Fréttablaðið - 21.12.2009, Blaðsíða 16
16
HÖFUÐBÚNAÐUR MEÐ VÆNGJUM
Hann virðist heldur betur komast á
flug, þessi þingmaður í Kúveit sem tók
upp á því að laga til höfuðbúnað sinn
í miðri þingræðu. NORDICPHOTOS/AFP
VARSJÁ, AP Víða í Evrópu hefur hitastig fallið niður
fyrir frostmark og í Póllandi létust fimmtán manns
úr kulda um helgina. Mikil snjókoma hefur valdið
töfum á flugi í París og Amsterdam og var flugvell-
inum í Manchester og Brussel lokað vegna veðurs.
Að auki urðu miklar tafir á lestaferðum víða um
Evrópu vegna ísingar á lestarteinum.
Flest dauðsföll voru í Póllandi, en þar mældist
tuttugu stiga frost um nóttina. Fimmtán manns dóu
úr kulda og hefur pólska lögreglan biðlað til fólks
að vera á varðbergi og gera lögreglu viðvart, sjái
það útigangsmenn á götum úti.
Í Austurríki urðu tvær manneskjur úti um nótt-
ina á leið heim frá kvöldskemmtun, einn lést í
frönsku borginni Marseille og heimilislaus maður
fannst látinn við járnbrautarstöð í Mannheim í
Þýskalandi, en þar mældist fimmtán stiga frost um
helgina.
Frosthörkurnar hafa einnig valdið miklum usla
í Ítalíu en vegna mikillar snjókomu gengur erfið-
lega að flytja nauðsynjavörur milli borga. Einnig
er hætta á að ólífu- og ávaxtauppskerur skemmist
vegna kuldans. - sm
Mikið frost hefur mælst víða um Evrópu og tafir orðið á flugi:
Fimmtán létust úr kulda
FROSTHÖRKUR Mikið frost er víða um Evrópu. Í Póllandi hafa
fimmtán manns látist úr kulda.
Tinni
690 kr.
Smáratorgi + Kópavogi
Sími 580 0000 + www.a4.is
Ótrúleg
t verð!
Bækur
frá Fjöl
va
frá 290
kr.
til 690 k
r.
LOFTSLAGSMÁL Lítið kom út úr lofts-
lagsráðstefnunni í Kaupmanna-
höfn hvað samþykktir varðar. Eftir
maraþonviðræður varð reyndin sú
að lítið var fest á blað. Enn eru mikl-
ar deilur á milli þjóða um hvernig
tekið skuli á hlýnun jarðar. Svandís
Svavarsdóttir umhverfisráðherra
segir þá staðreynd að allir helstu
þjóðarleiðtogar heimsins hafi komið
til ráðslags um loftlagsmál þó mikil-
væg tíðindi. Það gefi von um að sam-
komulag náist á næstunni.
Leiðtogar sátu á rökstólum fram
eftir degi á föstudag, en síðan var
embættismönnum látið eftir að klára
textann. Ekki náðist samkomulag
um lagalega bindandi samning, líkt
og stefnt hafði verið að. Samkomu-
lag náðist um markmiðið að loftslag
jarðar hlýnaði ekki meira en tvær
gráður frá iðnbyltingu, en þjóðir
heimsins komu sér ekki saman um
hvernig það skyldi útfært.
Miklar væntingar voru gerðar til
ráðstefnunnar og vonuðust skipu-
leggjendur til að til yrði Kaup-
mannahafnarsamningur sem legði
ríkjum línurnar í loftslagsmálum.
Þegar til kastanna kom voru ríkin
ekki tilbúin til að gefa eigin hags-
muni eftir til að ná samningi.
Nokkuð hefur verið rætt um hlut-
verk Sameinuðu þjóðanna eftir
ráðstefnuna, en kerfi þeirra gerir
ráð fyrir að náð sé sameiginlegri
niðurstöðu um mál sem snerta þjóð-
ir heimsins. Það verður til þess að
einstaka ríki geta komið í veg fyrir
að samningar náist.
