Vikan


Vikan - 28.09.1961, Blaðsíða 30

Vikan - 28.09.1961, Blaðsíða 30
Tekst þeim að stöðva bílasvindlið Þetta eru nýju Moorley-pejfsuumr Þær fást í flestum sérverzlunum. G. BERGMANN Laufásveffi 16. — Sími 18970. Einkunnir fyrir 73 atriði <3 Séð yfir þann hluta verstæðisins, sem lýtur að skoðun á undirvagni og hjólastillingum. 97—98% af öll- um bílum eru með skakkar fram- hjólastillingar. Mér var fyrir nokkru sögð saga af ungum og reglusömum pilti, sem var byrjaður að vinna fyrir sér og átti sér það áhugamál æðst að eign- ast bíl. Hann bjó með móður sinni og var að nokkru leyti fyrirvinna hennar, svo það gekk að vonum hægt að spara saman bilverð. Hann gafst lika upp við það og þegar hann hafði handbærar þrjátíu þúsund krónur, fór hann á stúfana eftir bil og hugð- ist fá lán fyrir því sem á vantaði. Þessi ungi maður var álíka reyndur og gætinn sem flestir á hans reki og áhuginn fyrir því að komast á eitt- hvert farartæki varð þolinmæðinni yfirsterkari, sem til þess þarf að leita mjög lengi. Hann gat fengið tíu ára gamlan amerískan bil á 65 þúsund eru gefnar fyrir hvern bíl í Bílaskoðuninni h- f. og eigand- inn veit nákvæmlega um ástand bílsins. krónur og hann tók þvi boði; hafði þá fengið 35 þúsund króna lán til Þess að borga mismuninn, því seljandinn vildi fá allt útborgað. Hann hafði varla ekið bilnum meira en eina viku, þegar mótorinn brotn- aði; stimpilstöng hafði bilað og farið út í gegnum vélina. Það kostaði hann nokkur þúsund krónur til viðbótar að lagfæra vélina eftir þessa bilun, en þar með var ekki allt hans ólán úti. Skömmu síðar brotnaði girkass- inn og það var álitin svo kostnaðar- söm viðgerð, að nú gafst ungi mað- urinn upp. I stað þess að fá lán fyrir viðgerðinni, reyndi hann að selja bílinn í því ástandi sem hann var og þegar það loks tókst, sat hann eftir með þrjátiu þúsund króna skuld, sem hann nú er að borga niður og sér framá langan tíma áður en því verði lokið. Þessi saga er því miður ekkert eins- dæmi; hún er miklu fremur einkenn- andi fyrir þau ódæmi, sem eiga sér stað í bílasölu hér á Islandi og það 3Q VUfAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.