Vikan - 21.12.1961, Síða 29
Jólanóttín 1961
*
n
T '4
'hHPinap
HrútsmerkiÖ (21. marz—20. apr.): Þetta verður
fremur tilbreytingasnauð vika í flesta staði —■ bó
bendir eitthvað til þess að miðvikudagurinn verði
sú dagur vikunnar, sem allt snýst um, Ef einhver
morlrsdagur er í fjölskyldu þinni þann dag, skaltu
varast að lfta í ljós snefil af eigingirni — það geeti komið
þér illilega í koll. Heillatala 5.
NautsmerkiÖ (21. apr—21 maí>: Þetta verður
skemmtileg vika, einkum þó helgin. Irá muntu
kynnast einhverju, sem þig hefur lengi langað til
að kynnast, og þú munt síður en svo verða fyrir
vonbrigðum við þau kynni. Einn hæfileiki þinn
fær rækilega að njóta sín einhvern daginn — líklega í hópi
nol'.kurra vina. Vanrækir þú ekki einn vin þinn þessa aag-
ana?.Reyndu nú að bæta honum það upp.
Tvíburamerkiö (22. maí—21. júní): Það skeður
ýmislegt óvænt í þessari' viku, og yfirleitt mun
lánið leika við þér. Þó skaltu varast óþarfa
hnýsni í einkamál annarra. Það hefur borið allt-
of rnikið á forvitni í fari þínu síðustu vikur. Eitt-
hvað hefur valdið þér áhyggjum undanfarið, en hætt er við
að þár gerir þú úlfalda úr mýflugu.
KrabbamerkiÖ (22. júni—23. júií): Þú hefur lengi
beðið eftir einhverju, se.n átti að gerast í þessari
viku, en líklega verður bið á því fram i næstu
viku, en láttu það samt ekki á þig fá. Þú verður
fyrir miklum áhrifum af einhverju, sem þú lest
eða heyrir, og er það vel. Eitt kvöldið kemur gamall kunn-
ingi þinn í heimsókn, og verður það skemmtilegt kvöld.
LjónsmerkiÖ (24. júli—23. ág.): Á laugardag
gerist atburður, sem þér mun í fyrstu finnast
meira en lítið dularfullur og mun þetta valda þér
einhverjum áhyggjum — en i rauninni er þetta
alls ekki eins dularfullt og sýnist, eins og koma
mun í ljós eftir helgina. Amor verður eitthvað á ferðinni
— kannski ekki beinlínis hjá þér, en í kunningjahóp þinum
Meyjarmerkiö (24 ág.—23. sept.): Þetta verður
mgm óvenjuleg vika í alla staði og eftir því skemmti-
nrfW leg. Gamall draumur þinn rætist núna, af hverju
sem það nú stafar. Samkomulagið verður ekki
sem bezt heima við, og getur þú hæglega bætt
úr því, ef þú lætur af þessu óeðlilega stolti þinu, sem nálg-
ast drambsemi.
Vogarmerki (24. sept.—23. oki ): Það skiptast
á skin og skúrir í vikunni, enn þú, ert nægilega
skynsamur til þess að gera þér mat úr því góða
og gleyma mótlætinu, svo að þetta verður að
líkindum mjög ánægjuleg vika. Ef þú hefur
ferðalag á prjónunum, skaltu ekki leggja í það, nema
heilsan sé í bezta lagi. Sunnudagurinn er kvenmönnum til
mikilla heilla, og hvað mest í hjartans málum.
Drekamerkiö (24. okt.—22. nóv.): Þú varst bú-
inn að lofa vini þínum að gera eitthváð fyrir
hann í þessari viku, en líklega verður þú að
svíkja það, vegna þess að annað steðjar að
Reyndu að sýna honum fram á, að þetta sé
ekki sakir vináttuskorts — bættu honum þetta upp í næstu
viku. Á vinnustað skeður margt skemmtilegt..
Dogmannsmerkiö (23. nóv.—21. des.): Þú verður
fyrir harðri gagnrýni sakir einhvers, sem þú
gerðir í vikunni, sem leið, og er sú gagnrýni
fyllilega réttlát, og mátt þu alls ekki fyrtast
við, heldur láta þér þetta að kénningu verða.
Laugardagurinn er langbezti dagur vikunnar. Þá munt
þú kynnast þér eldri rnanni, sem mun reynast þér góður..
Geitarmerlciö (22 des.—20. jan,): Þú virð'st fylli-
lega sáttur við lífið og tilveruna þessa dagana,
og er svo sem engin furða, og ekki verða at-
burðir þessarar viku til þess að draga úr því —
eitt smáatvik kynni samt að valda þér áhyggjum
um helgina, en það er alls ekki eins alvarlegt og þú kynnir
e. t. v. að halda. Talan 6 virðist skipta karlmenn rniklu.
Vatnsberamerkiö (21. jan,—19. febr.): Atburðir
frá fyrra mánuði endurtaka sig nú í vikunni, en
kannt þú að bregðast rétt við. Þú hefur haft
eitthvað á prjónunum undanfarið og ætlað að
framkvæma það í þessari viku, en allt bendir
til þess að þér sé ráðlagt að biða í svo sem viku. Það hefur
borið á ljótum galla í fari vinar þíns — vertu ekki féiminn
við að benda honum á það.
FiskamerkiÖ (20. febr—20. marz): Þú hefur
lánið með þér í vikunni — þó skaltu ekki leggja
út í neitt, sem krefst mikilla fjárútláta, því að
á því sviði er lánið allt annað en með þér. Það
ber talsvert á leiðum galla í fari þínu þessa dag-
ana annars hefur ekki borið á þessum galla mjög lengi,
og þú getur gætt ráð þitt að nýju. Talan 5 er heillatala.
WW.
Q