Fréttablaðið - 21.12.2009, Blaðsíða 50
38 21. desember 2009 MÁNUDAGUR
UMRÆÐAN
Þórólfur Guðnason og Har-
aldur Briem skrifa um bólu-
efni
Þorsteinn Sch. Thorsteinsson ritar grein í Fréttablaðið þ. 17.
desember sl. þar sem hann mótmæl-
ir þeirri ákvörðun að velja bóluefn-
ið Pandemrix® til notkunar hér á
landi við bólusetningu gegn svína-
inflúensu. Þorsteinn hefur nýlega
ritað tvær greinar í Morgunblaðið
um nákvæmlega sama efni og var
fyrri grein hans svarað í Morgun-
blaðinu þann 1. desember.
Þar sem allar þrjár greinar Þor-
steins eru nánast eins og einni
þeirra hefur áður verið svarað þá
kann að vera óþarfi að svara grein
hans í Fréttablaðinu. Þó er óhjá-
kvæmilegt að leiðrétta nokkrar
rangfærslur í greininni.
Þorsteinn talar um að fjöldi aðila
víðs vegar um heiminn hafi lagt
fram kæru vegna skaða sem þeir
hafi hlotið af völdum bóluefnisins.
Því er til að svara að hvergi hefur
komið fram að fjöldi einstaklinga
hafi hlotið skaða af bóluefninu.
Hið sanna er að Lyfjastofnun Evr-
ópusambandsins sem fylgist með
öryggi bóluefnisins hefur þvert á
móti fullyrt að bóluefnið sem notað
er hér á landi uppfyllir alla staðla
um öryggi. Stofnunin bendir einn-
ig á að reynslan af bólusetningu
tuga milljóna einstaklinga á síðustu
mánuðum sýni að bóluefnið er jafn
öruggt og önnur bóluefni.
Þorsteinn heldur því fram að
landlæknisembættið hafi ekkert
fjallað um squalene-efnið sem notað
er sem ónæmisglæðir í bóluefninu.
Hið rétta er að landlæknis embættið
fjallar um skvalen (e. squalene) á
upplýsingasíðu sinni (http://influ-
ensa.is) og hefur auk þess fjallað um
skvalen víða í fjölmiðlum og m.a. í
áðurnefndri grein í Morgunblaðinu
1. desember sl. Skvalen hefur verið
rannsakað í bóluefnum hjá tugum
milljóna einstaklinga og alvarlegum
aukaverkunum ekki verið lýst.
Bandarískir hermenn í Persaflóa-
stríðinu sem Þorsteinn telur að hafi
orðið fyrir skaða af völdum skvalen
í bóluefnum höfðu margar nærtæk-
ar skýringar á þeim andlegu og lík-
amlegu sjúkdómum sem þeir urðu
fyrir. Það er í raun furðulegt að láta
sér detta í hug að skvalen, sem átti
að hafa verið í bóluefninu sem þess-
ir hermenn voru bólusettir með, hafi
valdið þessum sjúkdómum. Þetta er
sérstaklega furðulegt þegar haft er
í huga að þessum sjúkdómum hefur
ekki verið lýst hjá milljónum ann-
arra einstaklinga sem fengið hafa
skvalen í bóluefnum og svo þeirrar
staðreyndar að squalene var ekki í
neinu af þeim bóluefnum sem her-
mennirnir voru bólusettir með.
Þorsteinn telur upp nokkra sér-
fræðinga sem eiga að hafa lýst yfir
skaðsemi skvalen í bóluefnum. Ekki
er að finna neinar rannsóknir frá
þessum einstaklingum um þetta
efni í viðurkenndum vísindatíma-
ritum og verður því að draga í efa
sérfræðiþekkingu þeirra á efninu.
Sóttvarnalæknir telur að
bóluefnið sem valið var hér á
landi til að hindra útbreiðslu
svínainflúensunnar og til að koma
í veg fyrir alvarlegar afleiðingar
hennar sé öflugt og öruggt. Hann
hvetur alla landsmenn til að láta
bólusetja sig svo koma megi í veg
fyrir annan faraldur svínainflúens-
unnar síðar á þessum vetri.