Ban Ki-moon, aðalritari Samein-
uðu þjóðanna, sagðist vonast til að
samkomulagið í Kaupmannahöfn
gæfi tóninn fyrir lagalega bindandi
samning sem nást mundi í Mexíkó
á næsta ári. Í samtali við breska
ríkisútvarpið sagði hann samkomu-
lagið vera nauðsynlegan grundvöll
frekari samninga. „Mikilvægi þess
verður aðeins viðurkennt þegar það
verður að alþjóðlegri löggjöf. Við
verðum að koma á fót lagalega bind-
andi samningi á næsta ári.“
Yvo de Boer, framkvæmdastjóri
umhverfismála hjá Sameinuðu þjóð-
unum, sagði í fréttatilkynningu að
frekari aðgerða væri þörf. „Við verð-
um að vera hreinskilin um hvað við
höfum í hendi. Alþjóðasamfélagið
fer með samning frá Kaupmanna-
höfn. En klárlega verður að draga
meira úr útblæstri gróðurhúsaloft-
tegunda ef takast á að koma í veg
fyrir meira en tveggja gráðu hlýnun
jarðar.“ kolbeinn@frettabladid.is
Niðurstaðan vonbrigði
Eftir langar samningaviðræður á loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn varð
niðurstaðan almennt orðuð yfirlýsing, sem er ekki lagalega bindandi.
Loftslagsráðstefnan í Kaupmannahöfn
BANDARÍKIN Tólf fangar voru flutt-
ir frá Guantánamo-fangelsinu til
síns heima um helgina. Sex karl-
menn frá Jemen, fjórir Afganar
og tveir Sómalar voru fluttir frá
fangelsinu.
Barack Obama viðurkenndi í
nóvember að ekki væri unnt að
standa við áætlanir um að loka
fangelsinu í janúar. Vonast er til að
um 116 fangar verði sendir heim
á næstu mánuðum. Jemenar eru
helmingur fanga í Guantánamo
og óttast bandarísk yfirvöld að
þeir muni ganga aftur til liðs við
herskáa hópa við heimkomuna. -sm
Losna frá Guantánamo:
Tólf fangar
sendir heim
SENDIR HEIM Áætlað er að um 116
fangar verði sendir heim frá Guan-
tánamo á næstu mánuðum.
Fiskiskip losnaði frá bryggju
Sterkur norðanvindur gekk yfir Vest-
mannaeyjar í gær. Fiskiskip losnaði
frá bryggju þegar landfestar slitnuðu,
hraðbátur fauk af kerru og vinnupallar
fuku. Tjón mun ekki hafa verið mikið.
VESTMANNAEYJAR
BANDARÍKIN Demókratar í öld-
ungadeild Bandaríkjaþings
fullyrða að þeir hafi tryggt
stuðning 60
þingmanna af
100 við nýja
heilbrigðis-
löggjöf Bar-
acks Obama.
Repúblikanar
segja breyting-
una of dýra og
eru staðráðn-
ir í að koma í
veg fyrir að
frumvarpið verði að lögum.
Atkvæði um málið verða greidd
í vikunni.
Með frumvarpinu er tryggt
að þrjátíu milljónir Banda-
ríkjamanna sem hafa verið án
sjúkratrygginga njóti framveg-
is trygginga. Í fulltrúadeild-
inni var frumvarpið samþykkt
án heimildar til að greiða fyrir
fóstureyðingar. - sm
Nýtur stuðnings meirihluta:
Greiða atkvæði
nú í vikunni
BARACK OBAMA
FRÁ RÁÐSTEFNUNNI Aðalritari SÞ vonast til að samkomulagið í Kaupmannahöfn gefi
tóninn fyrir lagalega bindandi samning sem nást myndi í Mexíkó á næsta ári.
NORDICPHOTOS/AFP
Rán með sprautunál
Rán var framið í söluturni við
Bústaðaveg skömmu eftir hádegi í
gær. Ung kona ógnaði starfsstúlku
með sprautunál og komst undan
með eitthvað af peningum. Ræn-
inginn var ófundinn í gær að sögn
lögreglunnar í Reykjavík.
LÖGREGLUFRÉTTIR