Vikan


Vikan - 22.03.1962, Blaðsíða 15

Vikan - 22.03.1962, Blaðsíða 15
ekki sérlega hrifnir af Því, aO hann skyldi hafa haldið starfinu i fjóra mánuði, þá var móðir hans Þvi á- nægðari. Og Tony fann — Það var einnig nýtt viðhorf — að sannarlega var tími til Þess kominn að hann yrði henni til ánægju. Kannski var þetta allt og sumt. Hann vissi Það ekki. Hann þorði ekki að segja neinum af Þotufélögunum, þorði ekki að trúa neinum fyrir því, hvílíkt rót hafði komizt á tilfinning- ar hans, og þess vegna áleit hann réttast að halda þeim öllum frá sér, Riff, Snjókarlinum, Hreyfli, sem nú höfðu tekið forystuna í hópnum. „Ég segi þér þetta eingöngu f trún- aði,“ bætti hann viö. „Þú skilur það.“ Riff varð snortinn. „Þá erum við vinir enn," sagði hann hikandi. „Einlægari vinir en nokkru sinni fyrr <• Tony brosti, en varð svo al- varlegur aftur. „Ég hef látið mig dreyma um svo margt," mælti hann enn. „Ég er stöðugt að hugsa um eitthvert tak- mark, sem ég veröi að ná.“ „Hvers konar takmark?" spurði Riff af áhuga og kænsku i senn. „Það er ekki svo auðvelt að koma orðum að því,“ mælti Tony enn. „Ég hef látið mig dreyma um að komast eitthvert á brott. Ekki einungis mílu vegar eða hundrað milur, heldur þús- und mílur á brott héðan. Til þeirra fjarlægustu staða, sem fyrirfinnast á landabréfinu." „Hvers vegna gengurðu þá ekki i sjóherinn?" spurði Riff kaldranalega. „Þá geturðu látið húðflúra þig og drukkið þig fullann með mellum í hverri höfn. Bn hver væri svo til- gangurinn? Þú getur kynnzt öllum hugsanlegum þjóðum og þjóðflokkúm hérna i borginni, svo ég sé ekki að þú þurfir að endasendast um allar Riff og féiagar hans láta til s jarðir. Ef Þú vilt kynnast Klnverj- um, geturðu hitt þá fyrir í Kínverja- hverfinu. Þú þarft ekki að fara lengra en • í Mulberrystræti til þess að þú getir ímyndað þér að þú sért kominn til Italíu. En ef þig lang- ar til að kynnast Porteriko, ráðlegg ég þér að fara þangað — ef þeir kynnu að vera þolanlegri heima hjá sér.“ Tony bandaði hendinni, rétt eins og hann vildi vísa þröngsýni Riffs algerlega á bug. „Það má vel vera að ég þurfi ekki að endasendast um allar jarðir til að finna það, sem ég er að leita að," svaraði hann. Það getur eins vel verið að það bíði min handan við næsta götuhorn, eða hérna fyrir utan dyrnar." Honum varð litið upp í myrkvan gluggann fyrir ofan. „Það getur eins vel verið á bak við þennan glugga . . .“ „Hvað áttu við?“ Tony vafðist tunga um tönn eins og ævinlega þegar draumarnir sóttu á hann. „Ég veit það ekki sjálfur," svaraði hann. „Eitthvað æsilegt, geri ég ráð fyrir. Raunar eitthvað, sem er meir en æsilegt, þótt ég geti ekki komið betur orðum að því.“ Riff starði óttasleginn á hann. „Þú ert þó ekki farinn að nota eiturlyf?" spurði hann. Og hann hvessti á hann augun. „Ef ég kemst að raun um það ..." „Gleymdu þessu," svaraði Tony. „Kannski er ég bara að leita að ein- hverju, sem veitir mér jafn æsilega fullnægingu og ég naut forðum, þegar ég var foringi Þotusveitarinnar.“ Riff hugsaði sig um nokkur andar- tök. „Mér finnst mestu varða, að við skulum enn vera vinir." „Það erum við.