Fréttablaðið - 21.12.2009, Síða 64
52 21. desember 2009 MÁNUDAGUR
Egill „þykki“ Einarsson
sendi á dögunum frá sér
bókina Mannasiðir Gillz.
Bókin hefur notið tals-
verðra vinsælda og situr í
þriðja sæti á vinsældalista
Eymundsson. Fréttablaðið
grípur hér niður í kaflann
„Hvernig á að sleikja rass-
gatið á yfirmanninum“ úr
bókinni.
Það hafa allir einhvern tímann
lent í því að vera í vinnunni og
hugsa: „Af hverju er Siggi orðinn
yfirmaður þessa sviðs, hann gerir
ekki rassgat hérna nema að sleikja
rassgatið á öllum yfirmönnunum!”
Svarið er ósköp einfalt: Það er af
því að Siggi kann að sleikja rass-
göt. Jújú, þú getur mætt í vinnuna
á réttum tíma, staðið þig mjög vel
en ef yfirmaðurinn þinn fílar þig
ekki ertu bara stuck einhversstað-
ar niðri. Sem þýðir að þú ert fast-
ur á ákveðnum stað í vinnunni og
getur hvorki fengið hærri laun né
náð lengra.
Þú vilt vera yfirmaður
Lífið snýst um money. Ekki vera
metnaðarlaus aumingi sem sætt-
ir sig við að vera meðalmaður. Þú
vilt ná lengra! Þú vilt vera yfir-
maður, láta undirmennina vinna
vinnuna fyrir þig og láta budduna
þína tikka meðan þú ert í golfi í
Portúgal með félögunum. Hvernig
gerirðu það? Að sjálfsögðu skiptir
menntun máli, að vera duglegur
er lykilatriði í þessu eins og öðru.
Jafnframt skiptir metnaðurinn
miklu máli! En þetta kemur þér
bara x langt. Á ákveðnum tíma-
punkti, ef þú vilt ná lengra, þá
þarftu að læra að sleikja rassgöt.
Þegar ég var að vinna í IKEA
einu sinni þá voru oftar en ekki
rasshausar í yfirmannastöðum
sem voru gjörsamlega hæfir. En
þeir kunnu þetta – að sleikja rass-
göt.
„Lestu“ yfirmanninn
Það er ekki nóg að vera góður í að
stjórna undirmönnum – þú verður
líka að læra að stjórna yfirmannin-
um. Lærðu að „lesa“ hann. Hvernig
skapi er hann í þennan daginn? Er
hann pirraður, er hann hress, leið-
ur? Tapaði uppáhaldsliðið hans í
enska boltanum um helgina? Fylgj-
ast með þessu öllu. Það er kannski
full hart að kalla þetta að sleikja
rassgatið á yfirmanni sínum. Í
raun er þess vegna hægt að kalla
þetta bara: Hvernig áttu að höndla
yfirmann þinn svo allt gangi eins
þægilega fyrir sig í vinnunni og
mögulegt er.
Láttu honum líka vel við þig
Ef þú getur ekki fengið yfirmann
þinn til að líka vel við þig þá er það
ekki honum að kenna heldur þér.
Ef áhugamál hans eru til dæmis
badminton, hommaklám og enski
boltinn þá ert þú að fara að stúdera
þessa hluti og ræða þá reglulega við
hann. „Hallur, heyrðu varstu búinn
að sjá nýjustu hommaklámmynd-
ina með vini Haffa Haff? Djöf-
ulsins rugl maður, heldurðu ekki
bara að hann fái slökkviliðstæki
upp í rassgatið á sér! Alveg magn-
að.“ LÁTTU HONUM líka vel við
þig! Félagi minn, Gylfi Þór Gylfa-
son, bjargaði eitt sinn yfirmanni
sínum listilega. Gylfi stóð ásamt
honum í hópi fólks og yfirmaður-
inn rekur við. Gylfi var eldfljótur
að hugsa og sagði strax afsakið og
tók þannig sökina á sig. Hann fékk
svo að hætta fyrr þann daginn á
fullum launum! Það getur borgað
sig að vera fljótur að hugsa.
Allir vilja hrós
Hrósaðu yfirmanni þínum reglu-
lega. Var hann að loka einhverjum
díl í vinnunni eða leysti hann eitt-
hvað verkefni vel? Hrósaðu honum.
