugarvegi 1.390 kr.
Fiskbúðin Freyjugötu 1.490 kr.
Fiskbúðin Hófgerði 1.490 kr.
Fiskbúð Einars 1.490 kr.
Fiskbúð Suðurlands 1.490 kr.
Fylgifiskar 1.590 kr.
Gallerý Fiskur 1.598 kr.
Fiskbúðin Hafberg 1.690 kr.
SAMFÉLAG Íslenskir friðarsinnar efna til blys-
farar niður Laugaveginn á Þorláksmessu eins
og undanfarna þrjá áratugi.
Í tilkynningu frá Íslandi-Palestínu segir að
margir líti á friðargönguna sem ómissandi þátt
í jólaundirbúningi fjölskyldunnar, enda taki
fjöldi fólks sér hlé frá tiltekt og innkaupum til
að styðja kröfuna um frið í heiminum.
Í Reykjavík stendur hópur friðarhreyfinga
fyrir blysför niður Laugaveg. Safnast verður
saman á Hlemmi kl. 17.45 og leggur gang-
an af stað stundvíslega kl. 18.00. Í lok göngu
er stoppað á Ingólfstorgi þar sem Einar Már
Guðmundsson rithöfundur flytur ávarp en
fundarstjóri er Helga B. Bjargardóttir. Söng-
fólk úr Hamrahlíðarkórum syngur.
Á Ísafirði verður lagt af stað frá Ísafjarðar-
kirkju kl. 18.00 og gengið niður á Silfurtorg
þar sem verður stutt dagskrá. Lúðrasveit Tón-
listarskóla Ísafjarðar spilar, Elsa Þorgeirsdótt-
ir og Þórhallur Arason flytja ávörp og endað
verður á söng og ljóðalestri. Friðarkerti verða
seld á staðnum.
Á Akureyri stendur Friðarframtak fyrir
árlegri blysför gegn stríði. Safnast verður
saman kl. 20.00 fyrir framan Samkomuhúsið í
Hafnarstræti og gengið niður á Ráðhústorgið
þar sem verður útifundur.
Ösp Kristjánsdóttir frá Tjörn syngur, Pétur
Björgvin Þorsteinsson djákni flytur hugvekju
og lesin verður upp ályktun gegn stríðunum í
Afganistan og Írak.
Fundarstjóri er séra Jóna Lovísa Jónsdóttir.
Að Friðarframtaki standa Samtök hernaðar-
andstæðinga á Norðurlandi og Æskulýðs-
samtök Þjóðkirkjunnar. - kóþ
Íslenskir friðarsinnar ætla að hittast á þremur stöðum á landinu á Þorláksmessu:
Blysför til friðar haldin á Laugaveginum
Eru of mörg sveitarfélög á höf-
uðborgarsvæðinu?
Já 83,4%
Nei 16,6%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Borðar þú skötu á Þorláks-
messu?
Segðu þína skoðun á vísir.is
LJÓSBERAR Á AÐVENTU Gengið verður í þágu friðar á
Laugavegi, Ísafirði og Akureyri á Þorláksmessukvöld.
Þessi börn létu ekki sitt eftir liggja í fyrra og verða
eflaust fremst í för í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VIÐSKIPTI Breið samstaða var um endurskipulagn-
ingu fjárfestingarbankans Saga Capital á hluthafa-
fundi bankans á föstudag.
Á meðal breytinganna er að íþyngjandi eigna-
hlutir í fjármálafyrirtækjum voru færðir í sérstakt
eignarhaldsfélag og fjörutíu prósent útlána færð
á varúðarreikning. Þá er þar nægt fjármagn til
að standa straum af kostnaði á tæplega tuttugu
milljarða króna láni frá ríkissjóði í vor.
Saga Capital stendur nú uppi með tiltölulega lítinn
efnahagsreikning; sex milljarða í ríkisskuldabréf-
um og bókfært verð lánasafns upp á 3,2 milljarða
króna. Eiginfjárhlutfall er 41 prósent. Hluthafar
munu bæði eiga hlut í eignarhaldsfélaginu og Saga
Capital.
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga
Capital, segir stöðu bankans mjög sterka enda hafi
breytingarnar dregið úr rekstraráhættu hans og
gert honum kleift að takast á við endurreisnina af
fullum krafti.
Hann sagði í samtali við Fréttablaðið fyrir mán-
uði uppstokkun á rekstri bankans nauðsynlega,
meðal annars vegna óinnleiddra reglna Evrópu-
sambandsins um starfsemi fjármálafyrirtækja.
Saga Capital bar að núvirða vaxtaávinning af
tæpum helmingi ríkislánsins og var það áður fært
sem tekjur í ársreikningi. Slíkt er ekki leyfilegt
samkvæmt nýju reglunum. - jab
Samstaða á hluthafafundi Saga Capital um skiptingu bankans í tvö fyrirtæki:
Bankanum skipt í tvennt
ÞORVALDUR LÚÐVÍK Staða Saga Capital er orðin afar viðráðan-
leg, segir forstjóri bankans.
KJÖRKASSINN