“ Tony rétti hon- um höndina og Þeir tókust fast í hendur. „Mér er það ánægjuefni, að skríða. þú skyldir heimsækja mig, Rlff“, sagði hann. „Fyrst þú komst einn. Ég er ekki viss um að ég hefði haft eins mikla ánægju af því, ef þeir A-Rabbinn, Diesillinn eða einhverjir hinna hefðu komið með þér!“ Hann hristi höfuðið. „Og þegar ég hug- leiði það núna, hvort nokkuð sé í það varið að vera einn af Þotunum, verður það sama uppi á teningnum og áður . . . Því miður, það er ekki neitt í likingu við það, sem ég er að leita að . . .“ „En þú gleymir algerlega stað- reyndum lifsins, maður," sagði Riff og reyndi að leiða samtalið inn á aðrar brautir. „Þú lifir ekki einu sinni hálfu lífi, nema þú hafir ein- hvern hóp umhverfis þig sem lýtur boði þínu og banni. Án þess ertu ein- stæðingur. Þú hefur meiri þörf fyrir slíkan hóp en föður þinn og móður. Já, þú mátt ekki taka það þannig, að ég sé neitt að setja út á móður þína,“ flýtti hann sér að bæta við, „þótt hún hafi komið svona og svona fram við mig. En þú verður að láta þér skiljast Það, Tony, að staðreynd er staðreynd. Ef þú samlagast ekki neinum hópi, ertu áhrifalaus og ut- angátta, en meðan þú hefur Þoturn- ar á bak við þig eru Þér allir vegir færir." Tony var ógerlegt að láta sér hina einlægu málaleitan Riffs eins og vind um eyru bjóta, ógerlegt að þurrka út fortíðina, öll árin, sem þeir höfðu staðið saman eins og einn maður og barizt hlið við hlið. Atburðirnir rifjuðust upp fyrir honum, liðu fram hjá hugskotssjónum hans hver á eftir öðrum, eins og myndir á tjaldi. Skýr- skotuðu til samvizku hans og dreng- skapar, en . . . samt sem áður fann hann ekki hjá sér neina löngun til að gerast aftur einn af hópnum. „Riff, ég hef tekið mína ákvörðun“, mælti hann. Honum þótti fyrir því, að hann skyldi ekki geta verið skýrmælt- ari, en það var sem kökkur stæði í hálsi hans. „Og sú ákvörðun verður ekki aftur tekin". „Þetta veltur á svo miklu nú“, sagði Riff, sem fann að undanlátsemi var farið að gæta hjá Tony. Hann reyndi að láta ekki á því bera, að hann hefði orðið þess var, taiaði eins látlaust og honum var unnt — og tókst Það. „Þeir eru hvasstenntir núna, Hákarlakjaft- arnir, Tony. Nú eigum við ekki um nema tvo kosti að velja — að taka til þeirra svo um munar, eða láta þá fiæma okkur héðan". Hann þagnaði við, svo Tony gæfist tími til að gera sér grein fyrir hve allar aðstæður væru alvarlegar, áður en hann bæði hann beinlínis um liðsinni. „Það er þess vegna, að ég sný mér til þin, Tony. Ég þarfnast aðstoðar þinnar. Þarfnast hennar meir en Þú getur gert þér í hugarlund. Þú verður að koma með mér i kvöld. Það verður dansleikur í samkomuhúsinu i mið- hverfinu". Tony leit undan. „Ég get það ekki". „Ég hef fullyrt við þá, að þú kom- ir". Tony reiddist að Riff skyldi hafa tekið hann þannig traustataki, áður en hann minntist á það við hann, og hann var ákveðinn í að láta hann fá það óþvegið. En Þá gerði hann sér grein fyrir því hvers vegna Riff hafði gert þetta — vegna þess að hann reiknaði enn með honum sem traust- um og tryggum vini, sem ekki mundi bregðast, einmitt þegar mest á reið. Annað mál var svo það, hvort til- finningar hans sjálfs gagnvart Riff voru hinar sömu. Það breytti þó engu um þá drengskaparskyldu hans, Framhaid á bls. 46. jjMfcaÉsctwi-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.