Fréttablaðið - 21.12.2009, Page 60

Fréttablaðið - 21.12.2009, Page 60
48 21. desember 2009 MÁNUDAGUR folk@frettabladid.is > BÓNORÐ Í VÆNDUM? Kanye West er sagður vilja giftast kær- ustu sinni, fyrirsætunni Amber Rose. Samkvæmt heimildum breska dagblaðsins The Daily Star er rapparinn sagður ætla að bjóða Rose í rómantíska ferð til Dóm- iníska lýðveldisins í Karíba- hafinu í byrjun næsta árs og biðja hennar þar. Þar munu þau gista í átta herbergja lúxus-villu sem kostar hvorki meira né minna en 2.000 pund á nóttu. „Ég held að það liggi um þrjú þúsund heimildir til grundvallar þessari bók. Þetta er heimildarvinna á við tvær doktorsritgerðir,“ segir Jónas Knútsson, sem sendi á dögunum frá sér Bíósögu Bandaríkjanna. Jónas hóf vinnu við bókina árið 2000 og síðan þá hefur gríðarlegur tími farið í verk- efnið. „Þetta var eiginlega stórslys. Ég hafði áður samið fjórar greinar um kvikmynda- sögu Þýskalands fyrir Mogg- ann. Fyrst ég var búsettur í Banda- ríkjunum fannst mér gráupplagt að fara í bíósögu Bandaríkjanna,“ segir hann. „Þetta er eiginlega verkefni sem fer úr böndunum og er miklu stærra í sniðum en maður gerir sér grein fyrir. Maður áttaði sig á því að maður veit miklu minna um bíósögu Bandaríkjanna en maður heldur. Þetta er stór og mikil saga sem býr þarna að baki.“ Jónas er mikill kvikmyndaáhugamað- ur og er með BA-gráðu frá New York- háskólanum í kvikmyndaleikstjórn og kvikmyndafræðum. Hann hefur meðal annars gert heimildarmynd um Sverri Stormsker sem var sýnd í Sjónvarpinu. Hann er einnig með háskólapróf í latínu og hefur unnið mikið sem þýðandi. Jónas vonast til að Bíósagan verði þýdd á erlend tungumál, enda hefur slík saga ekki áður verið tekin saman með þessum hætti síðan 1950. Alls eru 350 blaðsíður í bókinni og 600 ljósmyndir. „Hún er hugs- uð sem uppflettirit sem menn grípa í á góðri stundu,“ segir Jónas, sem sjálfur er mikill Gög og Gokke-aðdáandi. - fb Eins og tvær doktorsritgerðir ELSKAR GÖG OG GOKKE Jónas hefur sent frá sér bókina Bíósaga Bandaríkjanna sem hann byrjaði að skrifa árið 2000. MYND/CHRISTIAN TUEMPLING Tónlist ★★★★ Lover in the Dark Berndsen Örlí-eitís alla leið Platan Lover in the Dark er hugarfóstur Davíðs Berndsen og Sveinbjörns „Hermigervils“ Thor- arensen. Þeir semja lögin saman, Davíð syngur og Sveinbjörn sér nánast um alla tónlistina. Báðir eru miklar hljóðgervlanördar og fíklar í hljóðgerv- laknúna eitís-músík – og þá frekar í „örlí-eitís“, en það sem á eftir kom, axlarpúðaklætt og stífmálað. Þetta er vissulega hljóðheimur sem er löngu hættur að vera nýr og ferskur enda búið að vinna með þessi sánd út og suður áratugum saman. Einu sinni voru gítarleikarar vissir um að svuntu- þeysirinn myndi steindrepa alla tónlistarsköpun, en nú er enginn að spá í þessu lengur. Músík er bara músík, sama á hvað fólk býr hana til. Strák- arnir yfirkeyra sig ekki á áhrifavöld- unum. Þeir vitna reyndar ótt og títt til skyrtuklæddra höfðingja fortíðar og hljómsveita eins og O.M.D. og Human League, en bæta þó við fróðleik og vitneskju frá árunum þrjátíu sem liðin eru og þónokkru frá eigin brjósti. Þessi plata er ljómandi skemmti- leg, létt og hress með svalari þyngslum inn á milli. Afburðalag er Supertime, sem frábært bílslysamynd- band var gert við í sumar. Jafn grípandi lag með svona flottu myndbandi ætti léttilega að ná almennilega í gegn. Það er enginn skortur á góðum lögum, þótt þau komist kannski ekki alveg jafnfætis Súpertæminu. Til að mynda eru hin laufléttu Young Boys og In Sight mjög góð stuðlög og vélmennarokkið í The Perfect Human er töff og gantast með framtíðarsýnir fortíðar og þess alvarleika sem þessum framtíðarspám fylgdu – þú veist, vélmennin tækju völdin, og allt það. Vissulega fer það mikið eftir því hversu svag fólk er fyrir tímabilinu sem platan vitnar til hvernig verkið leggst í það. Hér er fátt sem gleður þá mörgu sem finnst eitísið