Fréttablaðið - 21.12.2009, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 21.12.2009, Blaðsíða 2
2 21. desember 2009 MÁNUDAGUR VIÐSKIPTI Einar Gautur Steingríms- son, skiptastjóri fjárfestingar- félagsins Saxbyggs, skoðar nú hvort sanngjarnt verð hafi verið greitt fyrir rúman tug fasteignaverkefna úr búi félagsins í Lundúnum og í Berlín í kringum hrun bankanna í fyrra. Saxbygg hóf að vinna að fast- eignatengdum verkefnum í nágrenni Lundúna í kringum 2006 og stofnaði fasteignafélagið Shelley Oak þar í landi í byrjun árs 2007. Fasteigna- verð þar hafði hækkað mikið og veðjað var á að það myndi hækka meir eftir að Lundúnir höfðu vinn- inginn í samkeppni um Ólympíu- leikana 2012. Byr átti um 35 prósent í félaginu. Saxbygg og Árni Helgason, við- skiptafélagi Jóns Þorsteins Jóns- sonar, stjórnarformanns Byrs, áttu hvor sín sextán prósentin. Erlendir aðilar áttu fjórðungshlut. Halla tók undan fæti á breskum fasteignamarkaði á seinni hluta 2007 og keypti Byr hluta af eignar- hlut Saxbyggs í breska félaginu. Það kom illa við sparisjóðinn og skrifast stór hluti af fjárhagsvandræðum hans á þessi verkefni. Samkvæmt skýrslu endurskoðendafyrirtækis- ins PricewaterhouseCoopers frá í sumar tapaði sparisjóðurinn sam- tals 2,5 milljörðum króna á fast- eignaverkefnum í Bretlandi. Stjórn sparisjóðsins hefur frá í vor beðið þess að ríkið leggi honum til tæplega ellefu milljarða króna eiginfjárframlag til að gera hann rekstrarhæfan á ný. Fasteignaverkefni Saxbygg í Lundúnum og í Berlín voru seld erlendum aðilum í júlí og október í fyrra og er unnið að því að ljúka þeim. Hvorki liggur fyrir hverjir keyptu þau ytra né hvort fyrri eig- endur Saxbyggs tengist þeim með einhverjum hætti. Þá er óvíst með kaupverðið. Einar Gautur segir margt óljóst um viðskiptin og verið sé að skoða þau í þaula. Björn Ingi Sveinsson, fyrrver- andi framkvæmdastjóri Saxbyggs, vinnur við verkefnin erlendis. Hann segist bundinn trúnaði um eignar- haldið. „Jón Þorsteinn tengist þeim ekki,“ segir hann og bætir við að verðið hafi verið eðlilegt á sínum tíma enda eignir tengdar Íslending- um ekki hátt skrifaðar ytra í kring- um hrunið. jonab@frettabladid.is Margt á huldu um eignasölu við hrun Skiptastjóri gjaldþrota félags í eigu Nóatúnsfjölskyldunnar segir margt óljóst um sölu eigna þess í Bretlandi og Þýskalandi í kringum hrun bankanna í fyrra. Fyrrverandi framkvæmdastjóri Saxbyggs segir verðið hafa verið eðlilegt. Sindri, var auðvelt að fanga athygli kvennanna? „Eftir að lesturinn hófst vildu þær ekki sleppa. Flestar sitja þær líka inni fyrir að hafa hnuplað eintaki af bókinni.