Vikan


Vikan - 22.03.1962, Side 11

Vikan - 22.03.1962, Side 11
en ég vaknaði við að lykli var snúið í skrá, heyrði kallað á Vasco með nafni og skynjaði, frelcar en ég sæi eða heyrði, hreyfingar hans i myrkrinu, þeg- ar hann gekk út um klefadyrnar. Einu hljóði veitti ég þó athygli — járn glamraði við járn. Það var jjó ekki fyrr en nokkru seinna að ég gerði mér grein fyr- ir uppruna þess. Vasco var i lilekkjum. Og svo var ég blind- aður sjálfmeðaumkun, að það vakti einungis hjá mér þá spurn- ingu, hvers vegna ég hefði ekki líka verið lagður i hlekki. Þá var grunnum pjáturdiski ýtt til min, undir hurðina. Ég skreið þangað eftir steinlögðu gólfinu og gleypti í mig köld hrísgrjón- in, Sofnaði svo aftur. íig vaknaði ekki við það, lieg- ar Vasco var leiddur inn í klef- ann aflur, mörgum klukkustund- um seinna. Ég brá blundi við óminn af rödd hans, eins og þeg- ar kafari náigast aftur yfirborð- ið og birtuna. Enn var ég ekki t'arinn að venjast dyflissudvöl- inni og enn var mér það martröð að vakna í myrkrinu, gera ráð fyrir að konan, sem maður ann, liggi við hlið sér, rétta út hönd- ina til að kveikja, hvisla nafn . . . verða svo allt í einu ljóst hvar maður er staddur. Þetta hræði- lega bil milli svefnsins og vök- unnar á meðan hugurinn reikar yfir landamærin — það er snar- an, sem fanginn losnar aldrei úr. Vasco sönglaði, Það var undar- Þeir náðu í hann á hverjum degi í dýílissuna og misþyrmdu honum. Hann var máttfarinn og blóðugur þegar hann kom aftur, en það fannst engin beizkja í rödd hans, þegar hann sagði mér frá því. legur söngur á annarlegu máli, sem ég kannaðist ekki við, en reyndi að átta mig á. Þegar hugs- un mín tók að skýrast, þótlist ég þekkja hið dularfulla hljómfall. Þetta var hebrezkur sálmur. Vas- co baðst fyrir. Ég dró það að ávarpa hann þangað til söngurinn hljóðnaði. „Senor Vasco?“ í þetta skiptið færði hann sig ekki nær mér í myrkrinu og það leið nokkur stund, áður en hann svaraði. Og þegar hann tók til máis var röddin hljómvana eins og hana skorti allan þrótt. „Ég vona að ég hafi ekki orðið tii þess aö vekja þig‘?“ sagði hann. „AIls ekki. Þetta er fallegur sálmur". „Hann er mjög forn“. itödd hans gaf til kynna að hann vildi taia sem fæst. En mér var það svo mikilvægt, eins og á stóð, að heyra mannlega rödd. Ég spurði: „Er langt siðan þú komst aftur? Ég heyrði ekki þeg- ar þú komst inn“. „Það er drjúg stund síðan", svaraði Vasco. „Ég . . .“ Rödd hans brast skyndilega og hann rak upp lágt sársaukavein, sem hijoonaói i miðjum kliðum, eins og hann hel'ði gripið höndinni lyrir munn sér. Ég spratt á fætur, æddi yfir kielagoifið, rak mig svo harka- jega á staihurðina að ég braut g.eraugun, sem ég hafði haldið a einhvern duiarfullan hátl, þeg- ur hermennirnir börðu mig i and- niið. bem nærsýnum manni varð mer þaö fyrst fyrir að leggjast a linen og þukla gólfið, ef vera niæúi að ég finndi gleraugun. rmgur minir snertu andiit Vasco og eg fann að það var vott. Ég laut að honum, drap tungu- broddinum á vanga hans og fann að það var blóð. Vasco svaraði ekki spurningu minni, og ég komst að raun um að hann var meðvitundarlaus. Ég þreifaði á likama hans, og vegna þess að ég hafði misst gleraugun, fannst mér myrkrið myrkara en nokkru sinni fyrr. Og ég verð að viðurkenna að þessa stundina varð mér frekar hugsað um gler- augun er Vasco sjálfan og þján- ingar hans, enda þótt þau væru mér vitagagnlaus. Líkarni Vasco var einkennilega stjarfur, eins og hann hefði stirðnað i kvalakrampa. Andlit hans var allt rennvott af blóði og undum þakið, svo djúpum að ég fann fyrir þeim undir fing- urgómunum. Ég fór úr skyrtunni og reif hana í lengjur. Þrátt fyrir það að ég sá ekki handa minna skil, reyndi ég að þerra af hon- um blóðið og búa um sár hans sem bezt ég gat. Að þvi búnu lagði ég höfuð hans í skaut mér og beið; lagði titrandi hönd mína að hjartastað hans unz hann kom aftur til meðvitundar. Þess varð löng bið, og um leið og hann raknaði við, rak hann upp sarsaukavein. Ég hugði að ef til viii kynni það að vekja með hon- um hræðsiu, er hann varð var ná- vistar minnar, svo ég mælti: „Þér megið ekki hreyfa yður neitt, sen- or Vasco. Þér eruð mikið s«erður“. Hafi ég yfirleitt búizt við nokkru svari, hef ég áreiðaniega ekki gert ráö lyrir að það yrði slikt. Vasco hio. Ékki tryihngslegum hlátri eins og áður hafði sett að mér, heldur holstiiltum, ljúfum hlátri þess manns, sem heíur öðlazt svo djúpan skilning að ekkert sem fram við hann kemur, getur vakið hjá hon- um undrun eða beiskju. „Það veit ég, Alberto . . .“ ■ Síðan sagði hann mér frá því, aö hann væri sóttur í myrkraklef- ann á hverjum degi, leiddur með bundið fyrir augu inn í sérstakt her- bergi á allt öðrum stað í dyfliss- unni, en þar var bindið tekið frá augum hans og oíurbjörtu ljósi beint að þeim. Ejórir sterkir og stórir menn börðu hann siðan og misþyrmdu honum með ýmsum aðferðum og tækjum, svo grimmúðlega, að því verður ekki með orðum lýst. Hann sagði mér þessa sögu eins ljúfmann- iega og hún snerti hann ekki, en mig iangaði mest til að bölva og íormæia föntunum eins hroðalega og mér væri unnt. Loks spurði ég: „Hvers vegna?“ „Þeir vilja komast yfir pening- ana mina“, svaraði Vasco. „Er það ekki auðvelt fyrir þá? Geta þeir ekki gert upptækar eign- ir þínar og innistæður?“ spurði ég. „Það hafa þeir þegar gert — og orðið fyrir miklum vonbrigðum“, svaraði liann. „Hafa þeir ekki fundið pening- ana?“ „Þeir ímynda sér að ég hafi falið of fjár. Ef til vill grafið það í jörðu“. „Og þeir vilja að þú segir til þess, en þú gerir það ekki?“ „Öldungis rétt, Albert; ég geri það ekki“. „Þeir drepa þig . . .“ „Það gera þeir vafalaust“. „En hvers vegna segirðu þeim þá ekki til peninganna?“ Vasco hló. „Ég geri ekki ráð fyrir að þeir eigi eftir að finna þá . . .“ „En ef þú vísaðir þeim á féð?“, „Þeir mundu leita þess á röng-U um stöðum, jafnvel þótt ég gerði það“, svaraði hann. „Þeir mjnu ekki fást til annars". Framhald á bls. 35. VIKAN 11

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.