Vikan - 22.03.1962, Blaðsíða 32
(OLGAIE tannkrem EYDIR AHDREMMU
vinnur GEGN TANNSKEMMDUM
Með því að bursta tennurnar með COLGATE Gardol tannkremi
m/ndast virk froða sem smýgur á milli tannanna þar sem burstinn
nær ekki til, og eyðist þá hverskonar lykt úr munni og bakteríur
sem valda tannskemmdum skolast burt. Andremma hverfur strax.
Burstið tennurnar reglulega með COLGATE Gardol tannkremi og
verjist tannskemmdum um leið og þér haldið tönnum yðar hvítum
og fallegum.
KAUPIÐ i DAG, COLGATE TANNKREM i^HVÍTU 06 RAUÐU UMRÚOUNUM
Colgate er mest selda tannkrem heims-
ins vegna þess að það gefur öndun yðar
frískan og'þægilegan blæ um leið og
það hreinsar tennur yðar.
Ofvitinn frá Hala.
Framhald af bls. í).
á sjó. Hann véð þvi Þorberg koklc á
Hafstein, en skipstjóri var Jón Ól-
afsson, si'ðar bankastjóri. Þórbergur
hefur lýst eldamennsku sinni á
skútu svo, að hún virðist ekki hafa
farið honum betur úr hendi en
færaveiðarnar. Hann fékk titilinn
„helvítis eiturbrasari“ og bar þá
nafngift með kristilegu þolgæði
meðan hann var til sjós. í frí-
stundum sínum mátti hann draga
fisk og eiga það sem hann aflaði,
en þorskurinn hélt áfram upptekn-
um hætti og snerti ekki við öngli
hans. Þórbergur var á skútu þrjú
úthöld, til ársins 1909, og öll þ.essi
ár var hann vinnumaður hjá Run-
ólfi Guðmundssyni. Þegar hann var
ckki á sjó, vann hann húsbónda sín-
um í landi, stundaði uppskipunar-
vinnu og annað, sem til féll. En eftir
veru sína á sjónum i þrjú ár var
hann orðinn afhuga sjómcnnsku og
gekk þess ekki dulinn, að hann
mundi aldrei verða skipstjóri svo
sem hann hafði drcrymt um á lilað-
inu á Hala, þegar öll segl voru
enn hvít.
En maðurinn fa*r ekki lifað án
draums sins, og Þórbergur Þórðar-
son, sem hafði reynzt ónýtur til
vinnu í sveit og á sjó, tók nú það
ráð að ganga menntaveginn. Þeg-
ar hann kom úr vegavinnu haustið
1909 settist hann í Kennaraskólann.
Þar var hann næsta vetur allan til
vors, en kunni ekki við andann,
sem rlkti i þessum skóla og hugði
á annan og meiri frama. Hann vildi
setjast i Menntaskólann og haustið
1910 fór hann að lesa undir gagn-
fræðapróf. En hugurinn var oftast
vfðs fjarri náminu. Hann bjó í litlu
herbergi uppi á lofti í Bergshúsi
við Skólavörðustíg, hugaði að gangi
himintungla gegnum þakgluggann,
en hjartað fullt af ást til Elskunn-
ar hans, sem svaf i herbergi á hæð-
inni fyrir neðan. En hann verður
skipbrotsmaður bæði i námi og ást-
um: hann gengur frá gagnfræða-
prófi þegar stærðfræðin rís upp ógn-
andi á vegi hans, og Elskan hans
fer heim í sina sveit, og hann fær
aldrei tjáð henni ást sina. Á sumrin
er hann i vegavinnu eða i sild á
Siglufirði og Akureyri, kemur til
Reykjavfluir um haustið 1912 nærri
slyppur að fé. Einu sinni hyggur
hann jafnvel á sjálfsmorð vestur i
Selsvör, en finnst sjórinn of kaldur.
Sumarið 1913 gerist hann hiisamál-
ari, en óheppnin eltir hann eins og
vanalega, þegar hann stundar erfið-
isvinnu: það er nærri uppstyttulaus
rigning allt sumarið og hann getur
ekki máiað utanhúss. Um það leyti
sem hann er að verða hungurmorða
fremur guð loks á honum almætt-
isverkið. Erlendur í Unuhúsi kemur
heim til hans þar sem hann ligg-
ur matarlaus og allslaus og iætur
hann mála Unuhús utan og innan.
Það var í síðasta skipti, að Þór-
bergur Þórðarson lagði fyrir sig
likamlega vinnu.
Þótt hann sé ekki stúdent fær
hann að sækja tíma f Háskólanum
°g leggur stund á íslenzku, fyrst
hjá Birni M. Ólsen, síðar hjá Sig-
urði Nordal, Alexander Jóhannes-
syni og .Takobi Smára. Þetta var
nám, sem honum féll vel í geð. Hann
hafði ekki getað fellt sig undir aga
hins.smásmugulega gagnfræðanáms,
en vísindalegt íslenzkunám var
honum að skapi. Hann gerist orða-
32 VIKAN