hin myrka öld tónlistarlegrar niðurlægingar. Hinir komast í feitt og ættu auðveldlega að geta kjamsað á þessari fínu skífu. Menn voru tilraunakenndir og framsæknir á þessum tíma, en samt að gera popp. Berndsen líka. Dr. Gunni Niðurstaða: Ljómandi góð poppplata klædd í smart föt frá byrjun níunda EFTIRMINNILEGT MYNDBAND Við besta lag disksins, Supertime. MYND/LÉO STEFÁNSSON Gönguskór á jólatilboði HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500 Fjöldi þekktra einstaklinga féll frá árið 2009 og var poppgoðið Michael Jack- son þar á meðal. Andlát frægra stjarna vekur ávallt eftirtekt, og líður mörgum áhangendum sem þeir hafi misst einhvern nákominn. FALLNAR STJÖRNUR MICHAEL JACKSONPoppgoðið Michael Jack- son lést 25. júní. Hann hné niður á heimili sínu í Los Angeles eftir að hafa fengið hjartaáfall. Hann var úrskurðaður látinn við komuna á spítalann. Dauði Jacksons þótti dularfullur og er talið að ofnotkun verkjalyfja hafi verið orsök hjartaáfallsins. Jackson skilur eftir sig þrjú börn. NATASHA RICHARDSON Leikkonan Natasha Richardson lést eftir höfuðhögg hinn 18. mars. Richardson hafði verið í skíðakennslu í Kanada þegar hún datt og hlaut höfuðhögg, leikkonan neitaði þó að gangast undir læknisskoðun og fór þess í stað heim að hvíla sig. Nokkrum tímum seinna var hún flutt á sjúkrahús vegna höfuðverks en lést á leiðinni. Richardson var gift leikaranum Liam Neeson og áttu þau saman tvo drengi. DOM DELUISE Gamanleikarinn Dom DeLuise lést 4. maí eftir að nýrun hættu skyndilega að starfa. DeLuise hafði lengi þjáðst af sykursýki og of háum blóðþrýstingi vegna offitu og má rekja nýrna- sjúkdóminn til þessa. Coldplay ætlar að selja föt sín og gefa ágóðann til góðgerðamála. Hljómsveitin vonast til að safna þúsundum punda fyrir góðgerða- samtökin Kids Company með því að selja fatnað svo sem skó sem þeir klæddust á Glastonbury-tón- listarhátíðinni og fyrsta gítar söngvarans Chris Martin. Þá ætla þeir að selja jakkana fjóra sem hljómsveitarmeðlimirnir bjuggu sjálfir til og klæddust á heimstón- leikaferðalagi sínu Viva la Vida. Talið er að mesti hagnaðurinn muni hljótast af sölu á gítar Chris, en hann notaði gítarinn til að semja mörg af fyrstu slögurum Coldplay. Annar varningur verður einnig til sölu, svo sem snjáð der- húfa gítarleikarans Jonny Buck- land sem hann var með daglega á tónleikaferðalagi sveitarinnar. Salan fer fram á eBay síðu Kids Company og stendur yfir til 31. desember. Föt Coldplay til sölu LÁTA GOTT AF SÉR LEIÐA Allur hagnaður af sölunni á fötum og varningi Coldplay mun renna til góðgerðasamtakanna Kids Company. DAVID CARRADINE Leikarinn David Carradine fannt látinn á hótelherbergi í Bangkok í Taílandi 4. júní í sumar. Lögreglan kom að leikaranum þar sem hann hékk inni í fataskáp, aðkoman þótti hin undarlegasta og vildi lögreglan ekki útiloka þann möguleika að ein- hver hefði myrt leikarann. Að lokum úrskurðaði dómari að Carradine hafði fallið fyrir eigin hendi. Carradine var einna þekktastur fyrir leik sinn í kvikmyndunum Kill Bill. FARRAH FAWCETT Leikkonan Farrah Fawcett lést 25. júní eftir áralanga baráttu við krabbamein. Fawcett hafði glímt við krabbamein frá árinu 2006 og hafði hún skrásett alla sjúkrasögu sína frá árinu 2007. Krabba- meinið breiddist út og Fawcett lést á gjörgæslu Saint John’s spítalans í Santa Mon- ica. Fawcett var einna þekktust fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum Charlie‘s Angels. PATRICK SWAYZE Leikarinn og dansarinn Patrick Swayze lést 14. september eftir erfiða baráttu við krabbamein. Swayze var ávallt mjög opinskár með sjúkdóm sinn og lét meðal annars hafa eftir sér við eitt tæki- færi; „Ég er aðeins einn af mörgum einstaklingum sem þurfs að berjast við þennan sjúkdóm.“ Eftirminnilegustu hlutverk Swayze voru í kvikmyndunum Dirty Dancing og Ghost.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.