Þórólfur er yfirlæknir og
Haraldur sóttvarnalæknir á
Sóttvarnasviði landlæknis-
embættisins.
Enn um bóluefni
UMRÆÐAN
Sigrún Elsa Smáradótt-
ir skrifar um orkumál
Hrunið ætti að hafa kennt okkur það að einkaaðil-
ar fara ekki endilega betur
en opinberir aðilar með
fjármagn, fyrirtæki, orð-
spor eða auðlindir. Auðlind-
ir þjóða geta aldrei verið
einkamál fárra, þær eru lífsviður-
væri þjóða, sá grunnur sem hvert
samfélag hefur til að byggja á. Þróa
sína atvinnuvegi og ná samfélags-
legum árangri. Þjóðin öll á að njóta
auðlinda sinna og nýting þeirra á að
vera með hagsmuni samfélagsins að
leiðarljósi.
Úr sjávarútvegi höfum við slæma
reynslu af því að framselja nýtingu
sameiginlegra auðlinda til útvalinna
einstaklinga. Skuldsetning sjávar-
útvegs hefur með framsali aflaheim-
ilda margfaldast og mörg sorgleg
dæmi eru um það að einkahagsmun-
ir hafi verið teknir fram fyrir hags-
muni heildarinnar, þar sem kvóti
hefur verið seldur frá heilu byggðar-
lögunum.
Það mikil gæfa að tvö stærstu
orkufyrirtæki landsins, Landsvirkj-
un og Orkuveita Reykjavíkur, eru
enn að fullu í almannaeigu. Orku-
fyrirtækin gegna mikilvægu hlut-
verki sem liggur bæði í því að nýta
mikilvægar auðlindir landsins, auk
þess að veita mikilvæga grunnþjón-
ustu. Nýting á sameiginlegum orku-
auðlindum verður að vera sjálfbær
og í sátt við umhverfið og ráðstöf-
un orkunnar verður að fara saman
við þjóðarhagsmuni. Að fyrirtæk-
in verði áfram í opinberri eigu er
grundvöllur þess að tryggja að svo
verði. Ekki er nóg að orkufyrirtækin
hafi viðunandi hagnaðarvon af orku-
sölunni heldur ber okkur skylda til að
beina notkun inni í þjóðhagslega hag-
kvæman farveg. Horfa verður til fjöl-
breytni, mannaflsþarfar og
umhverfissjónarmiða þegar
við horfum til uppbyggingar
á raforkufrekum iðnaði.
Sú grunnþjónusta sem
Orkuveitan veitir, rafmagn,
hitaveita, drykkjarvatn,
gagnaveita og fráveita er
þess eðlis að miklir samfé-
lagslegir hagsmunir liggja í
því að þessi starfsemi sé á
hendi opinberra aðila sem
hafa fyrst og fremst samfélagslega
hagsmuni í fyrirrúmi. Einnig er
mikil vægt að skýr pólitísk ábyrgð og
pólitískt aðhald sé á þessum rekstri
alveg eins og annarri samfélagsþjón-
ustu sveitarfélaga.
Einkarekstur og samkeppni hafa
vissulega kosti fyrir uppgang í sam-
félaginu en einkarekstur er ekki
sjálfkrafa betri en opinber rekstur.
Sérstaklega þegar kemur að þáttum
þar sem nauðsynlegt er að hagsmun-
ir heildarinnar séu ávallt ofar einka-
hagsmunum, þetta á við um helstu
innviði samfélagsins og sameigin-
legar auðlindir. Fyrningarleiðin sem
ríkistjórnin boðar, byggir á innköll-
un aflaheimilda yfir langan tíma og
virkar þá eins og afskriftir aflaheim-
ilda í bókhaldi útgerða, alveg eins og
afskriftir skipa og annars búnaðar.
Þetta er góð leið til að vinda ofan
af þeim mistökum sem gerð voru
í stjórnartíð Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks. Við þurfum að
passa að mistökin endurtaki sig ekki.
