Vikan - 28.12.1961, Blaðsíða 28
'rT & 1 .1 skÁl& Köwa R.t =A Þatt- TAKAWDI eink,- stafur Æila, Á5YN)A ÖKU - TÆiCI TSun- £ FN 1 Akjgkn ÚC6AN6 UR. TAlA UÓ T £ND. |NG t-jon flokk- AR.
fr
/ LirpíRi HESTUR
VERSNA ÓBUNDn AR
STYKKi F i 3 Ó T VET6U& SAWHL7. nánuo- URINN
MÖND ULL G V f> VECG U R
E N D i N G LTOOI 5trák- DR. SER_- NL1ÓÐAR
Byut- IN6AR- madur mmm
Bamd KANTI MÁLMUR M A G A R
SE UM - eÚÐIR frum- £FN i T/ ýfékh&nih TSÍvJh +S52SÍ t TÓM- Skáld klett UR
BEAUT- Ryot- ANDI KÆ-TI MAÐUR. DULNLFMI L A D
TALA ÞÁTT- ÓUÁTTÚfcA 5AM- HL7- Ó6U 6EEINIR. srARKA SAMAN
SUBBA 6EEA VlÐ S 7 0 N Ml Al] K o N A Ryvc
líVCN. b'í’e L A M Ö E/NK.ST eins TALA
STAF HLIÖÐ NÖ 1 LÍFFATRl
£|NS TAL.A FoenAfN
SfC ST KélL A ÁFLoe SAM- HLTÓÐAR F 7 Ö R u
kinkar KOLU Anmes etwic- StAFUR
52. verðlaunakrossgáta
Vikunnar.
Vikan veitir eins og kunnugt er
verðlaun fyrir rétta ráðningu á kross-
gátunni. Alltaf berast margar lausnir.
Sá sem vinninginn hefur hlotið fær
verðlaunin, sem eru:
100 KRÓNUR.
Veittur er þriggja vikna frestur til
að skila lausnum. Skulu lausnir send-
ar í pósthólf 149, merkt „Krossgáta."
Margar lausnir bárust á 47. kross-
gátu Vikunnar og var dregið úr rétt-
um ráðningum.
SIGTRYGGUR ÞÓRHALLSSON
Öldugötu 3, Rvík.
hlaut verðlaunin, 100 krónur og má
vitja þeirra á ritstjórnarskrifstofu
Vikunnar, Skipholti 33.
Nafn.
Heimilisfang.
Lausn á 47. krossgátu er hér að
neðan.
= = b r ií 0 a r s æ n g i n = =
k ú 1 u i e g = (5 r a = n á = =
0 t a 1 a r a s 1 a = t e r t a
m 1 k 1 í r = = = s t d 1 k u r
i V = a n - = = = t (5 1 g i n f
n e f = n a f 1 i = s k u g g i
- r 0 f = P 0 e = a k u r h 1 =
h p r a k 1 r 1 = P a r = 6 d 6
e = s 1 <5 e - k 1 a T) P = s f r
1 1 m r 1 ö f u m - 1 ö t T a
1 = á r s ó 1 i m a ö a g i k k
= í = h ö f n m i ö = g u 1 u 1
= s m a 1 í = i = u t a r e n r.
= = = = h a 1 a r ó f a s i T.
FLÆÐIR YFIR FARAÓ.
Framhald af bls. 14.
En það eru fyrst og fremst pen-
ingar, sem á þarf að halda. Arabíska
sambandslýðveldið hefur lofað 10
milljónum dollara, og ýmis ríki í
Evrópu og Asíu hafa heitið lægri upp-
hæðum. Þess var vænzt, að Kennedy
Bandaríkjaforseti bæði þjóðþingið um
samsvarandi framlög. Og UNESCO
gerir sér vonir um, að einstaklingar
um allan heim muni leggja sinn
skerf af mörkum til að forða hinum
ómetanlegu fornleifum frá glötun.
Veggir og hvelfdir bogar úr sólbök-
uðum tígulsteini eru svo ótölulega
margir og erfiðir í flutningi, að þeir
verða ofurseldir flóðinu. Hin fyrr-
verandi virkisborg Karanog, var
byggð á fyrstu öld e. Kr. af Blemm-
ýum, eyðimerkurþjóðflokki af negra-
kyni. Þeir voru heiðnir, og árið 543
voru þeir þurrkaðir út af Núbíumönn-
um, sem gerðust kristnir á stjórnar-
árum Jústlnians keisara.
Á „hættusvæðinu" um það bil
miðju, eftir að farið hefur verið
um eyðimörk, þar sem rústir eru á
hverju strái, mætir auganu hið mikla
musteri Abú Simbel, á stórfenglegan
hátt höggvið inn í klett. Það blasir
við austri og hefur heilsað sólinni
um hverja dögun í yfir þrjátíu aldir.