Allir hafa egó og vilja hrós. Ekki
hrósa honum samt á hverjum ein-
asta degi því þá fer hann að sjá í
gegnum þetta. Passaðu þig að segja
ekki já við öllu sem yfirmaðurinn
segir. Þá fer hann að líta á þig sem
rasshaus sem segir einmitt já við
öllu til að sleikja hann upp. Vertu af
og til ósammála honum og komdu
þá með góð rök. Þá sér hann for-
ystuhæfileika hjá þér og þú verður
mögulega hækkaður í tign.
Taktu blað og penna á fundi
Ef þú ert að fara á fund með yfir-
manni þínum taktu með þér blað
og penna. Þú getur verið að skrifa
niður uppáhalds bíómyndasetn-
ingarnar þínar eða tippa á hvern-
ig leikirnir í enska boltanum fara
en það skiptir engu máli. Hann sér
þig bara vera að punkta niður hjá
þér og verður ánægður með hversu
metnaðarfullur þú ert. Ég notaði
þetta reglulega þegar ég var lag-
ermaður og tyllti mér hjá Bjarna
lagerstjóra. Ég var að ræða við
hann um eitthvert verkefni og
teiknaði jullur á blaðið á meðan.
Hann var hrikalega ánægður með
hvað kallinn var metnaðarfullur.
Ekki deila við stjórann
ALDREI þykjast vera gáfaðari en
yfirmaðurinn. Sérstaklega ekki
fyrir framan hóp af fólki. Það er
ekkert sem hann hatar meira. Ef þú
ert að senda meil á æðsta yfirmann
fyrirtækis og ætlar að sleikja rass-
gatið á honum ekki bæta þá næsta
yfirmanni þínum í CC. Hann verð-
ur brjálaður þegar hann sér að þú
leitaðir ekki til hans heldur fórst
fyrir ofan hann til að vera flottur
gæi. Yfirmaður þinn mun lækka
þig í tign og gefa þér stígvélið áður
en þú veist af. Nú, eða þú verður
strípaður þegar bónusinn verður
næst greiddur út.
Ef starfsmannastjórinn sendir út
póst þar sem óskað er eftir sparn-
aðarhugmyndum, ekki ríplæja á
alla og leggja til að starfsmanna-
stjóranum verði sagt upp störfum.
Það er búið að reyna það og það gaf
ekki góða raun. Þegar starfsmanna-
stjórinn talaði um hreinskiptni í
ræðu sinni á starfsdeginum, mitt
á milli kaflans um hve fyrirtæk-
ið væri fjölskylduvænt og kaflans
um að fyrirtækið væri í raun fjöl-
skylda, þá átti hann ekki alveg við
svona mikla hreinskiptni.
Ekki fela vandamálin
Ef upp kemur vandamál ekki fela
það fyrir yfirmanni þínum. Ef
hann kemst að því mun taka þig
marga mánuði að vinna hann aftur
á þitt band. Yfirmaðurinn þinn vill
þrátt fyrir allt frekar lausnir en
vandamál. Ef þú ert alltaf að koma
með vandamál til hans en engar
lausnir fer hann að hata þig. Vertu
alltaf klár með tvær til þrjár hug-
myndir um hvernig má leysa öll
mál. Ekki samt koma með of mörg
vandamál til hans í einu. Mættu
með eitt vandamál í senn. Ef þú
reynist einn risastór vandamála-
pakki reynir hann að forðast þig
og rekur þig á endanum.
Brostu
Leystu öll verkefni brosandi.
Hversu flókið er að brosa? Þegar
ég var að vinna sem pizzasend-
ill á Pizza Mambó þá var ég pirr-
aður í vinnunni einn daginn og
brosti ekkert. Daginn eftir var
ég lækkaður í tign og gerður að
brauðstangatækni. Það tók mig
heila viku að vinna mig aftur upp
í sendlastöðuna.
Fylgstu með dagskránni hjá
yfirmanninum. Ekki rölta inn á
skrifstofuna hans með eitthvert
verkefni sem þarf að leysa ef það
er kortér í mikilvægan fund hjá
honum. Þá getur hann ekki ein-
beitt sér nóg að þér og athyglin er
annars staðar.
Ef þú drullaðir á þig í einhverju
verkefni viðurkenndu það þá.
Þegar ég var að vinna í IKEA eitt
sinn þá var ég að lagerast á lyftara
og að hlusta á snillingana Sigurjón
Kjartans og Jón Gnarr í Tvíhöfða.
