Vikan - 28.12.1961, Blaðsíða 21
ÞEKKTU
SJÁLFAN
ÞIG
Dr. Matthías Jónassorr.
HVAD KOSTAR
DYGGÐIN?
SAUÐARGÆRA LASTANNA.
„Auðsætt er, hversu lofsvert það væri, ef vald-
hafinn stæði við orð sín, beittí aldrei svikum,
en léti siðgæðið ráða. Eigi að síður sýnir reynsla
okkar tíma það ótvírætt, að þeir menn einir
bera sigur af hólmi í valdastreitunni, sem taka
ekki yfirlýsingar sínar né gefin heit hátíðlega,
heldur kunna að nota vélabrögðin til þess að
villa mönnum sýn. Valdhafar með slíku inn-
ræti hafa jafnan borið sigurorð af þeim and-
stæðingum, sem treystu á heiðarleikann."
Þessi orð, skráð fyrir hálfri fimmtu öld, eru enn
i dag í fullu gildi. Höfundur þeirra er hinn opinskái
Niccolo Machiavelli, sem rýndi dýpra en nokkur
samtiðarmanna hans inn í siðgæði og siðleysi mann-
legs eðlis. í hverju samfélagi eru menn, sem hafa
dygðina aðeins að yfirskyni. Þeim sjálfum er hún
ekki alvörumál, fram yfir það, sem hægt er að hagn-
ast u henni. En hagnaðarvon af slíku atferli er því
háð, að öðrum mönnum sé dygðin meira en orðin
ein, að hún sé þeim hjartans mál, svo að þeim ói
ekki við að leggja eitthvað á sig hennar vegna. Ef
enginn maður vildi taka á sig óþægindi vegna sann-
leikans, væri lygin ekki arðvænleg. Öll blekking i
hagnaðarskyni er háð þeirri forsendu, að aðrir menn
álíti biekkjandann dygðugri en hann er í raun.
Machiavelli skoðar þetta fyrst og fremst frá
sjónarmiði blekkjandans. „Vitur valdhafi hvorki
getur haldið heit sín né heldur á hann að gera
það, ef það fer í bága við hagsmuni hans og
sú nauðsyn er horfin, sem leiddi til þess, að
hann gekkst undir það. Ef mennirnir væru
góðir, þá væri þessi regla ekki rétt. En af því
að þeir eru svikulir og myndu ekki halda heit
sín við þig, þá ber þér ekki fremur að standa
við þín orð. Og valdhafa mun aldrei skorta
yfirvarp til þess að réttlæta heitrof sín.“
Samt eru nú sauðir nauðsynlegir, ef gæra þeirra
á að verða úlfum haldgott dulargervi. Þvi skiptist
kostnaðúrinn af þróun og verndun þess siðgæðis, sem
við játum, mjög ójafnt niður á einstaklingana. Öllurn
er þetta sýnilegt. Margur maður, sem i einlægni á-
stundar siðgæði, sér lestina hreykja sér í skjóli þess.
Hann þarf að samsinna siðgæðiskröfunni í innstu taug
hjarta síns, ef hann á ekki að fyllast beiskju og van-
réttiskennd yfir því, að sérgræðingurinn metur inn-
ræti hans eingöngu í hagnaðarskyni.
Siðfræði vélabragðanna, sem Machiavelli boðar,
upphefur sjálfa sig jafnskjótt og hún hlýtur almenna
viðurkenningu. Heilhuga siðgæði fjöldans er sú for-
senda, sem hagfræði prettanna hvílir á.
HVER NÝTUR DYGGÐARINNAR?
Hirðir fanturinn þá uppskeruna af akri dygðar-
innar? Ekki verður því neitað, að úlfurinn dafnar
vel í sauðargærunni. Sá, sem ástundar siðgæði hjart-
ans og lætur það í einlægni ráða gerðum sínum,
verður oft að lúta að lægri hlut i viðskiptum sínum
við sérgræðinginn, sem metur siðrænt hugarfar sem
einbert veiklunarmerki óákveðins vilja, sem hinum
kaldrifjaða og einbeitta sé heimilt að hagnast á.
En einnig sjálft eðli manns er klofið milli þessara
andstæðu sjónarmiða. 1 mannsbrjóstinu er tvibýli
sérgæðisins og hins siðræna hjartalags. Við freistumst
oft til að ganga feti framar en samvizka og jafnvel
sjálfsvirðing okkar leyfir. Tilfinningar og ástríður
blinda þá skynsemi okkar og teyma okkur á glap-
stigu. Þetta byrjar oft sakleysislega og virðist slétt
á ytra borði. Hvað er heiðarlegra en að skiptast á
skoðunum um ágreiningsefni, t. d. gildi fræðisetn-
ingar eða listmæti skáldverks. 1 byrjun hafa deilu-
aðiljar e. t. v. sannleikann einn fyrir augum og rök
þeirra ættu þá aðeins að hníga að þvi að varpa ljósi
yfir hann. En dæmin sýna, að þetta breytist auðveld-
lega i framhaldi deilunnar. Rökfærslan víkur fyrir
aurkasti, sannar og lognar ávirðingar andstæðingsins
eru dregnar fram, og sigurinn virðist undir þvi kom-
inn, hvor reynist slyngari mannskemmdasnillingur.
í þeim átökum verður hið upphaflega deiluefni auka-
atriði.
En flekkleysi er í sjálfu sér engin trygging fyrir
Framhald á bls. 27,
Þetta er síðasta greinin í þessum flokki.
Eftir áramótin mun
atthías
Jónas-
son skrifa í Vikuna tvær greinar í mán-
uði og taka fyrir annað efni.
VIKAN 21