“ Sindri Freysson las upp úr bók sinni Dóttir mæðra minna í kvennafangelsinu í Kópavogi á dögunum. LÖGREGLUMÁL Brotist var inn í Skálholtskirkju og Sólheima- kirkju, sem eru báðar í umdæmi lögreglunnar á Selfossi, í fyrri- nótt. Þjófarnir brutust inn í skrúðhúsið í Skálholtskirkju og þaðan var stolið vínrauðum og blálituðum prestsskrúða með gylltum krossi, silfurkaleik og silfurskríni undir oblátur. Í Sólheimakirkju var söfnunar- baukur brotinn upp en ekki var miklu stolið úr honum. Að sögn lögreglunnar á Selfossi er málið enn í rannsókn. - fb Innbrot í sunnlenskar kirkjur: Silfurskríni og kaleik stolið SKÁLHOLTSKIRKJA Stolið var silfurkaleik og silfurskríni undir oblátur úr Skálholts- kirkju. SLYS Kveikt var á friðarkertum á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði í gærkvöldi til stuðnings Hrafn- katli Kristjánssyni, íþróttafrétta- manni Sjónvarpsins og fyrrver- andi leikmanns FH. Hrafnkell liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans þar sem honum er haldið sofandi í öndunarvél eftir alvarlegt umferðarslys síðastliðinn föstu- dag. Tveir létu lífið í slysinu, sem átti sér stað norðan við Arnarnes- brú á Hafnarfjarðarvegi. Hinir látnu eru fæddir árin 1950 og 1947. Fjöldi fólks mætti í Kaplakrik- ann og myndaði ljósahaf vonar og samstöðu á vellinum til stuðnings Hrafnkatli. Á meðal þeirra var bróðir Hrafnkells, knattspyrnu- þjálfarinn Ólafur Kristjánsson, sem ræddi við viðstadda. - fb Fjöldi fólks kom saman á Kaplakrikavelli til stuðnings Hrafnkatli Kristjánssyni: Ljósahaf vonar og samstöðu KVEIKT Á KERTUM Kveikt var á friðarkertum til stuðnings Hrafnkatli Kristjánssyni sem liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FILIPPSEYJAR Miklar öskuspreng- ingar urðu á mánudaginn í eld- fjallinu Mayon, sem er virkasta eldfjall Filippseyja. Öskuspreng- ingunum fylgdu jarðskjálft- ar; á sunnudaginn mældust 453 skjálftar og í kjölfarið hækkuðu yfirvöld hættustigið upp í fjögur af fimm. Hermenn vakta svæðið í kring- um rætur fjallsins og vísa burt hverjum þeim sem hættir sér inn á það, en bændur hafa sumir snúið heim til að dytta að býlum sínum. Eldfjallið er um 340 kíló- metra frá Manila, höfuðborg Fil- ippseyja. Um fjörutíu þúsund manns hafa þurft að flýja heim- ili sín síðan á þriðjudag og gert er ráð fyrir að rýma þurfi fleiri heimili í byrjun vikunnar. Yfir- völd á Filippseyjum eru staðráð- in í því að koma í veg fyrir dauðs- föll, en árið 1991 létust um 800 manns þegar eldfjallið Pinatubo gaus. Ronald Surban Fatalla, formað- ur Filippínska-íslenska félagsins, segir jarðhræringar sem þessar eiga sér stað reglulega og því taki fólk þeim með jafnaðargeði en auðvitað séu menn ávallt eilít- ið áhyggjufullir. „Þetta er fátækt land og miklar náttúruhamfarir gætu haft slæmar afleiðingar í för með sér,“ segir Ronald. - sm Formaður Filippínska-íslenska félagsins segir fólk taka eldgosi með jafnaðargeði: Fjöldi manns flýr heimili sín BJÖRGUNARAÐGERÐIR Björgunarmenn halda á eldri manni sem þurfti að yfir- gefa heimili sitt. STJÓRNMÁL Björgólfur Thor Björgólfsson þótti „fínn pappír“ þegar farið var af stað með Verne Holdings-gagna- verið. Síðan hefur hann „farið illa að ráði sínu og bakað okkur tjón. Við skul- um takast á við það á forsend- um réttarríkis- ins.