Vikan


Vikan - 21.12.1961, Page 6

Vikan - 21.12.1961, Page 6
Eva Mason, ung, ljóshærð og leggjalöng Eva, bauð Johnny sínum Craig varirnar til kveðjukoss; gat ekki að sér gert að líta feimnislega út undan sér um leið til liðsforingja þess, er stóð vörð fyrir innan þvergirðinguna í anddyrinu að heilabúi her f oringj aráðsins. — Vona að þér líði vel í nótt, hvíslaði hún að Johnny. Og þú verður að lofa mér þvi að hugsa til mín öðru hverju. — Sæll, Johnny, sagði liðsforinginn fyrir innan þvergirðinguna. Þú varst ein- hverntima að minnast á það,' að þig langaði til að sýna Evu rafeindaheilann. Nú býðst þér tækifærið. Sá gamli var að hringja og tilkynna að hann kæmi ekki heim fyrr en klukkan ellefu; sagðist vera á áriðandi fundi, en það mætti segja mér, að sá fundur stæði i einhVerjum spilaklúbbnum, eða við eitthvert vínbólið. Þú verður þvl aleinn í rafeindaheilabúinu i fullar þrjár klukkustundir — að minnsta kosti. Ef einhver kynni samt sem áður að koma ykkur á óvart, verður þú að segja að þú hafir laumað henni inn með þér, á meðan ég skrapp inn í snyrtiklefann — er það ekki allt í þessu fína? — Jú, þakka þér fyrir, Jack, sagði Johnny. Og hann sneri sér að Evu. — Ertu ekki til í það? — Auðvitað! svaraði hún og brosti blítt. En spennandi! Að hugsa sér • . . að standa andspænis sjálfum heilanum. — Það er nú eiginlega ekki svo sérlega mikið að sjá, sagði Johany, og kveið nú því, að hún kynni að verða fyrir vonbrigðum, þegar hún stæði loks frammi fyrir sjálfum regin-rafeindaheilanum, heila heilanna í Bandarikjum Norður- Ameríku. Satt að segja, þá var það ekki heldur svo ýkjaspennandi, hugsaði hann með sér, þegar liann leiddi Evu inn í lyftuna, og þrýsti á rofann, sem stýrði því farartæki að botni þessa neðanjarðarhýsis. Fyrst i stað hafði hann alltaf fundið lil lamandi ótta við það, á leiðinni niður, að örlög heimsins skyldu, svo að segja, vera lögð honum i hendur, einkum þegar Norton hershöfðingi hafði hringt og tilkynnt að hann yrði að sitja áríðandi fund, og hann varð því að hafast aleinn við niðri í sjálfu heilabúinu. En nú var honum fyrir löngu horfinn allur slikur ótti. Johnny hafði brátt komizt að raun um, að heilinn var ekkert upp á hann kominn. Hann sat þarna einungis sem tákn þess, að maðurinn væri þó, þrátt fyrir allt, drottinn tækninnar. Og að þessu sinni gleymdust honum allar slíkar hugleiðingar, þegar hann fann heitar og þyrstar varir Evu á munni sér — og svo var það einn óslitinn koss alla leiðina niður í neðstu hvelfinguna, sem auðkennd var með tölunni „-5-10“, sem þýddi að það væri tíunda hvelfingin undir yfirborði jarðar. Hann þrýsti Evu fast að sér og fann fyrir líkama hennar, heitum og ýturvöxnum, gegnum þunnan einkennisbúninginn. — Lyftan er löngu numin staðar, hvislaði Eva i eyra honum. Þú mátt ekki koma of seint á vörð; nóg er samt að þú skulir brjóta reglurnar og taka mig með þér ... Hann opnaði lyftudyrnar og þau gengu um langan gang að sjálfu heilabúinu. Þetta var víður, ferhyrndur salur, veggirnir þaktir óteljandi rofum og stillitækjum, en á miðju gólfi gat að lita eitt feiknaferlíki sem þrykkti með órofnu og háttbundnu tifhljóði orð og tölur á mjóa pappírsræmu, sem rann jafnt og viðstöðulaust út um rauf á ófreskjunni. Aðeins einn maður sat þarna i salnum. Hann varð undrandi á svipinn, þegar hann leit Evu. — Gott kvöld, Harry, varð Johnny að orði. Þú þekkir unnustu mína, er ekki svo? Ég ætla einungis að, sýna henni heilann. Það á að vera i stakasta lagi. — Mln vegna, svaraði Harry. Hef ekki séð hana. Þú faldir hana frammi á ganginum, skilurðu ... — Ég skil, svaraði Johnny. Annars er ekki nein hætta á ferðum. Gamli maðurinn þrem klukkustundum á eftir áætlun. Hefur nokkuð gerzt? — Nei, nei. Heilinn jórtrar bara á þessum venju útskýringum og ályktunum, sem jafnvel herráðið sjálft gæti

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.