Vikan


Vikan - 21.12.1961, Blaðsíða 13

Vikan - 21.12.1961, Blaðsíða 13
 Iplif I KLUBBNUM „Klúbburinn“ átti eins árs afmæli um miðjan nóvember s.l., óg hélt upp á það meS dálítiS sérstökum og frumlegum hætti. í staS þess aS bjóSa þangaS í afmælisveizlu ýmsurn broddborgurum, blaðamönn- um og staðvönum mönnum, buðu ráðamenn Klúbbsins börnum á vegum Styrktar- félags lamaðra og fatlaðra til hádegisverðar þar sunnudaginn 11. nóv. Yfir 40 börn og unglingar komu til boðsins, klædd sinu bezta skarti, og snæddu þar ljúf- fengan hádegisverð framreiddan af stimamjúkum þjónum veitingahússins. Á meðan borðhaldið stóð yfir, lélc NEÓ-tríóiS barnalög og aðra létta tónlist, en börnin tóku undir. Síðan komu þeir félagarnir Baldur og Konni og skemmtiu börnunum, sýndu ýmsa galdra og sögðu brandara. Svipur og framkoma gestanna sýndi svo að ekki varð um villzt, hve vel þau nutu góðgerðanna og skemmtunar- innar, enda sennilegt að fæst þeirra hafi áður fengið tækifæri til að njóta slíkra veitinga á þekktum stað. Áður en borðhaldinu lauk, afhenti Birgir Árnason, framkvæmdastjóri Klúbbsins, Sveinbirni Finnssyni framkvæmdastjóra Styrktarfélagsins, tiu þúsund krónur að gjöf, með þeim ummælum að þar sem árið hefði verið svo ánægjulegt fyrir ráða- menn Klúbbsins, þætti þeim aðeins aðlilegt að reyna að gleðja aðra eftir beztu getu. Bað hann Sveinbjörn að verja þessum peningum á sem beztan hátt til hagls- bóta fyrir félagið. Sveinbjorn þakkaði gjöfina, og kvað það ánægjulegt er menn vildu láta þá, sem hjálpar væru þurfi, njóta sinnar eigin gleði. SOLUVERÐLAUN Góðan daginn, ég þarf að fá tilvísun. — Jæja góði, uppá hvað? — Uppá útvarpstæki. — Nújá, hefurðu verið að selja Vikuna? — Já, ég vann i söluhappdrættinu. Það var útvarpstæki. — Já, ég veit það. Hér hefurðu til- vísunina og við vonum, að þér reyn- ist tækið vel og að þú getir haldið áfram að selja Vikuna. — Ég þakka. — Hvað heitirðu annars. Má ég ekki smella af þér mynd? — Jú, ætli það ekki. Ég heiti Garðar. — Hvað gerir pabbi þinn? — Hann kennir á bíl. — Jæja, þú ert vist of ungur til að læra á bíl ennþá. — Já. — En þcim mun duglegri að selja Vikuna. Þarna sérðu, hvort það borg- ar sig ekki að vera dugíegur. — Já, það borgar sig. — Nú er myndin komin á filmuna. Þakka þér fyrir og óska þér til ham- ingju með útvarpstækið. VIKAN 13

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.