Það er eitt hið yngsta hinna mikil-
látu minnismerkja um byggingarlist
Egypta hinna fornu, 108 fet á hæð og
höggvið 200 fet inn í þverhnípið á ár-
bakkanum. Þess gæta fjórar risa-
vaxnar styttur af þeim, er byggingu
þess réði en sá var enginn annar en
hinn skrautgjarni faraó, Ramses ann-
ar. Stjórnartíð hans var síðasti upp-
gangstimi egypska stórveldisins fyrir
endanlega hnignun þess. Hann var
blygðunarlaus auglýsingaskrumari
fyrir sjálfan sig og helgaði musterið
mikla að visu sólguðnum og annað
hof aðliggjandi uppáhaldsdrottnmgu
sinni, Nefertari, en skreytti báða
helgidómana mestmegnis með stytt-
um og málverkum af sjálfum sér.
Hann var ástríðufullur dýrkandi
stærðarinnar, og höggmyndir hans
eru hinar stærstu, sem til eru frá
tímum Forn-Egypta. Útskurðurinn á
minnismerkjum hans endurspeglar
bæði mikilleik og kyrrlátan einfald-
leik.
Sérfræðingar aðhyllast nú djarfa,
en framkvæmanlega tillögu til að
bjarga Abú Simbel. Er tillagan ítölsk
að uppruna og framkvæmd hennar
talin kosta 60 milljónir dollara. Sam-
kvæmt henni er fyrirhugað að höggva
bæði hofin út úr klettinum í tveimur
tröllauknum blökkum og byggja um
þau hylki úr steinsteypu. Síðan verði
300 rafknúnar vökvalyftur látnar
lyfta blökkunum um 200 fet, fáeina
millimetra á klukkustund, uns þær
séu komnar upp fyrir verðandi yfir-
borð vatnsins. Meðan á þessu stend-
ur, verða reistir stöplar úr steinsteypu
til að bera uppi þunga musterisins
mikla, sem er 250.000 tonn eða 25
sinnum þyngri en nokkur önnur bygg-
ing, er reist hefur verið. Traustur
veggur verður látinn bera uppi stólp-
ana og tengja Þá saman, og hinu nýja
umhverfi hinna upphöfnu mustera
verður breytt til samræmis við hið
fyrra.
Hagyrðingarnir ættu
að hætta.
Framhald af bls. 12.
koma að sem flestum hortittum? Mér
er sagt að hann sé langt kominn með
Menntaskólann í Reykjavík. Það er
kannski ekki kennd bragfræði þar
lengur?
Því miður birtist þessi samsetning-
ur i Vikunni fyrir nokkru. Það var
fyrir vangá og lesendur blaðsins eru
hér með beðnir afsökunar á Þvi.
Þessi ósköp eru þeim mun skringi-
legri sem til eru ágætir innlendir
textahöfundar. Textarnir hans Sig-
urðar- Þórarinssonar eru til dæmis
afbragð, Kristján frá Djúpalæk á líka
prýðilega texta og Jón Sigurðsson
er vel liðtækur á köflum. En af hverju
í ósköpunum er ekki leitað til hæfra
manna, þegar þarf að gefa út plötur
með vinsælum lögum? Ég er afskap-
lega mikið á móti opinberri íhlutun
og afskiptum, en það liggur við, að
mér finnist þörf á einni nefnd til
viðbótar, — sem einkum og sér í
lagi passaði, að útvarpið okkar geri
ekki i buxurnar í þessum efnum æ
ofan í æ.
G. S.
Ungfrú
Yndisfríð
Merkið hréfin
með x + Y
Ungfrú Yndisfríð er nú orðin þekkt sem viðtakandi fær sendan heim, svo
persóna með þjóðinni og rausnarleg framarlega, sem heimilisfang fylgir
eins og allir vita, því hún veitir verð- seðlinum. Það geta víst allir notað
laun í hverri viku: Þið eigið að finna sama númer af konfekti.
dagbókina hennar, s,em hún hefur
falið einhvers staðar í blaðinu. Dagbókin er á bls...........
Ungfrú Yndisfríð vill vekja athygli
á því, að allmargir vinningar eru
ósóttir og það hefur aldrei verið ......................................
meiningin, að blaðið sendi þessa vinn- Nafn.
inga út, heldur verða vinnendur að
vitja þeirra. Þegar um er að ræða Slmi: ...................
hluti eins og fatnað, er að sjálfsögðu
tilgangslaust að senda slíkt án þess
að vita númer það, sem viðtakandi ......................................
notar. Heimilisfang.
En nú breytir Ungfrú Yndisfríð til,
leggur undirföt og náttföt á hilluna Siðast þegar dregið var úr réttum
í bili og fyrst um sinn verða verð- lausnum, hlaut verðlaunin:
launin: ERNA ÞORGEIRSDÓTTIR
STÓR KONFEKTKASSI Freyjugötu 47.
28 VIKAN