Vikan - 21.12.1961, Síða 28
51. verðlaunakrossgáta
Vikunnar.
Vikan veitir eins og kunnugt er
verðlaun fyrir rétta ráðningu á kross-
gátunni. Alltaf berast margar lausnir.
Sá sem vinninginn hefur hlotið fær
verðlaunin, sem eru:
100 KRÓNUR.
Veittur er þriggja vikna frestur til
að skila lausnum. Skulu lausnir send-
ar i pósthólf 149, merkt „Krossgáta."
Margar lausnir bárust á 46. kross-
gátu Vikunnar og var dregið úr rétt-
um ráðningum.
HALLDÓRA HALLDÓRSDÓTTIR,
E'skihlíð 8, Reykjavík,
hlaut verðlaunin, 100 krónur og má
vitja þeirra á ritstjórnarskrifstofu
Vikunnar, Skipholti 33.
Nafn.
Heimilisfang.
Lausn neðan. á 46. krossgátu er hér að
= - = a 1 1 t = 6 1 m u r = r =
= = = f a 0 = á s = a n n a m =
V 0 r K u n n = k a f i = s a i
e = K á k s = = = s í s í = r ú
t t = r = u = = = u a t = a k k
r a k a n n = = = n = a s k = a
a ö a 1 = d u 1 a d r u n a s r
r a k o 1 k r a u m a r j a k 1
r = ó g 1 e P u r e f = d 3 0 n
í. s k U r p a g = y f i r n r n
K u r r = P r = k j ó t 1 a a f
1 ö u m i n k a r a = r æ r ö i
= r k a n 1 e = á r g a 1 i k r
s k ó a a r h ó g g f a 1 ú ö
, ! ,•
d!2a!JMu.!!2Irí: J
Draumspakur maður ræður drauma
fyrir lesendur Vikunnar.
Kæri Draumráðandi.
Síðastliðna nótt dreymdi mig
draum, sem mig langar til að biðja
þig um að ráða fyrir mig. Mig
dreymdi að mér fannst ég vera að
giftast manni, sem mér fannst vera
útlendingur. Hann gaf mér tvo
hringi, annar var mjór einbaugur,
en hinn var aftur á móti með mörg-
um mjög fallegum steinum á. Við
giftumst, án þess að fjölskylda mín
hefði hugmynd um og þegar for-
eldrar mínir fréttu að ég væri gift,
urðu þau alveg óð og heimtuðu
að við skildum. Mér fannst að cf að
þeim tækist að skilja okkur hjónin
í sundur þá myndi ég deyja. Ekki
varð draumurinn lengri. Ég vona
að þú getir ráðið drauminn fljótt.
Er slcriftin herfileg?
Með kæru þakklæti. Anna.
Svar til Önnu.
Draumur þessi er tákn um að
þú lendir í illdeilum við ástvin
þinn. Hringirnir eru tákn um
kærastann, en giftingin er í
þessu tilfelli tákn um deilur, sem
standa í sambandi við ættingja
þína. Hins vegar gefur draumur-
inn ekki tilefni til að segja um
hvernig þessu lyktar. Um skrift-
ina er það að segja að hún er
allgóð. Ég gæti trúað að þú fengir
átta fyrir hana ef meta ætti hana
eftir einkunnum.
* >-• - ' '■r
Kæri Draumaráðningamaður,
Eina nóttina dreymdi mig að ég
væri stödd í samkvæmi og vorum við
þarna nokkrir krakkar. Vorum við
að ræða um hringina okkar. Við
stelpurnar vorum allar með hringi
en enginn strákurinn nema einn.
Hann var með gullhring með hvítri
perlu í miðjunni. Fannst mér að ég
og þessi strákur værum ein einhvers
staðar og dró hann þennan hring á
fingur mér, en viö hlógum og sögð-
Ungfrú
Y ndisfríð
Ungfrú Yndisfríð er nú orðin þekkt
persóna með þjóðinni og rausnarleg
eins og allir vita, því hún veitir verð-
laun í hverri viku: Þið eigið að finna
dagbókina hennar, sem hún hefur
falið einhvers staðar í blaðinu.
Ungfrú Yndisfrið vill vekja athygli
á því, að allmargir vinningar eru
ósóttir og það hefur aldrei verið
meiningin, að blaðið sendi þessa vinn-
inga út, heldur verða vinnendur að
vitja þeirra. Þegar um er að ræða
hluti eins og fatnað, er að sjálfsögðu
tilgangslaust að senda slíkt án þess
að vita númer það, sem viðtakandi
notar.
En nú breytir Ungfrú Yndisfrið til,
leggur undirföt og náttföt á hilluna
i bili og fyrst um sinn verða verð-
launin:
STÓR KONFEKTKASSI
sem viðtakandi fær sendan heim, svo
framarlega, sem heimilisfang fylgir
seðlinum. Það geta vist allir notað
sama númer af konfekti.
Dagbókin er á bls...........
Nafn.
Sími: ...............
Heimilisfang.
Síðast þegar dregið var úr réttum
lausnum, hlaut verðlaunin:
SIGURDlS SÆMUNDSDÓTTIR,
Lyngbrekku 19, Kópavogi.
um að hringurinn væri alltof stór,
en þegar liann ætlar að taka hring-
inn af mér, þá komst hann ekki
fram af fingrinum á mér og i því
vaknaði ég.
Sunna.
Svar til Sunnu,
Að gullhringurinn skyldi fest-
ast á þínum fingri gefur tilefni
til ýmissa bollalegginga. Draum-
urinn gefur til kynna að sam-
band ykkar aukist smátt og smátt,
jafnvel að þið gerið ykkur ekki
grein fyrir afleiðingunum fyrr en
um seinan, en þá er auðvitað
ekkert um annað að velja en gifta
sig í snatri. Það er náttúrulega
engin neyðarúrlausn því ég
hygg að það verði báðum aðilum
til hinnar mestu ánægju.
Kæri Draumaráðandi,
Mig langar til að biðja þig að ráða
fyrir mig draum. Það var svoleiðis
að mig dreymdi að ég væri að tala
við strák, sem ég þekki og hann bið-
ur mig að lofa sér að skoða hring,
sem ég er með á baugfingri og ég
tek hringinn af mér og set hann á
litla fingur á honum en fingurinn
visnar nærri af og við stóðum bæði
stirð og horfðum á hringinn.
Með fyrirfram þökk,
Inga.
Svar til Ingu.
Að þú skyldir lána piltinum
hringinn er tákn þess að þú gef-
ur honum eitthvað af ást þinni.
Samt sem áður virðist sú þróun
mála ekki heppileg þar sem fing-
ur hans visnar undan hringnum,
sem bendir til að ást hans til þín
kólni fyrr en ykkur varðL
28 VIKAN