Vikan


Vikan - 21.12.1961, Page 42

Vikan - 21.12.1961, Page 42
AMARO KARLMANNANÆRFÖTIN EIGA MIKLUM VINSÆLDUM L AÐ FAGNA —“ENDA I SENN ÞÆGILEG OG ÓDÝB ar hún vildi ekki einu sinni veita honum tækifæri til að ræða mál þeirra i einrúmi, hafði það fyrst vakið með honum gremju, en síðan hryggð, svo hann varð að fylgjast ná- kvæmlega með sjálfum sér, svo hann brotnaði ekki eða léti bugast. En hann vissi engu að siður að örvæntingin gróf um sig hið innra með honum, enda þótt hann beitti öllum sínum viljastyrk til að halda henni i skefj- um. Og þá sjaldan, sem hún svaraði honum nú þegar hann hringdi, varð hún honum sifellt meira framandi og fjarlægari. Að vísu virtist það sem hún sagði, ekki koma frá hjartanu, en það var ekki nema eðiilegt fyrst hún forðaðist á alian hátt að koma tii dyranna eins og hún var klædd. Hafði hann vaidið henni vonbrigð- um? Eða var skýringin svo oíur ein- föld, að honum hafði sézt yfir hana __var hún komin i kynni við annan mann? Einhvern, sem var frjáls að sinu og gat boðið henni viðhlítandi framtiðaröryggi. Það er aUtaf fram- tiðarvonin, sem konur tvinna i til- finningaþræði sína. Það er ekki nema eðlilegt. Væri þessi skýring rétt, bar hon- um í rauninni að fagna Því. Hann hafði þá ekki ósjálfrátt orðið tU þess að vinna henni óbætanlegt tjón með því að láta einlægustu og sönnustu tilfinningar sinar ráða i samskiptum þeirra. Þá mundi sár hennar lækn- ast á eðlUegan hátt, hún mundi gleyma honum og taka upp heilbrigt samUf við þann mann, sem unnið hafði ástir hennar, og var frjáls að því að veita henni allt það, er hún þráði. Og hvað um sjálfan hann. Maður þolir meira, en maður sjálfur hygg- ur að óreyndu. Fyrr eða síðar finn- ur maður eitthvað jákvætt i öUu, sem fyrir mann kemur. En lengi mundi baráttan standa áður en honum tækist að losna við Auglýsing h.f. óskar viðskiptavintun sínum nær og fjær gleðilegra jóla, góðs nýs árs með þökk fyrir viðskiptin á gamla árinu.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.