Kreppan sem við nú göngum í gegn-
um má ekki verða til þess að við selj-
um frá okkur framtíðina. En velferð
þjóða er nátengd því að þær nýti auð-
lindir sínar í þágu heildarinnar. Þetta
verðum við að hafa hugfast þegar
næstu skref verða tekin hvað varð-
ar orkufyrirtækin okkar. Mikil tæki-
færi liggja í þeirri þekkingu sem við
búum yfir á sviði umhverfisvænnar
orkunýtingar. Þau tækifæri eiga til
langrar framtíðar að nýtast þjóðinni
allri. Höfundur er borgarfulltrúi.
Auðlindir og
nýtingarréttur UMRÆÐAN
Hildur Tryggvadóttir Flóvenz
skrifar um ungt fólk og at-
vinnumál
Fyrir skömmu ritaði Sindri Snær Einarsson, varaformað-
ur Landssambands æskulýðsfé-
laga, grein hér í blaðið um úrræði
til handa ungu atvinnulausu fólki
og hvaða leiðir mætti fara í þeim
efnum til að tryggja betri nýtingu
fjármagns í þágu þessa hóps. Ég
tek undir þær hugmyndir sem
lagðar eru fram í greininni. Mik-
ilvægt er að nýta fjármagn til
handa ungu fólki án atvinnu á sem
bestan hátt og leggja áherslu á að
sem flest virkniúrræði séu í boði
fyrir hópinn.
Þegar virkniúrræði fyrir ungt
atvinnulaust fólk eru rædd þarf
að horfa til þess að um er að ræða
mjög fjölbreyttan hóp. Í því ljósi
er afar mikilvægt að úrræði fyrir
hann séu sem fjölbreyttust svo
allir finni eitthvað við sitt hæfi.
Það hentar alls ekki öllum að
vera í skóla og meðan enga vinnu
er að fá er mikilvægt að þessi
hópur geti fundið sér eitthvað að
hafa fyrir stafni sem bæði eykur
færni þeirra og losar þau úr víta-
hring aðgerðaleysis. Hér koma
félags- og æskulýðssamtök sterkt
inn. Innan veggja alla þeirra fjöl-
breyttu flóru félags- og æskulýðs-
samtaka sem starfandi eru hér á
landi er að finna fjöldann allan af
áhugaverðum og uppbyggjandi
verkefnum sem ungt fólk getur
tekið þátt í. Í starfi hjá félags-
og æskulýðssamtökum fer fram
mikil óformleg menntun sem nýt-
ist einstaklingum vel í formlegu
námi, einkalífi og launuðum störf-
um.
Félags- og æskulýðssamtök
standa nú frammi fyrir samdrætti
líkt og aðrir í þjóðfélaginu á sama
tíma og hlutverk þeirra hefur
aldrei verið mikilvægara. Við hjá
Landssambandi æskulýðsfélaga
leggjum því mikla áherslu á að
vel sé staðið við bakið á félaga- og
æskulýðssamtökum og þau nýtt til
að byggja samfélagið upp að nýju.
Það hefur löngum verið sannað og
kom síðast fram á fundi Háskóla
Íslands og Almannaheilla þann 27.
nóvember sl., að það fjármagn sem
lagt er til félags- og æskulýðssam-
taka skilar sér margfalt til baka
til þjóðfélagsins. Hæfileiki félags-
og æskulýðssamtaka felst í því að
geta gert meira úr peningum en
ríkið. Það er því hagur ríkisins
á tímum samdráttar og sparnað-
ar að styðja dyggilega við bakið
á félags- og æskulýðssamtökum
þegar hugað er að úrræðum á
vandamálum þjóðarinnar og þá
sérstaklega ungs fólks.
Þegar fjármagni er útdeilt til
félaga- og æskulýðssamtaka er
mikilvægt horfa til þess hvað á
að leggja áherslu á. Í ljósi þess
að nú er verið að ræða úrræði
fyrir atvinnulaust ungt fólk er
mikilvægt að fjármagnið fylgi
unga fólkinu. Á Íslandi rennur
nú stærstur hluti fjármagns til
æskulýðsmála til um 10-20% af
æsku landsins og langminnsta
fjármagnið fer til þess aldurs-
hóps sem er í hvað mestri hættu
á tímum efnahagsþrenginga og er
nú stærsti hópur atvinnulausra
hér landi eða 16-25 ára. Til að geta
nýtt fjármagn sem best þarf það
að fylgja unga fólkinu og þeirra
áhugamálum. Sindri kom inn á í
grein sinni, sem nefnd var hér í
upphafi, að það að styrkja sjóði
til handa ungu fólki og setja á
fót úrræði á við Austurbæjarbíó
væru kostir sem hefðu sannað sig.
