Fréttablaðið - 21.12.2009, Qupperneq 4
4 21. desember 2009 MÁNUDAGUR
GENGIÐ 18.12.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
237,2829
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,17 127,77
206,20 207,20
182,92 183,94
24,577 24,721
21,776 21,904
17,503 17,605
1,4090 1,4172
199,84 201,04
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
FULLT HÚS JÓLAGJAFA
6.990kr.
6.990kr.
ÁLFTANES Viðræður vegna hugsanlegrar sameiningar
Álftaness og Garðabæjar eru ekki hafnar, að sögn
Kristins Guðlaugssonar, forseta bæjarstjórnar. Full-
trúar í bæjarstjórn Álftaness hafi ekki haft samband
við félaga sína í Garðabæ.
Samkvæmt samkomulagi við Eftirlitsnefnd með
fjármálum sveitarfélaga, sem samþykkt var á fimmtu-
dag, skal Álftanes þegar hefja viðræður við önnur
sveitarfélög um sameiningu.
Pálmi Þór Másson, bæjarstjóri Álftaness, sagði á
íbúafundi á fimmtudag að viðræður hefðust þegar í
stað. „Títtnefndust“ væri hugsanleg sameining við
Garðabæ.
Sveitarfélagið hefur frest til 20. janúar til að skila
skýrslu um framgang viðræðnanna og annarra endur-
reisnaraðgerða.
Kristinn Guðlaugsson segir tíðindi af viðræðum
verða „eitt af því sem verður bara gefið út 20. janúar“.
Álftanes glímir sem kunnugt er við talsverða
fjárhags örðugleika og fyrrgreint samkomulag var
gert til að forða sveitarfélaginu frá greiðsluþroti. - kóþ
Viðræður um sameiningu sveitarfélaganna Álftaness og Garðabæjar bíða:
Álftanes hefur ekki hringt
FRÁ ÍBÚAFUNDI Á FIMMTUDAG Fjöldi íbúa mætti á fund með
bæjarstjórn, ráðgjöfum og fulltrúum ráðuneytis. Bæjarstjóri
Álftaness, síðan í september, er annar frá vinstri á myndinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Valt með hestakerru
Bíll með tóma hestakerru valt á
þjóðveginum milli Bláfjallaafleggjara
og Litlu kaffistofunnar skömmu fyrir
hádegi í gær. Að sögn lögreglunnar í
Reykjavík voru þrír í bílnum og voru
tveir þeirra fluttir í burtu í sjúkrabíl.
Ekki er talið að fólkið hafi slasast
alvarlega. Ökumaður bílsins er um
fimmtugt en farþegarnir eru um fer-
tugt og sautján ára. Leiðinlegt veður
var á slysstað en ekki er talið að hálka
hafi verið á svæðinu.
LÖGREGLUFRÉTTIR
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
17°
1°
-2°
-1°
2°
-1°
0°
1°
1°
23°
3°
18°
4°
16°
-9°
1°
12°
-3°
Á MORGUN
6-10 m/s
en hvassara SA-til.
MIÐVIKUDAGUR
8-15 m/s,
hvassast á Vestfjörðum.
-2
-3
-4
-2
-5
0
-3
0
-3
0
-8
9
10
6
9
8
11
12
16
9
13
9
-3
-5 -4
-6
-4 -4
-5 -4
-4
-2
KÖLD JÓL Jóla-
veðurspáin er
óðum að taka á sig
mynd. Norðan- og
austanlands verða
hvít jól en þeir sem
búa sunnan- og
vestanlands verða
að sætta sig við
rauð jól. Norðan-
áttin er eindregin
næstu daga, það
verður áfram kalt
og því töluverð
vindkæling.
Soffía
Sveinsdóttir
Veður-
fréttamaður
FÓLK Hollywood-leikkonan Britt-
any Murphy lést úr hjartaáfalli í
gær, aðeins 32 ára gömul. Hringt
var í slökkviliðið í Los Angeles
snemma í gærmorgun af heim-
ili hennar og eiginmanns henn-
ar, handritshöfundarins Simon
Monjack. Leikkonan var flutt
á sjúkrahús þar sem hún var
úrskurðuð látin. Murphy sló í
gegn í myndinni Clueless árið
1995. Eftir það lék hún í 8 Mile,
Sin City og fleiri vinsælum
myndum. Fyrir nokkrum árum
sendi hún frá sér lagið Faster Kill
Pussycat sem náði töluverðum
vinsældum. - fb
Brittany Murphy látin:
Sviplegt fráfall
í Hollywood
BRITTANY MURPHY Hollywood-leikkon-
an er látin, aðeins 32 ára að aldri.
NORDICPHOTOS/GETTY
VENESÚELA Hugo Chavez, forseti
Venesúela, hefur fyrirskipað að
reist verði ný herstöð við landa-
mæri Venesúela og Kólumbíu.
Grunnt á því góða hefur verið á
milli ríkjanna að undanförnu.
Stjórnvöld í Venesúela hafa
ásakað nágranna sína um njósn-
ir auk þess að leyfa Bandaríkja-
mönnum að koma upp herstöðv-
um sem nota megi til að gera árás
á Venesúela. Alvaro Uribe, for-
seti Kólumbíu, hefur hins vegar
vísað ásökunum stjórnvalda í
Venesúela alfarið á bug.
Chavez segir að besta leiðin til
að komast hjá stríði sé að búa sig
undir stríð.