“ Svo segir Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra. Steingrímur var gestur í þætti Sigurjóns M. Egilssonar á Bylgj- unni í gær og ræddi um gagnrýni á að einn höfuðpaur Landsbanka, og þar með Icesave-samninganna, fái skattaívilnanir frá ríkinu til að fjárfesta hér á landi. Steingrímur minnti á gagnrýni Suðurnesjamanna vegna seina- gangs við að koma gagnaverinu á koppinn. „Menn verða þá að spyrja sig að því hvort við ætlum að stranda öllu verkefninu vegna þess að Björgólfur Thor lagði af stað með það,“ sagði hann. - kóþ Fjármálaráðherra um Verne: Beitum reglum réttarríkisins STEINGRÍMUR JÓHANN SIGFÚSSON BANKAHRUN Á fimmta tug mála sem tengjast hruni bankanna eru nú á borði sérstaks saksókn- ara. Einnig hefur fjöldi kæra til efnahagsbrotadeildar ríkislög- reglustjóra nærri tvöfaldast á tveimur árum. Álag á ákæruvald og dóm- stóla hefur aukist gríðarlega eftir bankahrunið á sama tíma og stjórnvöld hafa þurft að skera niður framlög vegna versnandi stöðu ríkisfjármála. Óhætt er að fullyrða að ríkisstjórnin hafi skynjað þörfina fyrir aukinn þunga í rannsókn efnahagsbrota enda hafa framlög til sérstaks saksóknara verið aukin. - fb Rannsóknin á bankahruninu: Á fimmta tug mála í vinnslu ÆTTLEIÐINGAR Hátt í eitt hundrað íslenskar fjölskyldur bíða eftir barni til ættleiðingar og hefur biðlistinn aldrei verið svo langur. Nýjar reglur stytta aftur á móti biðtímann verulega fyrir fólk sem bíður eftir því að ættleiða annað barn. Aðeins fjórtán börn voru ættleidd á þessu ári. Ættleiðingar á Íslandi: Hundrað bíða eftir barni Saxbygg var í sameiginlegri eigu Saxhóls og Byggs (Byggingarfélags Gylfa og Gunnars). Eigandi Saxhóls var Nóatúnsfjölskyldan svokallaða, börn Jóns Júlí- ussonar, sem seldi Kaupási Nóatúnsverslanirnar árið 2000. Saxbygg Invest, eitt dótturfélaga Saxbyggs, átti tæpan sex prósenta hlut í Glitni og Saxhóll 7,5 prósenta hlut í Byr sparisjóði. Á meðal annarra eigna Saxbyggs eru félögin í Saxbygg Investments London og Saxbygg Invest- ments Berlin, sem sáu um fasteignaverkefnin þar, og rúmur helmingshlutur í Smáralind í gegnum Eik Properties. Saxbygg óskaði eftir gjaldþroti í maí á þessu ári. Jón Þorsteinn Jónsson, var stjórnarformaður Byrs og forsvarsmaður Saxhóls. Hann sætir nú farbanni vegna rannsóknar tengdri málefnum Byrs. Jón hafði nýverið flutt lögheimili sitt til Lundúna. NÁIN TENGSL VIÐ FJÁRMÁLAFYRIRTÆKI FRÁ LUNDÚNUM Fasteignafélag í eigu Byrs, Saxbyggs og fleiri aðila sá mikla hagnaðarvon í Lundúnum. Raunin varð önnur. FRÉTTABLAÐIÐ/AP IÐNAÐUR Bandaríski bílarisinn General Motors (GM) hefur fengið nokkrar fyrirspurnir frá áhugasömum aðilum um helgina um kaup á sænska bílaframleið- andanum Saab. GM hefur átt við gríðarlega rekstrarerfiðleika að stríða um árabil og leitaði eftir því að selja frá sér eignir, þar á meðal bíla- framleiðslu Saab. Bloomberg- fréttaveitan sagði í gær tilboðið nokkuð opið og væri enginn sér- stakur lokafrestur á því. - jab Nokkrir hafa áhuga á Saab: Nýtt tilboð komið í hús SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.