Undir það tek ég en legg einnig
áherslu á að styrkir til æskulýðs-
félaga sem bjóða upp á verkefni og
tækifæri fyrir ungt fólk eru enn
ein lausnin sem mikilvægt er að
horfa til. Að sjálfsögðu eru þetta
ekki einu lausnirnar en nauðsyn-
legt er að huga að þeim til jafns
við menntunar úrræði innan hins
formlega skólakerfis. Aðalatriðið
er að sem flest úrræði séu í boði
fyrir ungt fólk og hugað sé að
þeim öllum þegar fjármagni er
úthlutað.
Til að hægt sé að horfa til
framtíðar og skoða fjárúthlut-
anir til ungs fólks er mikilvægt
að þeir sem útdeila fjármagninu
hafi sett sér stefnu í málefnum
ungs fólks. Grunnurinn að sann-
gjarnri úthlutun fyrir ungt fólk
er að stefna af þessu tagi sé til og
að fjármagnið fylgi henni. Hafi
menn stefnu í málaflokknum er
minni hætta á að upp komi fum
og fát og gripið sé til aðgerða sem
ekki eru hugsuð frá öllum sjónar-
hornum þegar þrengir að hópn-
um og vandamál koma upp. Menn
vita þá hvert þeir stefna. Margar
nágrannaþjóðir okkar hafa sett
sér stefnu sem þessa og má þar
meðal annars nefna bæði Svía og
Finna. Reynsla þeirra af heildar-
stefnu í málaflokknum er góð og
ættu því ráðamenn hér á landi að
líta til þeirra og kanna hvað er
hægt að læra af reynslu þeirra
af stefnumótun í málaflokki ungs
fólks. Mikilvægt er að við gerð
stefnu í málefnum ungs fólks séu
störf í félags- og æskulýðsfélögum
virt sem tækifæri fyrir einstakl-
inga og viðurkennd sú óformlega
menntun sem ungt fólk öðlast í
starfi sínu á þessum vettvangi.
Með skýrri stefnu í málaflokki
ungs fólks, auknum stuðningi við
félags- og æskulýðsfélög, fjöl-
breyttum virkniúrræðum, sterk-
um styrktarsjóðum til handa
ungu fólki og æskulýðsfélögum
og tækifærum fyrir ungt fólk
til formlegrar menntunar eru
meiri líkur á að hægt sé að taka á
þeim vanda sem ungt fólk stend-
ur frammi fyrir í dag sem og að
horfa til framtíðar í málefnum
ungs fólks og skapa þeim tæki-
færi í framtíðinni.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Landssambands æskulýðsfélaga.
Tækifæri í æskulýðssamtökum
Víxlar og stutt skuldabréf með ábyrgð íslenska ríkisins.
Sjóðnum er heimilt að fjárfesta allt að 10% í innlánum.
Litlar sveiflur í ávöxtun og enginn binditími.
Hentar þeim sem vilja fjárfesta í þrjá mánuði eða lengur.
Lágmarkskaup 5.000 kr.
Enginn munur á kaup- og sölugengi.
»
»
»
»
»
innlán
ríkisvíxlar og
ríkisskuldabréf90% 10%
RÍKISVÍXLASJÓÐUR
Traustur kostur fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Verðbréfaþjónusta Arion banka
er söluaðili sjóða Stefnis.
Kynntu þér Ríkisvíxlasjóð hjá
starfsfólki verðbréfaþjónustu
Arion banka í síma 444 7000, í
næsta útibúi eða á arionbanki.is/sjodir
ÞÓRÓLFUR
GUÐNASON
HARALDUR BRIEM
SIGRÚN ELSA
SMÁRADÓTTIR