Forseti Venesúela:
Undirbýr her-
inn undir átök
LÖGREGLUMÁL Lögreglan hefur upp-
lýsingar um að amfetamín sé fram-
leitt hér á landi. Karl Steinar Vals-
son, yfirmaður fíkniefnadeildar
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu, staðfestir þetta.
„Við höfum upplýsingar um að
amfetamín hafi verið framleitt á
Íslandi og að það sé ennþá gert,“
segir Karl Steinar. „Það er bæði
flutt inn og framleitt að einhverju
leyti hér innan lands. Í nokkrum
málum sem upp hafa komið hefur
verið um að ræða smygl á amfet-
amíni í fljótandi formi, sem hefur
þá átt að fullvinna hér. Hægt er að
fullvinna þetta efni á ýmsum stig-
um framleiðslunnar.“
Spurður hvort talið sé að amfet-
amín sé framleitt í miklu magni hér-
lendis kveðst hann ekki vilja tjá sig
frekar um málið á þessu stigi.
Götuhópur fíkniefnadeildar lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu
hefur tekið tæp 44 kíló af fíkniefn-
um í húsleitum það sem af er árinu.
Á sama tíma í fyrra hafði hópurinn
tekið rétt rúm níu kíló.
Karl Steinar bendir á að fyrir
utan það magn sem hér er um að
ræða séu fjölmörg innflutnings-
mál, þar sem stórar fíkniefnasend-
ingar hafi verið teknar. Þessar tölur
segi því aðeins hluta sögunnar, en
beri engu að síður vott um frábæran
árangur.
„Á þessum tíma í fyrra vorum
við að hefja undirbúning þess að
taka þessar kannabisræktanir. Við
vorum þá með ábendingar um að
mikil sveifla væri að ganga yfir í
innlendri framleiðslu á kannabis-
efnum. Við tókum þá ákvörðun að
einbeita okkur að þessum málum og
það hefur sýnt sig að sú ákvörðun
var hárrétt. Við höfum verið að taka
meira en eina ræktun á viku að með-
altali. Það eru ekki mörg ár síðan
sama magn og við erum að taka á
viku núna var tekið á heilu ári. Mun-
urinn er því yfirgengilega mikill.“
Karl Steinar segir þessa aukn-
ingu stafa af því að auk þess sem
fíkniefnadeildin hafi einbeitt sér
að kannabisræktunum virðist upp-
sveifla hafa verið í framleiðslu
fíkniefna og sölu þeirra í kjölfarið.
Framboð af kókaíni hafi verið held-
ur minna en oft áður. Amfetamín
hafi hins vegar verið algengasta
sterka efnið hér á landi í mörg ár.
jss@frettabladid.is
KARL STEINAR VALSSON Yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu segir það magn sem götuhópurinn hefur tekið á árinu bera vott um frábæran
árangur.
Amfetamín er enn
framleitt hér á landi
Götuhópur fíkniefnalögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið tæp 45
kíló af fíkniefnum í húsleitum það sem af er árinu. Karl Steinar Valsson segir
lögregluna hafa upplýsingar um að amfetamín sé enn framleitt hér á landi.
Magn það sem af er árinu 2009 og á sama tíma árið 2008.
Efni: 2008 2009
Ræktanir 403 stk. 59 stk.
Kannabisplöntur 403 stk. 8.897 stk.
Maríjúana 3.020 g 16,262 kg
Kannabisefni 1.459 g 20,491 kg
Amfetamín 1.162 g 2.190,85 g
Kókaín 1.459 g 618,94 g
E-töflur 614 stk. 127 stk.
Hass 1.332 g 4.648,72 kg
Sterar 2.114 tfl. 11.424 tfl.
Sterar 63 ml 2.685 ml
Hassolía 150 ml 1,53 ml
Samtals 9.150 kg 44.920 kg
HALDLÖGÐ EFNI Í HÚSLEITUM
LANDBÚNAÐUR Sala á kindakjöti
jókst um nítján prósent og sala á
kjúklingum um fimmtán prósent
í nóvember síðastliðnum saman-
borið við sama mánuð í fyrra.
Nautakjötssala jókst um rúmlega
tólf prósent, en sala á svínakjöti
dróst saman um átján prósent.
Þetta kemur fram í samantekt
Landsambands kúabænda.Fram-
leiðsla á kindakjöti dróst á sama
tíma saman um tólf prósent og
framleiðsla svínakjöts um sautj-
án prósent. Framleiðsla á kjúkl-
ingum jókst um 25 prósent, og
framleiðsla á nautakjöti jókst um
fjórtán prósent. - bj
Landsmenn auka kjötneyslu:
Aukning í öðru
en svínakjöti
FRAMLEIÐSLA Framleiðsla á kjúklingum
og nautakjöti jókst í síðasta mánuði.
HÚNAVATNSSÝSLA Björgunar-
sveitarmenn í Húnavatnssýslu
sóttu kindur í Oddnýjargil upp
á hálendi fyrir helgi. Rjúpna-
skyttur urðu varar við féð en það
var Fjallaskilanefnd Húnavatns-
hrepps sem leitaði til björgunar-
sveitarinnar Blöndu eftir aðstoð.
Fimm björgunarsveitarmenn
ásamt hundi fóru upp að Lang-
jökli og fundu þar kind með
tveimur lömbum. Kindin og
annað lambið náðust en hitt lamb-
ið komst undan. Ekki hefur verið
tekið ákvörðun um hvort farinn
verður annar leiðangur til að ná í
lambið sem eftir varð. - sm
Óskilafé á Langjökli:
Björguðu kind
og lambi