Ég fékk hláturskast og velti þá
óvart heilu bretti af skápum sem
kostaði ekki undir hálfri kúlu. Ég
var að spá í að hlaupa í burtu því
það voru engin vitni. Ég var líka
að spá í að ljúga því að Stjáni feiti
lagermaður hefði gert þetta því ég
vissi alltaf að ef það væri hans orð
á móti mínum þá yrði mér trúað
frekar. En hvað gerði ég? Spark-
aði upp hurðinni hjá Bjarna lager-
stjóra og sagði: „Gamli, ég skeit,
velti heilu helvítis fataskápabretti
maður, maður er nú einu sinni
mannlegur!“ Og síðan sagði ég
strax á eftir: „Djöfulsins rugl hjá
ykkur Liverpool-mönnum að missa
Gerrard í meiðsli maður, það er
hellað!“ Og þá var ég strax búinn
að sjatla þetta og hann var ekki
brjálaður útí mig.
Sýndu hæfileikana
Sýndu honum lymskulega að þú
hafir hæfileika til þess að láta
hlutina gerast og þú getir stjórn-
að mönnum. Ég notaði þetta reglu-
lega í IKEA. Enda var ég fljótt
öppgreidaður úr almennum lag-
ergóm í yfirmann vörumóttöku.
Ég fylgdist með þegar Bjarni
lagerstjóri kom röltandi út gang-
inn og passaði að hann sæi mig
ekki. Síðan þegar ég vissi að hann
var kominn á svæði þar sem hann
heyrði í mér þá öskraði ég á Stjána
feita lyftaramann: „STJÁNI!
Ertu með frómas í hausnum? Ég
þarf að afgreiða þessa fataskápa
út fyrir klukkan tvö. Drullastu
til að taka þá niður eða ég sting
þessum fataskáp upp í rassgatið á
þér, kapísh!“ Yfirmaðurinn heyr-
ir þá hversu grjótharður þú ert og
það getur komið þér upp á næsta
level. Ef þú ert búinn að vera svo
öflugur í að láta yfirmanni þínum
líka vel við þig að hann býður þér
að sitja við borðið sitt í kaffinu
þá verðurðu að leggja þig sér-
staklega fram þar. Ekki þá tala
um neitt vinnutengt. Gott er að
smella fram af og til setningunni
„hvern hitti ég aftur sem tal-
aði svo vel um þig, oh ég verð að
muna það“. Ef þú kannt skotheld-
an brandara komdu þá með hann
og ef að yfirmaðurinn þinn segir
eitthvað sem er fyndið þá skaltu
öskra af hlátri, berja í borðið og
ky?la hann létt í öxlina. Þá verða
vinabönd ykkar strax sterkari.
Bjóddu á barinn
Á jólaglöggi, árshátíð eða bjór-
kvöldi í vinnunni vertu þá fárán-
lega hress. Bjóddu yfirmanni
þínum á barinn og svo skaltu
hlæja að öllu sem hann segir. En
ekki elta hann allt kvöldið. Þú
reynir bara að „rekast“ á hann af
og til. Það eru alltaf 2 3 gæjar sem
verða reiðir þegar þeir eru fullir
á árshátíðum og fara að öskra á
yfirmenn sína. Þeir munu aldrei
ná lengra og verða alltaf meðal-
menni. Það er alltaf einn fáviti á
hverjum vinnustað (í gamla daga
hét þetta „það er alltaf gikk-
ur í hverri veiðistöð“) – gættu
þess að halda þér frá honum á
svona kvöldum. Lífið er of stutt
fyrir leiðindi þegar maður er að
skemmta sér.
Og til að dekka allar hugsanleg-
ar aðstæður: Reyndu að forðast
í lengstu lög að hamra yfirmann
þinn inn á salerni í jólapartýinu.
Það er vandræðalegt daginn eftir,
gæti skemmt jólastemninguna líka
og samband ykkar verður töluvert
stirðara eftir en áður. Þetta kom
fyrir einn góðan vin minn.
Millifyrirsagnir eru blaðsins
Lífið snýst um money
ALLTAF AÐ PUNKTA NIÐUR Egill mælir með því að menn mæti með blað og penna á
hvern einasta fund.
HÖFUNDURINN Egill Einarsson gaf fyrst út Biblíu fallega fólksins. Nú telur þessi umdeildi kraftajötunn sig geta kennt fólki
almennilega mannasiði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA